Alþýðublaðið - 13.10.1964, Síða 16

Alþýðublaðið - 13.10.1964, Síða 16
 BLÖÐISVIÞJOD MEÐ LOFILEIÐUM Stokkhólmi, 12. okt. (NTB) 4SÆNSK blöð' reyna nú að fá al- tnenningsálitið með Loftleiðum og fteina því gegn SAS í loftferða- 'deilu Skandinavia og islendinga. Síðdegisblöðin í Stokkliólmi, .„Expressen” og Aftonbladet” JEylktu sér i dag um Loftleiði og tiáldu því fram, að islenzka flug- félagið þjónaði hagsmunum sænskra neytenda. Mörg ö.nnur sænsk blöð, bæði i Stokkhólmi og úti um land, hafa beint harðri gagn rýni á SAS og sænsk loftferða- yfirvöld undanfama daga vegna framkomu þeirra gagnvart Loft- lelðum. Sambönd ungra jafnaðarmanna í Danmörku, Noregi og Svíþjóð Framhald á 15. síðu. Mvæðagreiðsla hjá prenturum í gær tim heimild til vinnustöðvunar ■Reykjavík, 12. okt. ÁG. ATKVÆÐAGREIÐSLA stóð yfir * dag hjá Hinu íslenzka prentara- •félagi um lieimild fyrir stjórn fé- ■tagsins til að boða vinnustöðvun. 'Að undanförnu hafa samninga- tfundir staðið yfir hjá prenturum ®g prentsmiðjueigendum, en nú ■átefur siitnað upp úr viðræðum. Prentarar héldu félagsfund í i}ær þar sem stjórnin gerði grein fyrir viðræðunum. Lýsti fundur- inn fylgi sínu' við stefnu stjórn- arinnar í samningaumleitunum óg ákveðið að láta fara fram at- kvæðagreiðslu um heimild til vinnustöðvunar. Talning atkvæða mun fara fram annað kvöld, þriðjudagskvöld. Samningarnir munu liafa strand að á kröfu um styttingu vinnu- tíma. * PÁLL, TÓMAS OG KJAR VAL FÁ HEIÐURSLAUN ÞRÍR LISTAMENN hljóta í fyrsta sinn heiðurslaun úr rík- issjóði samkvæmt fjárlagafrumvarpinu, sem rikisstjóm lagði fyrir Alþingi í gær. Það eru þeir jóhannes S. Kjarval, Páll ísólfsson og Tómas Guðmundsson og hljóta þeir 75.000 krónur hver. Um langt árabil hafa tveir rithöfundar, þeir Halldór ness og Gunnar Gunnarssón hlotið slíka heiðurslaun á fjárlög- um, en nú er hinum brem bætt við. Þfcssir fimm menn em nefnd !r sérstaklega af Alþingi, en að öðru leyti gerir fjárlagafrum- varpið ráð fyrir, að veitt verði 3,1 miiljón til skálda, rithöfunda og listamanna, og hefur því fé venjiiiega verið. úthlutað af sér- stakri nefnd. ,, <lltVWVVVtWMMVWWMWMMUWWVWWWW Við Hvalsnesskirkju. Guðmundur Guðmundsson, form. sóknarnefndar, sem fann legstein Steinunnar fyrir tiiviljun og Gísli Guðmundsson, kirkjuhaldari, sem las á steininn og uppgötvaði hvað hér var komið í leitirnar. Steinninn fannst fyrir hreinustu tilviljun Reykjavík, 12. okt. OÓ. FUNDINN er við Hvalsness- kirkju legsteinn Bteinunnar, dóttur Hallgríms Péturssonar. Steinn þessi hefur verið týndur í hátt á aðra öld, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að hafa upp á honum. Alþýðublaðið hafði í dag tal af Gisla Guðmundssyni, kirkjuhaldara í Hvalsnesi, og sagði hann að steinninn hefði fundist sl. laugardag fyrir hreinustu tilviljun. Var verið að vinna að undirbúningi að því að steypa nýja stétt að og með fram kirkjunni. Þegar búið var að slá upp mótunum kom í ljós að steinar stóðu upp úr gam- alli hleðslu s<.';n þarna var fyr ir og hefðu náð upp úr steyptu stéttinni. Bóndinn á Bala, Guð mundur Guðmundsson, formað ur sóknamefndar Hvalsnessókn ar, var að vinna þar við og var að taka upp þá steina sem of hátt stóðu. Byrjar hann á steini Framhald á síðu 4 Legsteinn Steinunnar, eina sýnilega og áþreifanlega handa verk séra Hallgríms í Hvals- nesi. Eins og sjá má er letrið á steininum vel læsilegt og má þakka þvi hve lengi hann hefur legið á grúfu. ^mimmmmwwMWWWwwwwwMwwwwMMWMwwwwwwwwwwwwwwMwwwMi FLÚÐI BROTT AF SLYSSTAÐNUM Reykjayík, 12. okt. ÓTJ. Réttindalaus ökumaður Taunus bifreiðar lagði á flótta á ofsahraða eftir að hafa ekið á tvo drengi austantil á Fossvogsvegi kl. hálf átta í gærkvöldi. Bróðir hans, sem átti Taunusinn gaf sig svo fram við lögregluna eftir að auglýst hafði verið í útvarpi eftir bílnum. , Drengirnir tveir, Hallmundur Guðmundsson, Tunguvegi 42, fll ára) og Björgvin Björgvinsson Tunguvegi 40, (10 ára) voru á heimleið. eftir Fossvogsveginum þegar bifreið ók á þá. Hallmund- ur skall fyrst upp á vélarhlífina og þeyttist þaðan fram á veginn, en Björgvin fékk högg á liendina og valt um koll. Þegar ökumaðurinn hémlaði, drapst á bílnujn, og stóð Björgvin á fætur, gekk að hönum og bank- aði I rúðuna. En ökumaðurinn skeytti því engu, leit ekki á hann heldur ræsti bílinn á nýjaji leik, og ók burt á miklura hraða. Björg- vin hljóp þá til félaga síns, til aS lijálpa honum á fætpr, og komust þeir í hús þar sem þeir gátu gert aðvart um slysið. Strax ,í gærkvöldi var auglýst í útvarpinu eftir Taunusbifreið- inni, og skömmu seinna kom eig>- andi hennar til lögreglunnar og tjáði henni að bróðir hans hefði verið ökumaðurinn. Sá er aðeins 1<8 ára gámall, frá ísafirði, og er nýkominn til Reykjavíkur. Að því-er liann tjáði lögreglunni tók hanp fyrir nokkru bílpróf á ísafirði, I sem hann kveður svo ganga í gildi þegar hann verðut 17 ára. Aðspurður um hvérs- vegna hánn hefði lagt á flótta, svaraði hann þvi til, að hann hefði orðið hræddur, ^ert sér grein Frh. á 13. síðu. Trúnaðarmanna fundur í kvöld FUNDUR trúnaðarmanna (hverfisstjóra) Alþýöuflokks- félags Rcykjavíkur verður haldinn í Ingólfs - café (inn- gangur frá Ingólfsstræti) í kvöld kl. 8.30. Fundarefni: 1. Erlendur Vilhjálmsson, formaður félagsins, ræð- ir vetrarstarfið. 2. Trúnaðarmenn gera til- lögur um fulltrúa félags- ins á flokksþing. 3. Eggert G. Þorsteinsson, aiþingismaður, ræðir um húsnæðismál og svarar fyrirspurnum. Kaffiveitingar. it*wmiw*wwvmww4%v ■ ' 13. október 1S64 Reykjavík, 12. okt. ÁG. KOSNING fulltrúa á þing Al- þýðusambands íslands fór fram í þrem félögum í Reykjavik um helgina. Kosið var í Iðju, félagi verksmiðjufólks, Múrarafélaginu og mjólkurbúðiun. í öllum þessum félögum báru listar stjórna og trúnaðarmannaráða sigur úr být- um. í Iðju var kosið um tvo lista, A-lista (kommúnistarl og fram- sóknarmenn) og B-lista (lýðræð- issinnar). A-listinn hlaut 386 at- kvæði og B-listinn 766. Fulltrúar Iðju á þing ASÍ verða Framh. á bls. 15. KOSIÐ í IÐJU, MÚRARA- FÉLAGINU OG HJÁ ASB

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.