Alþýðublaðið - 14.10.1964, Side 2
Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjóri:
Árni Gunnarsson. — Ritstjómarfuiltrúi: Ei'öur Guðnason. — Símar:
14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aösetur: Alþýðuhúsið við
Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald
ki'. 80.00. — í lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Norrænn stuðníngur
LOFTLEIÐAMÁLIÐ yirðist mikið rætt á hin-
nm Norðurlöndunum, og geta íslendingar fagnað
því, hve mörg blöð eru þeim hliðholl á þessu sviði.
Yirðist þetta mál koma við réttlætistilfinningu
tolaðanna, þar eð þeim þykir hið volduga SAS
sækja helzt til hart að litlum keppinaut. Þá sýna
folöðin vaxandi skilning á því, hve þetta mál getur
haft mikil áhrif á viðhorf almennings á íslandi
•til norræns samstarfs.
Það er sérstaklega athyglisvert, að Æskulýðs-
samband jafnaðarmanna á Norðurlöndum hefur
tekið upp málstað Loftleiða og sent ríkisstjórnum
ÍNoregs, Danmerkur og Svíþjóðar áskorun um mál-
ið. Samtök ungra jafnaðarmanna eru voldug í öll-
um þessum löndum og margir núverandi ráðherr-
iar voru á yngri árum félagar í þeim. Má gera ráð
fyrir, að ungir jafnaðarmenn á íslandi hafi bent
félögum sínum á þetta mál og skýrt það fyrir þeim.
Loftleiðamálið er nú í höndum utanríkisráðu-
neyta hinna f jögurra landa, sem hlut eiga að deil-
unni. Verður að telja meiri von um skynsamlega
lausn á þeim vettvangi en öðrum.
Heilagur Karl
FRAMSÓKNARMENN una sér illa í stjórnar-
andstöðu. Þeir hafa ekki verið svo lengi utan rík-
isstjórnar síðan 1928, og þeir kunna ekki við sig
utan garðs. Þar að auki hafa þeir á þessu ári stað-
ið -utan við samkomulag ríkisstjórnarihnar við
trerkalýðssamtökin og hvergi komið þar nærri.
Hefðu þeir raunar heldur viljað verkföll og deilur
í þeirri von, að þannig kæmust þeir aftur til valda.
Það virðist sérstaklega angra framsóknar-
imenn, að þjóðinni skuli vegna vel, þrátt fyrir marg
víslega erfiðleika. Kvarta þeir undan því, að
stjórnarblöðin vegsami dýrlinga sína, heilagan
Gylfa og heilagan Bjarna. í því sambandi er ástæða
til að spyrja Tímann, hvers vegna framsóknar-
menn séu hættir að tilbiðja móðuharðindadýrling-
inn, heilagan Karl. Er það af því, að þeir skamm-
ast sín fyrir hrakspárnar um núverandi ríkis-
stjórn, sem engar hafa rætzt?
Framsóknarmenn ættu að treysta varlega á
slíkan áróður. Þjóðin mun dæma þá eftir úrræð-
um þeirra, ef þeir hafa þau einhver. Hún mun
fcíða þess að sjá, bvaða tillögur framsóknarmenn
gera á Alþingi um aðra stjórnarstefnu en fylgt er,
ef þeir hafa slíka stefnu fram að færa.
m
UTIVIST BARNA hefur alltaf
verið vandamál í Reykjavík. Þetta
istafar af Því að okkur gengur erf
iðlega að búa í margbýli. Við er-
um nefnilega enn þá sveitamenn
og þekkjum Jítið til borgarmenn-
ingar. Víst er þó, að margt höf-
um við lært á síðustu þremur til
fjórum áratugunum, og þá ef til
vill mest á hinmn síðasta. En bet-
ur má ef duga skal,
LÖGREGLUSAMÞYKKTIN fel
ur í sér ákveðin fyrirmæli um úti
vist barna á kvöldum. Öll dagblöð
in hafa nu birt fyrirmæli og verð
ur því að álíta, að 'almenningur
viti nákvæmlega hvenær börn eigi
að vera komin inn á heimili sín
á kvöldin. Um leið er tilkynnt hve
nær unglingar eigi að vera komn-
ir í næði á heimilum sínum.
BLÖÐIN HAFA ALLTAF, að
tilhlutan lögreglunnar, birt þess
ar reglur í upphaf skammdegis, en
alltaf hafa margir gerzt brotlegir.
Við erum að læra, en enn verður
■að herða sig. Ef til vill læra sum-
ir ekki fyrr en þeir reka sig á.
Óreiðuheimilin eru undantekn-
ing, en þau eru allt of mörg. Það
er rétt að taka börn úr umferð,
sem eru úti á banntíma. Foreldrar
ættu þá að sækja þau til lögregl-
unnar.
SKATTÞEGN SKRIFAR:
„Maðurinn með hattinn,
stendur upp við staur,
hann borgar ekki skattinn,
því hann á engan 'aur.“
MIKH) VAR ég feginn í morg-
un, er ég sá í blessuðu Morgun-
blaðinu mínu, að ríku mennirnir
eiga að fara að borga skatt af
•iiifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiuíiHiiiU4iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiim<)ii>iiiiiHiiiiiiiiiiiiiiruiiiiii*»ii)*
ic Útivist barna á síðkvöldum.
ir Fyrirmælin í lögreglusamþykktinni.
+ Erfið lexía fyrir ýmsa.
,ic „Maðurinn með hattinn stendur upp við staur“.
É S
mmiMMmumiiiiiiiiiiuiumiiiiiiiiiiniiiitmiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiimHiiiimiuiiiiiiiiiiimiinuiiuiimiuK'iiiiuiiimHlli
grjótinu sínu og lóðarbleðlinum.
Ef ég ætti hatt skyldi ég taka ofan
fyrir þeim heiðursmönnum, sem
hafa fundið þetta snjallræði upp.
Og nú á okkar ágæta Alþingi að
koma saman, vafalaust gerir það
enn betur, því allir vilja gera allt
fyrir háttvirta kjósendur.
EF ÉG MÆTTI ráðleggja eitt-
hvað, myndi ég fyrst benda á, að
þjóðfélagið taki í sina hendi alla
fasteignasölu. Það er engin mein-
ing að þessir ,,löggiltu“ slíti sér út
1 á slíku skítverki og án allrar
greiðslu. Það sýna skattarnir
þeirra. Þá myndi ég leggja til, að
öll skuldabréf væru skrásett. Eiffi
hverjir liuldumenn virðast eiga
nokkur hundruð krónur í slíkum
verðmætum, sem hvergi koma
fram, að því er skattstofan segir.
EINU SINNI var taiað um ein-
staklingsframtak. Nú er það ein-
okunarframtak. Allir dugandi fjár
málamenn, athafnamenn og afla-
klær mynda hringa. Það hentar
tæplega íslenzku þjóðlífi. Þau eru
orðin gömul, úrelt og misnotuð
samvinnulögin, hlutafélagalögin
og sameignarfélagslögin. Þetta
þarf lagfæringa við“.
Hannes á horninu.
60 - 70 SKIP STUNDA
ENN SlLDVEIÐARNAR
GÓÐ síldveiði var sl. viku og hag-
stætt veður mestan hluta vikunn-
ar. Veiðisvæðið var 60-70 sjómíl-
ur ASA frá Dalatanga, en á sömu
slóðum hefur verið mikill fjöldi
rússneskra skipa, sem stunda síld
veiðar í reknet, og hafa þau vald-
ið íslenzkum skipum óþægindum
við veiðarnar.
Milli 60-70 skip stunda enn síld
véiðar, en um sama leyti í fyrra
var síldveiðum lokið fyrir Norð-
ur- og Austurlandi.
HVERNIG ER HREINLÆTi HÁTTAÐ
Á VINNUSTAD
YÐAR?
VINNUVEITENDUR!
HandklapSi nofu* af mörgum *ru haatlulefl ofl hmh ekkl
núHma hreinlwtiakröfum.
StuSliS aS faarrl voikindadöflum atarfafólk) y8ar og not*
ið papplrahandþurrkur; þatr *ru ótrúlefla ÖDÝRAR ofl
PÆGILEGAR i notkun.
SERVA-MATIC
STEINER COMPANY
LEITIÐ UPPLÝSINGA
aPPÍRSVÖRURh/f
SKÚL&GörU 32. — SfMI 2153«.
Vikuaflinn nam 69.147 málua
og tn. og var heildaraflinn orðiwt
sl. laugardag 2.592.905 mál og tB.«
sem skiptast þannig eftir verkun
araðferðum
í salt 350.849 upps. tn. • |
í frystingu 39.881 uppm. tn.
í bræðslu 2.202.175 mál.
Helztu löndunarhafnir eru þess«
ar:
Siglufjörður
Raufarhöfn
Vopnafjörður
Seyðisfjörður
Neskaupstaður
Eskiijörður
282.833 m.o.t,,
424.002 m.o.t
232.123 m.O.t
451.782 m.o.t,
382.001 m.o.t,
208.026 m.O.tí
Framhald á síðu 13.
Stolið 14.500
kr. hjá FAL
Reykjavík, 12. okt. ÓTJ.
BROTIST var inn hjá bifreiða<
leigunni Fal, að Rauðarárstíg SH,
í fyrrinótt, og istolið þaöan 14.500
kr. í peningum.
Hákon Ðaníelsson starfsmaðup
lijá Fal, varð fýrstur var við þjó£-
naðinn, er haiin kom til vinnu 1
morgun, og gerði þegar lögregl-
unni aðvart. Svo virðist sem þjóí-
urinn hafi brotið rúðu á fram-
hlíð hússins, teygt sig þar inn,
og opnað glugga sem hann svo
sjálfur skreið inn um.
Hann hefur rótað töluvert I
skjölum og öðru á skrifstofunnf,
og tekist að „skrapa saman“ fyrr-
nefnda fjáruphæð. Ekkert var
eyðilagt, nema rúðan og eina
skápur, og engu öðru fémætu var
stolið. *.
(Málið er í rannsókn. ^
2 14. október 1964 - ALÞÝDUBLAÐIÐ