Alþýðublaðið - 14.10.1964, Blaðsíða 5
Þingfréttir
í stuttu máli
Eeykjavík, 13. okt. EG.
Lagt hefur verið fram á Alþingi
Stjórnarfrumvarp til breytinga
á 2. mgr. 265. greinar hegningar
laga. Frumvarpið gerir ráð fyrir I
að hámark tjóns, sem þar um ræð J
ir verði hækkað úr eitt þúsund
krónum í þrjú þúsund krónur.
Lögð hefur verið fram þings-
ályktunartillaga frá nokkrum fram
sóknarmönnum um stórvirkjunar-
og stóriðjumál. Samkvæmt tillög-
unni á sjö manna þingkjörin nefnd
m.a. að kynna sér athuganir stór-
iðjunefndar.
Lögð hefur verið fram þings-
ályktunartillaga frá Þórarni Þór-
arinssyni (F) o. fl. um endurkaup
Seðlabankans á framleiðslu og
Jiráefnavíxlum iðnaðarins.
Tveir ungir
menn slasast
Reykjavík, 12. okt - ÓTJ
TVEIR ungir menn slösuðust í
hörðum árekstri á mótum Réttar-
holtsvegar og Bústaðavegar kl. 5
á sunnudagsnóttina. Volkswagen-
bifreið var að aka inn á Bústaða-
veginn, þegar Opelbifreið ók af
miklum krafti inn í hlið hennar. ,
Báðar bifreiðarnar skemmdust
mikið, og einn farþegi í hvorri
þeirra meiddist. Meiðslin munu þó
ekki hafa verið mjög alvarleg, því
að báðir eru komnir heim til sín.
Þó er óttast að annar kunni að
hafa meiðst eitthvað innvortis.
Hvorugur ökumannanna var und-
ir áhrifum áfengis.
Fita og önnur óhreinindi renna af diskum og
glösum. Ef þér notið uppþvottagrind og vel
heitt vatn, þá þarf hvorki að skola né þurrka,
en leirtauið verður skýlaust og gljáandi. Hvílík-
ur vinnusparnaður!
SÁPUGERÐIN FRIGG
Þingforset
ar
A fundi Alþingis í dag voru kjörn
fr embættismenn þingdeilda, for-
setar, varaforsetar og skrifarar.
Þá var einnig kosin kjörbréfanefnd
sameinaðs þings.
Forseti neðri deildar var kjörinn
Sigurður Bjamason (S), en fyrsti
varaforseti Benedikt Gröndal (A)
Annar varaforseti var kjörinn
Jónas Rafnar
Skrifarar neðri deildar voru
kjörnir Matthías Bjarnason (S) og
Sigurvin Einarsson (F).
Forseti efri deildar var kjörinn
Sigurður Óli Ólafsson (S), fyrsti
varaforseti Eggert G. Þorsteins-
son (A) og annar varaforseti Þor-
valdur Garðar Kristjánsson (S).
Skrifarar efri deildar voru kjörn
lr Bjartmar Guðmundsson (S)
Og Karl Kristjánsson (F).
Ólafur Thors aldursforseti þing-
manna í neðri deild stýrði fundi
þar unz forsetakjör hafði farið
fram. en Arnór Sigúrjónsson stýrði
fundi efri deildar áður en forséti
var kjörinn.
Á fundi. sameinaðs. þings var
kjörin kjörbréfánéfnd. Kosningu
hlutur Einar Ingimlindarson (S)
Mátthías-Á.>l^athieseii; (S), -Egg-‘
ert G. Þorsteinsson (A), Ólafúr
Jóhannesson (F) og Alfreð Gísla-
son (K). Hlutkesti réði því að
Alfreð hlaut sæti í nefndinni, en
ekki Björn Fr. Björnsson, annar
maður á lista framsóknar.
Þá voru Skúli Guðmundsson (F)
og Ölafur Björnsson (S) kjörnir
ritarar sameinaðs þings.
T«k aV mér hvers konar
ar úr oe á ensku
EIÐUR 6UÐNAS0N,
HJggiltur dðmtúlkur og skiala-
býffandi.
Skinholti 51 — Sími 32933.
Sjötugur i dag:
Sjötúgur er í dag. Friðfinnur Á. | svo kunnugur Friðfinni frá þess-
E. Kjasrnested, skipstjóri Baugs- ■ um árum að ég geti langt mál um
veg 11 hér í borg. Friðfinnur er I það skrifað, því kunningsskapur
sonur hjónanna Elíasar Kristjáns } okkar hefst fyrir röskum 16 árum.
Friðfinnssonar: og konu hans Jó-' Þá gerðist Friðfinnur starfsmað-
hönnur Jónsdóttir frá Kirkjubóli (ur hjá Vitamálaskrifstofunni.fyrst
í Skutulsfirði. Friðfinnúr er næst sem stýrimaður og síðan skip-
yngstur 5 barna þeirra hjóna,
faéddur á Stað í Aðalvík, var tek-
inn. í -fóstúr og alinn. upp af heið-
urs hjónunum, Kristínu Sveins-
dóttur og Guðbrandi Einarssyni, í
sömu sveit.
Hugur Friðfinns hneigðist
snemma að sjó, eins og margra
1 Vestfirðinga, stundaði um ára bil
sjó á bátum og síðan togurum,
fór í Stýrimannaskólann, 1920-21
lauk þaðan farmannsprófi, og
sigldi síðan ýmist sem stýrimaður
og skipstjóri fram á stríðsárin,
stundaði alla vinnu sem fékkst í
landi milli þess sem hann var á
sjónum, Verkstjóri var Friðfinn-
ur hjá Bretum hér á stríðsárunum
við byggingu Reykjavíkurflugvall-
ar.
Ég sem þessar línur rita er ekki
stjóri á dýpkunarskipinu Gretti
Ég held ég megi segja að þar hafi
Finni vinur minn, skapað sér virð
ingu og vináttu yfir og undir
manna sinna, með ljúfmannslegri
framkomu og góðri þekkingu á
í verkum sem honum hafa verið
falinn að annast.
Friðfinnur er giftur, Annie,
(Tall) enskri merkiskonu, frá Hull
og eiga þau 4 börn, Harrý, Krist-
ínu Ödu, Elísu og einn son eign-
aðist Finni fyrir hjónaband. Svav-
ar garðyrkjumann í Reykjavík.
Allt eru þetta mannvænleg
börn, barna börnln orðin 18, og er
Finna þar vel ttt vina og í mörg
horn að líta.
Þau hjónin Friðfinnur og Annie
eru nú á æskustöðvum hennar á
Friðfinnur A. E. Kærnested t
þessum merku tímamótum i lb|l
þeirra beggja, og finnst mér íarjt,
vel á því. | ‘
Börnin tengdabörnin og ban?»’
börnin, óska þér hjartanlega tl
hamingju með afmælisdaginn og
vona að ferðin verði ykkur báð
um til gleði og góðs, lifðu heill,
— Steml
Áskriffasíminn er 149GÍ
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 14. október 1964