Alþýðublaðið - 17.10.1964, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 17.10.1964, Blaðsíða 8
ÞETTA SEM KALLAÐ ER LIST. Fáeinar athugasemdir um kvikmyndagerð ættu að rúmast í þessum málskrafsmiklu minning- um. Að sönnu hafa ýmsar snotrar bækur verið skrifaðar um þetta efni; en þær hafa flestar þann á- galla, að boða einhliða kvikmynda smekk höfundar síns. Slík bók ætti ekki að vera nema handbók um tækni, um handverkið í iðninni. Þar fyrir utan ætti greindum nem- anda að notast sín eigin listgáfa. Áhugamaður með sköpunargáfu þarf ekki á að halda nema beina- grind tæknikunnáttu. En lista- manni er bezt að njóta fuilkomins frelsis að gera það sem er óvana- legt; því eru fyrstu myndir margra leikstjóra frumlegar og ferskar. Kenningasmíð um línu og rúm, byggingu, hraða osfrv. kann að vera góð út af fyrir sig, en kem- ur leik ekki við; og henni hættir til að stirðna í kreddu. Einföld viðhorf eru ævinlega bezt. Eg hef fyrir mína parta and- styggð á myndbrögðum: mynda- töku frá sjónarhól kolamolans í arninum, eða þegar vélin fylgir leikara gegnum hótelfordyri eins og hún væri á reiðhjóli. Slíkt þyk- ir mér ódýrt og ómerkilegt. Ef áhorfandi þekkir sviðsmyndina þarf hann engin leiðinda ferðalög fram og aftur um tjaldið til að sjá leikarann fara stað úr stað. Slíkir tilburðir draga úr hraða og eru leiðir og óþægilegir; sliku er stundum ruglað saman við þetta sem kallað er „list”. Þegar myndavélin er lögð á gólfið, eða þegar hún flögrar kringum nasa- götin á leikaranum, — þá er það vélin, sem leikur en ekki leikar- inn. Vélin ætti ekki að trana sér fram. Timasparnaður er enn sem fyrr höfuðdyggð í kvikmyndagerð. — Þetta vissu þeir báðir Eisenstein og Griffith. Snögg klipping og myndskipting eru undjrstaða kvik- myndatækni. Eg furða mig á sumum gagn- rýnendum sem kalla myndatöku- tækni mína gamaldags, finnst ég ekki fylgjast með tímanum. Hvaða tíma þá? Tækni mín byggist á mínum eigin niðurstöðum, mínum eigin viðhorfum og rökum; ég skipti mér ekki áf því sem aðrir gera. Ef maður ætti að „fylgjast með tímanuiú”' í listum væri Rembrandt sveitamaður í saman- burði við Van Gogh. Fyrst verið er að tala um kvik- myndagerð, kynnu fáein orð að koma sér vel fyrir þá, sem ætla að ráðast í súper-dúper-stórmynd. Satt að segja eru slíkar myndir auðveldastar viðfangs allra kvik- mynda. Til þeirra þarf hvorki í- myndunarafl né hæfileika til leiks eða leikstjórnar. Allt og sumt sem á þarf að halda er tíu milljón dollarar, fjölmenni, búningar og viðamiklar sviðsmyndir; svo er hægt, í algleymi líms og lérefts, að flota Kleópötru niður Nílar- fljót, fylkja tuttugu þúsund aukaleikurum yfir Rauðahafið, eða blása niðúr veggi Jerikó- borgar; þetta er allt komið undir hagleik byggingamanna. Yfirmar- skálkurinn situr í sínum stjórn- arstól yfir handriti sínu og kort- um meðan liðþjálfar hans géys- ast í kófinu yfir landið og etja fram fylkingum; eitt blístur merkir „tíu þúsund inn frá vin-' stri”, tvö blístur „tíu þúsund frá hægri“, þrjú blístur ,allir áfram nú, og á þá!” Flestar þvílíkar myndir fjalla um súpermann. Hetjan getur hoppað, stokkið, skotið, barið og elskað alla aðra í myndinni sund- ur og saman. Með þessu móti eru öll mannleg vandamál leyst, nema vandinn að hugsa. LEIKHÚSMENNSK. Fáein orð líka um leikstjórn. Sálfræðilegur skilningur skiptir mann mestu við að leiðbeina leik- urum í leik. Nýr leikari kann að bætast í hópinn, þegar myndin er langt komin; jafnvel ágætur leikari kann að verða óstyrkur í nýju umhverfi. Þá getur lítillæti leikstjórans komið honum vel, eða svo hefur mér oft reynzt. Þó ég vissi vel hvað ég vildi, vék ég mér að nýja leikaranum, sagði honum ég væri þreyttur, áhyggju- fullur og í vandræðum með fram- haldið. Fyrr en varði var hann kominn yfir óstyrkinn og farinn að hjálpa mér; og ég náði fram góðum leik. Leikritahöfundurinn Marc Con- nelly orðaði eitt sinn þá spurn- ingu, hvort viðhorf leikskáldsins ætti fremur að mótast af vití- munum eða tilfinningu? Eg held tilfinningar skipti meira máli a£ því þær eru áhrifameiri í leik- húsi; leikhúsið er samið að til- finningu mannsins, sviðið, for- sviðið og rautt fortjaldið; öll hreyfing byggingarinnar miðar að tilíinningunum. Auðvitað eiga vitsmunirnir sinn þátt, en hann skiptir minnu. Þetta vissi Tsje- kov, og Molnár, og mörg leikskáld önnur. Þeir vissu líka skil á því hve sjálf leikhúsmennskan skiptir miklu máli: liún er undirstaða alls leikskáldskapar. Leikhúsmennska er að mínum skilningi dramatísk framsetning- argáfa lfet augúnablksins. — •Bók er lokað snögglega; kveikt í sígarettu; skothvellur utan sviðs, hróp, dynkur; áhrifasterk inn- ganga eða útganga. Þetta kann að virðast smávægilegt; en af þessum toga er skáldlist leikhússins spunn- in — sé rétt og smekkvíslega á öllu haidið. Óleikræn hugmynd er lítils verð; aðalatriði er að ná áhrifum. Leikhúsmaður getur náð áhrifum úr engu efni. Til dæmis um þetta get ég nefnt forleik sem ég setti á svið með mynd minni Parísarkonu í New York; en í þann tíð voru slíkir forleikir hafðir með öllum löngum myndum, og stóðu um það bil hálftíma. Eg hafði hvorki hand- rit né söguefni; en ég mundi eft- ir viðkvæmnislegri litprentun «em var kölluð „Beethovensónat- an.” Myndin sýndi vinnustofu listamanns; nokkrir bóhemar, sátu þar í dapurlegu hálfrökkri og hlýddu á fiðluleik. Eg setti þessa mynd svo á svið, með eins eða tveggja daga fyrirvara. Eg fékk mér píanóléikara, fiðluleikara, dansmenn og söngv- ara, og notaði mér svo þau leik- brögð sem mér voru tiltæk. Gest- irnir sátu í hægindum eða á gólf- inu og dreyptu á viskí, snéru baki við áhorfendum og skeyttu þeim engu. Fiðlarinn lék sónötuna; þeg- ar varð þögn heyrðist fyllfraftur brjóta. Þegar sónatan var leikin, dansararnir höfðu dansað og söngmaðurinn sungið Auprés de ma blonde voru sagðar tvæí’ setn setningar. Einn gesturinn sagði: „Klukkan er orðin þrjú, ég verð að fara.” Og annar svaraði: „Já, við þurfum allir að fara”; menn skröfuðu þannig að vild meðan þeir gengu út. Þegar sá -síðasti var farinn sína leið kveikti gest- gjafinn sér í sígarettu og fór að slökkva ljósin í vinnustofurini, en á götunni fyrir utan heyrðist sungið. Og þegar sviðið var orðið aldimmt, nenia tunglsljós inn um glugga fyrir miðju, fór húsráðandi einnig lít; og tjaldið féll hægt og hægt meðan söngurinn smádvín- aði og hvarf. Meðan þessu fór fram hefði mátt heyra saumnál detta í salnuín. í heilan hálftíma var ekkert sagt: ekkert gerðist á sviðinu nema fá- ein venjulegt vaudeville-atriði. Samt voru leikendur kallaðir fram níu sinnum á frumsýningunni. TILFINNINGAMÁL. Eg fæ ekki af mér að láta sem. ég hefði gaman af Shakespeare íl leikhúsinu. Tilfinningar mínar- eru bundnar nútimanum. Shakes

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.