Alþýðublaðið - 04.11.1964, Blaðsíða 8
' * f ' ,t 1
-T; Aí; *‘r'-'nii^i3ghiíií}f'W,,r'*’-ri.',yjLÍ$*r' 1
í í'^', í »', íi;-’í?zts@</tó*!*-*7/'//;'t;‘í;,f,'í7?if-/>ir ■ ,^í,*
:■ wmp&mm $mm •<
’+’;' > ? ',, , , *■ ’ 7 iajjajgaasaaa;
'r.-A-V.i/v/>-y.y.;-v^v.-V.v-/';Ví.^yiv!'/->.'7SÍ05*raw$*Stvvyí.v7.?iV.v-'-,.-AV.V7?;>-V.v«Ss!^MSSSSW5SS89ara
•/?/•'> '•'» í r ’ $ " -/ / ' 77
7> &'?. ••/-- /r>V v 2 2 / ;/-Æ v,- .>■./• •••, &&&
Viv'V'^-r'V"/-'- Íi
- , v /7//** */>/;<■>-/-.>»Vvíí 7,*•'■*••>/ >-/ -//•
/Wv
Johnson flytur kosningaræðu.
anlega litríkur hópur og kosninga
spjöldum er lyft í takt við hljóm-
list lúðrasveita, og setur þetta allt
óneitanlega svip á fundinn. Ekki
má gleyma hávaðanum, sem var
ærandi á stundum, einkum þegar
fundarmenn hrópuðu í kór: „Við
viljum Johnson” hvað eftir ann-
að. Lá þá stundum við að þakið
iyftist af húsinu.
Meðan beðið var eftir forsetan-
um voru ýmis skemmtiatriði höfð
í frammi Söngvarar sungu þjóð-
lög og hljómsveit Lionels Hamp-
ton lék nokkur lög. Leikkonan
Dorothy Lamour fór upp á ræðu-
pallinn og var forsöngvari, þegar
allur skarinn söng „Hello Lynd-
on” undir laginu „Hello Dolly.
Fundurinn hófst svo á því, að
guðsmaður las bæn, en síðan söng
blökkumaður þjóðsöng Bandaríkj
anna, en hér er þjóðsöngurinn
ævinlega sunginn á kosningafund-
um. Fundarstjóri kynnti síðan
ýmsa framámenn og frambjóðend-
ur flokksins í Maryland og fögn-
uðu fundarmenn þeim með lófa-
Tawes bauð forsetann velkominn.
Tawes fékk ekki gott hljóð, enda
fundarmenn orðnir all óþolinmóð-
ir að bíða eftir forsetanum. Várð
hann því að stytta ræðu sína
verulega. Næstur talaði McKeldin,
borgarstjóri í Baltimore. Þóttu
það töluverð tíðindi að hann lýsti
yfir stuðningi við Johnson,1 — en
hann hefur jafnan áður stutt re-
públikana og útnefndi Eisenhow-
er á flokksþinginu 1952. Johnson
hlýddi á ræðu borgarstjórans með
athygli og klappaði oftar en einu
sinni og tóku þá fundarmenn
hressilega undir.
I. Ð. Tydings, sem er í fram-
boði sem öldungadeildarþingmað-
ur fyrir Maryland kynnti forset-
ann fyrir fundarmönnum. Johnson
hóf ræðu sína á því að þakka
borgarstjóranum stuðning við sig
og hrósa ýmsum frambjóðendum
demókrata í Maryland. Hánn tal-
aði góða stund blaðalaust, áður
en hann tók til við ræðuna, sem
dreift var fjölritaðri meðal frétta-
manna á fundinum. í ræðunni
Baltimore og M'ashington, DC.
25. okt.
Johnson forseti hélt mikinn
kosningafund í Baltimore, Mary-
land í gærkvöldi. Fundinn sóttu
9-10 þúsund manns, en þúsundir
manna fögnuðu forsetanum er
hann ók frá flugvellinum og inn
í borgina. Hann kom til Balti-
more með þyrlu frá Washington,
en hann hafði allan daginn verið
á kosningaferðalagi og var búinn
að halda margar ræður, þegar
hingað kom. Eins og íslendingar
sjálfir þekkja og kunnugt er af
fréttum, er Johnson síður en svo
feiminn við fólkið, heldur gerir
hann sér far um að komast í
snertingu við sem flesta og heilsa
eins mörgum með handabandi og
honum framast er unnt. Johnson
lagði af stað frá flugvellinum í
lokuðum bíl, en fiutti sig yfir í
opinn bil á leið til borgarinnar,
og svo mikill var hamagangurinn
í kringum hann, að aðdáendur
hans slitu tölur -af fötum hans
hvað þá annað.
Á flugvellinum mætti fámenn-
ur hópur fylgismanna Goldwat-
ers. Einn úr hópnum reyndi að
kasta eggi í Johnson, en var ekki
hittnari en svo, að eggið lenti í
vesælum Ijósmyndara. Vegna þess
hve oft var stanzað á leiðinni á
fundinn varð Johnson rúmlega
klukkutíma á eftir áætlun, en að-
dáendur hans létu það ekki á sig
fá.
Fundurinn var haldinn í gríð-
arstórum sal í eigu heimavarnar-
liðsins í Baltimore. Skyldi hann
hefjast klukkan 8, en löngu fyrir
þann tíma var salurinn orðinn
troðfullur og lögreglumenn stóðu
við allar dyr og vörnuðu mönn-
um inngöngu. Þúsundir urðu því
að hlýða á ræðuhöldin um há-
talara hússins og fyrir utan það.
Fundarsalurinn var skreyttur
borðum og kosningaspjöldum. —
Þúsundir stuðningsmanna J,ohn-
sons báru spjöld og merki, sem
hvöttu menn til að styðja þá
Johnson og Humphrey. Fyrir
enda salarins var borði, sem á
var letrað: Velkominn, herra for-
seti, og fyrir neðan var líkan af
Sámi frænda.
Það er töluvert ævintýri að
sitja bandarískan kosningafund
fyrir þann, sem ekki hefur gert
það áður. Fundargestir eru óneit-
taki og hrópum, í hlutfalli við vin-
sældir hvers og eins.
Þegar forsetinn sjálfur gekk í
salinn ætlaði allt um koll að
keyra af fagnaðarláfum. Fólkið
þusti fram til að freista þess að
taka í hönd hans, eða bara snerta
hann, og tugir, ef ekki hundruð
öryggisvarða fengu ekki rönd við
reist.
Ríkisstjórinn í Maryland, I. M.
New York, 27. okt. — EG.
Það reyndist sannarlega ekki
heiglum hent að komast inn á
kosningafundinn hjá Gpldwater í
Madison Square Gardens og kom-
umst við íslenzku blaðamennirnir
að því fullkeyptu áður en yfir
lauk.
Er við vorum i Washington fyr-
ir nokkrum dögum, gengum við á
fund Goldwatersmanna þar í borg
og fengum hjá þeim blaðamanna-
skírteini til að komast á umrædd-
an fund. En þegar á hólminn kom
hér í New York, voru dyraverð-
ir fúlir og vildu ekkert með okk-
ur hafa og sendu okkur raunar
frá einum inngangi til annars og
gekk á því í rúma klukkustund.
Vorum við orðin harla vondauf að
komast inn, þegar við loks hittum
konu, sem ekki hafði tapað öllum
sönsum í þeim gauragangi, sem
þarna var. Lét hún okkur hafa
miða, sem veittu okkur rétt til
að ramba um húsið og fylgjast
með.
Nafnið Madison Square Gardens
gefur til kynna, að umræddur
staður gæti verið skemmtigarður,
réðist Johnson harkalega á Gold-
water fyrir fullyrðingar hans um
að varnarmálin væru í ólestri, því
varnarmáttur Bandaríkjanna hefði
aldrei verið meiri en nú. Þá fór
hann hörðum orðum um Goldwat-
er fyrir að hafa greitt atkvæði
gegn mörgum fjárveitingum til
landvarna. Jolinson hefur það
fyrir sið, að nefna Goldwater al-
Pramh á 13. SÍðU.
eða eitthvað þvíumlíkt, en svo er
þó ekki, heldur er þetta aðeins
venjulegur samkomusalur, gríðar-
stór, sem rúmar 18 þúsund manns
í sæti. Eru oft liáðar þarna hnefa-
leikakeppnir og þvíumlíkt.
Þegar inn kom var húsið að
mestu orðið fullt, þótt enn væri :
kiukkutími unz Goldwater skyldi
byrja að tala. Velflestir, nema
fína fólkið sem sat í fremstu og
dýrustu sætunum, báru einhvers
konar merki eða spjöld eins og
hér er S’^’r 4le>ranirnar voru
margvíslegar, og skulu nokkrar
nefndar liér af handahófi: Serbar
styðja Goldwater. Farðu að pakka
saman, Ladybird, Goldwater fer
að flytja inn. — í hjarta þínu
veiztu að liann hefur rétt fyrir
sér, — en við þetta slagorð hafa
repúblikanar bætt við: En í hug-
anum efastu um það.
Skoðanakannanir liafa tvímæla-
laust gefið til kynna, að John-
son hafi gífurlega yfirburði, og
. þess vegna báru margir spjöld,
sem á stóð: Gallup spurði mjg
ekki. En aðrir báru spjöld, sem;
á stóð: Gallup spurði míg ekki
heldur.
Áletranirnar á skiltunum eru margs konar, eins og sést á þessari mynd. Mynd: EG.
8 4. nóv. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ