Alþýðublaðið - 15.12.1964, Page 1

Alþýðublaðið - 15.12.1964, Page 1
EKffitO' 44. árg. — Þriðjudagur 15. desember 1964 — 278. tbl. ____í--------- VARÐ ÚTI VIÐ HÉÐINSHÖFÐA Reykjavík, 14. des. — ÓTJ. LÍK af ungum mauni fannst neð'an við Héðinshöfða í Reykja- vík í gær og var augljóst, að liann hafði orðið úti. Talið er, að slysið hafi skeð sl. fimmtudag, en þá var hann gestur í húsi skammt frá, þar sem líkið fannst. Hafði hann verið allmik- ið ölvaður. Seint um nóttina hafði liann yfirgefið húsið, og ekki sést eftir það. Ekki var hans þó sakn- að, og engin leit hafin. Líkur benda til þess að hann hafi farið eftir götu sem liggur niður við sjó, farið of tæpt, og fallið fram af tveggja metra háum bakkan- um, sem er svellaður og illur yf- irferðar. — Hinn látni var ó- kvæntur. Eldur í báti Reykjavík, 14. des. — ÓTJ. ELDUR kom upp í Sædísi, RE 63 í nótt, þar sem báturinn ligg- ur, við Grandagarð. SlökkviliðlS var kvatt á vettvang unr 12-leytiff, og tókst fljótlega að slökkva eld- inn. Báturinn var mannlaus, þeg- ar eldsins varff vart, en nokkrir skipverjar höfffu veriff um borff fyrr um kvöldið. Eldsupptök eru ókunn. 20 stiga frost á Eyrarbakka Reykjavík, 14. des. — ÁG. ] SAMKVÆMT upplýsingum Veð- urstofunnar í dag, er útlit fyrir ÖldruB kona slasabist Reykjavík, 14. des. — ÓTJ. ÖLDRUÐ kona slasaðist á höfði er drengur á reiðhjóli ók á hana á Laugavegi um kl. 4 í dag. Ilún hafði verið á leið yfir göt- una, þegar hjóliff skall á henni, og fleygði henni í götuna. Dreng- urinn sem á hjólinu var virtist eiga erfitt meff aff gera sér grein fyrir því sem skeði. Hann telur sig hafa litið við, þegar bifreið gaf honum hljóðmerki, og ekkert vitað af sér fyrr en slysið varð. áframhaldandi norðlæga átt hér á landi. í dag snjóaði talsvert á Norðurlandi, og var þar 2-6 stiga frost. í gær, sunnudag var mikið frost víða á Suðurlandi. Á Eyrar- bakka mældist 20 stiga frost á mæla Veðurstofunnar. Er þetta nokkuð óvenjulegt þar eð frost er oftast mest í uppsveitum, en ekki við sjó. Veðurfræðingar segja, að þetta komi þó fyrir í stórum lágsveitum þar sem kalda loftið sígur fram. Svo mikil uppgufun var frá sjó á Eyrarbakka, að menn sáu þar ekki nema um 50 metra út á haf- ið Er slíkt fyrirbrigði algengt í heimskautalöndunum, og hefur einnig sést frá Akureyri. — Er þetta á máli veðurfróðra, kallað frostryk eða sjóreikur. Að skera laufabrauð hefur tíðkast um langa tíð hérlend- is og þá um jólin eingöngu. Hversu siðurinn er gamall er okkur ekki kunnugt, en vin* sældir hans fara vart minnk- andi. í sumum sveitum var farið milli bæja gagngert í þeim er- indum að skera laufabrauð og þá voru börnin að sjálfsögðu í meirihluta. — Hitt er svo annað mál, að fullorðnir kunna ekki síður að meta brauðið til áts, og eta það gjarnan með hangikjöti. Laufabrauðskurður reynir talsvert á hæfni fólks og hugmyndaflug, en mögu- leikarnir í munsturgerð eru ó- þrjótandi. Til eru sögur um það, að svo fagurlega hafi laufa brauð verið skorin að enginn hafi tímt að eta þau, en loks hafi þau molnað undan tímans tönn. Nafnið er vafalaust dregið af laufskurðinum, en venju- lega er munstrið skorið á þann hátt, að brauðið er brotið sam- an og skáskornir stuttir skurð- ir í brotið. Síðan er brauðinu flett og hinir vaff-mynduðu bitar brotnir yfir hvern annan. Á myndinni sjáum við unga Akurnesinga við laufabrauðs- skurð, en myndina tók Helgi Daníelsson. mWWWWWWMWWWiWMWtWWMW'MtWWWMWUWMWWMWMWiWWWV ISIENZKIR FIU6MENN VIOA FA FIUGVÖLL A ÁLFIANES Hafa að undanförnu rætt framtíð Reykjavíkurflugvallár Reykpavík, 14. des. - ÁG FÉLAG íslenzkra atvinnuflug- mauna hélt í dag fund, þar sem rætt var um Reykjavíkurf 1 ugvöll og framtíð hans. Eru flugmenn- Framsókn vill 220 millóna hækkun! Reykjavík, 14. des. — EG. í DAG hófst á Alþingi önnur umræða um f járlagafrumvarpiff ,/yrir árijð 1965. Yar frumvarpið .rætt á siffdegisfundi og kvöldfundi • í sameinuðu þingi. Jón Árnason Jformaður fjárveitinganefndar gerði grein fyrir þeim tillögum, sem nefndin stendur sameigin- lega að. Halldór Sigurðsson gerffi grein fyrir 220 milljón króna hækkunartillögum framsóknar- manna viff frumvarpiff, en Geir Gunnarsson gerffi grein fyrir til- lögum kommúnista. Framsóknarmenn leggja til að útgjaldaliffir fjárlagafrumvarps- ins verði hækkaðir um 220 mlllj- ónir, en gera aff venju ekki grein fyrir hvernig þess fjár skuli aflað. Jón Árnason (S) skýrði svo frá, að fjárveitinganefnd hefði hafið störf 19. október og hefði hún samtals haldið 37 fundi og afgreitt 525 erindi. Breytingartillögur þær, sem Framhald á 4. siðu irnir því mjög mótfallnir, aff pen- ingum verffi eytt til lagfæringar á Reykjavíkurflugvelli, en vilja aff framkvæmdir verði hafnar sem fyrst viff nýjan flugvöll á Álfta- nesi. Hugmyndir hafa komið fram um gerð nýrrar flugbrautar á Reykjavíkurflugvelli. — Hefur finnskur flugvallasérfræðingur verið hér á landi nokkurn tima og kannað möguleika í sambandi við framtíðarflugvöll fyrir Reykjavík. Nýja flugbrautin myndi, ef til kæmi, liggja frá vestri til austurs. íslenzkir flugmenn ’hafa lengi verið þeirrar skoðunar, iað fram- tiðarflugvöllur fyrir Reykjavík yrði að vera á Álftanesi. Telja þeir kostnaðinn við breytingar og lagfæringu á Reykjavíkurflugvelli það mikinn, ef bragð ætti að vera að lagfæringunum að slíkt borg- aði sig alls ekki. t sambandi við nýja flugbraut benda þeir á, að ekki yrði hægt að koma nauðsyn- legum aðflugs- og öryggisljósum fyrir. Segja þeir undirstöður brautanna á Reykjavíkurflugvelli orðnar svo lélegar, að völlurinn. Framhald á 13. síðu. Þrjú berkla- veikitilfelli á Húsavík Húsavík, 14. des. EMJ-GO. í LOK októbermánaðar skaut upp þremur berklatilfellum við unglingaskólann á Húsavík. TU- felli þessi voru hvorki alvarleg né smitandi, en rannsókn leiddí í Ijós, aff þau voru runnin fr» sama smitbera og berklaveikin sem Framh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.