Alþýðublaðið - 15.12.1964, Blaðsíða 2
4
II
k
Kitstjórar: GylfJ Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjórl:
Arnl Gunnarsson. — Ritstjómarfulltrúi: Elöur Guðnason. — Slmar:
14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aösetur: Alþýöuhúsið viö
Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald
kr. 80.00. — í lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandl: Alþýðuflokkurinn.
SKATTSVIKIN
SKATTSKRÁIN í Reykjavík vakti mikla
reiði síðastliðið sumar, sér í lagi hin stórfellda hækk
un útsvara Þó mun flestum skattgreiðendum hafa
sárnað mest, hve misjafnlega byrðarnar lögðust á
einstaklinga og ’hve augljóst var, að stórfelld skatt-
S'vik ættu sér stað.
Það er mál manna, sem gleggzt mega til
þekkja, að skattsvikin sé stórbrotnasta þjóðfélags-
óréttlæti, sem viðgengst hér á landi. Þau valda stór
felldu tjóni þeim, sem ýmist geta ekki dregið und-
an skatti eða vilja það ekki, og veita hinum óeðli
lega rúman fjárhag, sem bæði geta stolið undan
og gera það.
Núverandi ríkisstjórn hefur komið upp sér-
stakri eftirlitsdeild við skattstjóraembættið, og er
sú deild nýlega tekin til starfa. Mun starf hennar
þegar hafa sýnt nokkurn árangur, en á þó fyrst og
fremst eftir að leiða til betri framtala og réttlátari
skattlagningar í framtíðinni. Nú er í athugun að
gera þessa eftirlitsdeild sjálfstæðari í starfi, enda
bezt fyrir alla aðila, að hún heyri ekki í framtíð-
inni undir pólitískt framkvæmdavald. Þarf þessi
starfsemi að fá svipaða aðstöðu og dómstólarnir.
íslenzkt þjóðfélag getur því aðeins staðizt, að
landsfólkið beri traust til yfirvalda og allir hljóti
sömu meðferð, sérstaklega hvað skattlagningu
snertir. Meðan skattsvik viðgangast ár eftir ár, án
IPANA.
hefur
Heildsölubirgair : O.JOHNSON & KAABER hf
þess að nokkuð sé að gert, hljóta fleiri og fleiri
landsmenn að grípa til þeirra sem sjálfsvörn. Þenn-
an vítahring verður að brjóta og er vonandi, að
stofnun skattaeftirlitsins og starfsemi þess reynist
mikilvægt skref í rétta átt.
•
Það mun án efa koma í ljós, að íslendingar eru
upp til hópa heiðarlegt og grandvart fólk, sem
mun fagna þeim umbótum, að meinsemd skattsvik-
anna verði, skorin burt.
Til viðbótar má gera ráð fyrir, að betri fram-
töl muni auka verulega tekjur ríkisins og forða
þjóðinni frá tugmilljóna álögum á komandi árum.
Áskriftarsimi
ALÞÝÐUBLAÐSINS
er 14900
Auglýsingasíminn er 14906
BILSTJORI SKRIFAR: „Und-
farið hefur umferðin í borginni
vcrið ákaflega viðsjál, og það hcf
vr vægast sagt, ekki verið
skemmtilegt að hafa bifreiðaakst-
ur 'að atvinnu. Það kemur áþreif
aníega í ljós, þegar snjór er á
götum, hálka og ófærð, hversu
umferðarmenning og aðgæzla er á
lágu stigi hjá okkur íslendingum.
Mar.n bókstaflega furöar á þvíf
hvernig menn baga sér í umferð-
inni.
FYRIR NOKKRUM DÖGUM
var ég að aka austur Suðuríands
braut á móts við Sogamýri, allt í
einu sviptir fólksbíll sér út á
vitlausan vegarhelming og ekur
greitt beint á móti mér. Þegar
hann nálgast reynir liann, á mikl
um liraða og á síðusíu stundu að
sveigja inn á sinn rétta vegar-
helming, en spólar þá á snjó-
hryggnum, en með naumindum
tekst mér að sneiða hjá honum.
Eidri maður sat við stýrið á fólks
bílnum, og veifaði hann flissandi
til mín hendi um leið og ég barð
ist við að koma bílnum mínum
aftur upp á brautina.
EF LÖGREGLAN hefði verið
_MIII|l||llll||||||||||J|||||||||||||||||||||(|||||||||||||||||||||||l|||||||ll||,,|,,,|l|,,,,|||,,,|l,,||lll||l|l|||||||l|||||||||||||||||,|||||}
= 3
★ Bílstjóri skrifar um dæmafátt framferði í umferðinni. I
ic Atburður á Suðurlandsbraut — og annar á Hring- 1
\ braut. 1
ic Gangandi fólk áttar sig ekki á erfiðleikum bifreiða í 1
[ hálku.
ic Slegið slöku við kennsluna. ,
a
3
■ - . 3
3
MiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiimmimiiiiiiiiniuiiiim
þarna nærstödd, hefði ég kæbt
þennan ökuníðing. En svo var
ekki, og enga sönnun hafði ég
svo að við þetta sat. En það þætti
mér ekki ólíklegt, að þessi maður
ætti eftir að í'inna fyrir sínum
glannaskap og ábyrgðarleysi.
AÐALTILEFNIÐ TIL ÞESS AÐ
ég sendi þér þessar línur er þó
qkki þessi atburður heldur sú
staðreynd( að gangandi fólk virð-
ist ekki átta sig á því, þegar ó-
færð er og hálka, að við bifreiða-
stjórar eigum miklu færri tæki-
færi til að forða slysum heldur
en þegar færð er góð. Fólk steklc-
ur fyrir bifreiðarnar, hleypur
snögglega fyrir þær og skýzt fram
hjá þeim. En þegar hált er, er
alveg víst, að bíllinn rennur við
hemlun miklu lengri leið.
ÞAÐ ER ALVEG SÝNILEGT
að fóik áttar sig ekki á þessu. Ef
það gerði það mundi það fara
miklu varlegar en venjulega Og
taka ekki eins mikla „sjansa".
Ég varð nýlega vottur að Því að
stúlka stökk út á götuna allt í
einu, en margar bifreiðir komu
hver á eftir annarri. Fyrsti -bíjl
inn snarhemlaði og jrann til upp
á gangstétt og þarna skall næsti
bí'll á þann fyrsta og þriðji bíll-
inn á þann bíl. Stúlkan veifafJI
brosandi alveg eins og fífl-
MÉR FINNST EKKI nógu mik-
ið um aðvaranir í útvaiTÍnu þegar
færðin er eins viðsjál og nú hef-
ur verið undanfarið. Það á að aö-
vara fólk viðstöðulaust, og mér
finnst ekki að þið blaðamennirm
Framhald á siðu 10.
2 15. des. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ