Alþýðublaðið - 15.12.1964, Blaðsíða 6
BAK VID TJÖLPIN
STÓR verzlun í New York, sem eingöngu selur alis konar
kjöltudýr, hefur nýlega sent frá sér fallegan auglýsingapésa, þar
sem m.a. getur að líta svolítandi upplýsingar:
„Vanti yður eitthvert algjörlega óvenjulegt kjöltudýr, þá spyrj
ið um hana ungfrú Mortimer okkar“.
— ★ —
REISA á styttu af Sir Winston Chur-
chill fyrir framan brezka sendiráðið í Was~
hington og er það félagsskapurinn The
English Speaking Union, sem leggur til
peningana. Félagið hefur nú ákveðið að
svipta Churchill vindlinum sínum.
Myndhöggvarinn William MacVey ger-
ir styttuna og var hann búinn að gera hana
þannig, að Churchill hélt á staf og vindli
í hægri hendi, en hinni vinstri lyfti hann
hátt á loft og myndaði V-merkið.
Þótt erfitt sé að húgsa sér mynd Churchills án vindils, verður
svo að vera sem félagið segir, en ástæðan fyrir ákvörðuninni er
sú, að hinum vitru félagsforkólfum þótti klúðurslegt að láta stytt-
una hafa bæði vindil og staf í sömu hendi. — Spurningin er þá bara,
hvort Churchill hefur verið klúðurslegur öll þessi ár, án þess
að vita það.
- ★ -
BRIGITTE BARDOT hefur gengið í
þöglu herdeildina“, þ. e. a. s. flokk þess
fólks, sem krefst skilyrðislausrar þagnar af
starfsfólki sínu.
Ástæðan til þessa er sú, að fyrrverandi
þjónn hennar, Guido Albert, hefur birt
greinaflokk í frönskum og ítölskum blöðum,
þar sem gefnar eru alls konar „hugljúf-
ar“ lýsingar á ýmsum atriðum einkalífs
ungfrúarinnar. Hún hefur því ákveðið að
ráða enga persónu í sína þjónustu, utan að viðkomandi hafi und
ritað hátíðlegt og lögfræðilega rétt samið skjal, þar sem hann skuld-
bindur sig til algjörrar þagnar um allt það, sem viðkomandi per-
sóna kann að komast að í sínu fróðlega starfi.
— ★ —
Á KVENNAÞINGI, sem nýlega var haldið í Frankfurt og
fjallaði aðalega um húsnæðismál, sagði ein konan í umræðunum:
„Það vantar eitt í menntun arkítekta nútimans. Mánaðardvöl
hjá barnmargri fjölskyldu."
— ★ —
STERKI maðurinn í Hollywood, Dean
Mantin, er alæst grafnmetisæta. Fyrir
skömmu var matarhlé við kvikmyndatöku
og pantaði Martin þá stóran skammt af
rófum. Stjórnandinri Daniel Mann sat við
hliðina á honum og sagði háðslegur á ávip:
— Ég trúi nú ekki á allar furðusögurnar
um hina dásamlegu eiginleika rófna — og
einkúm ekki, að þær styrki sjónina.
Martin horfði Vorkunnlátur á hann:
— Segðu mér, Daníel, hefur þú nokkurn
tíma séð kanínu með gleraugu?
- ★ ~
MAÐUR stóð fyrir rétti um daginn sakaður um að hafa stolið
tivorki méira né' minna en 8 milljónum franka. Þegar dómarinn
spurði hann um ástæðuna fyrir því, að hann framdi afbrotið, fékk
tiann svarið:
— Ég var svangur, herra dómari.
Það hefur verið mikill sultur.
— ★ —
NÝJASTA Bitladellan úr Ameríku:
Fyrir eina 18 krónur er hægt að fá keypta vandlega lokaða
flösku, sem í er andi þeirra.
15. des. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐID
ca
| ELLEFU danskir handverks-
m menn, er starfað hafa í Scores-
H bysund á Grænlandi, tóku sér
H rétt fyrir mánaðamótin á hend-
; ar 300 kílómetra ferð á skið-
1 jm og með hundasleða til
: Meistaravíkur til þess að ná
■ ?ar í flugvél, er flutti þá heim
jj íil Danmerkur að halda jól. —
: Leiðin lá um fjöll og firnindi
og þeir fengu alit að 33 stiga
frost á leiðinni, en ferðin tók
þá alls fimm sólarhringa. 17
Grænlendingar hjálpuðu Dön-
unum á leiðinni og í förinni
voru 200 hundar, sem drógu
sleða, er á var póstur, matur og
annar farangur. Nokkra hand-
verksmennina kól nokkuð á leið
inni, en aðeins einn svo, að
hann varð af flugvélinni í Meist m
aravík, þar eð skipta þurfti um jj
umbúðir. Flugvélin, sem flutti
þá til Danmerkur, hafði kast-
að jólapósti í fallhlífum yfir jg
Scoresbysund og á Tobinhöfða. 1
Á myndinni sést leiðangur-
inn í áningarstað á leiðinni.
BRJÓSTMYIKINGAR MUNA
ÞAÐ SEM ÞEIR HAFA SÉÐ
EINFÖLD en mjög árangursrík
tilraun í Ameríku hefur sýnt, að
tveggja mánaða gamalt bam tek-
ur eftir því, sem það sér og man
það, sem það hefur séð. Spurn-
ingin um það hvernig og hvenær
barn verður sér meðvitandi um
umhverfi sitt er geysiveigamikil
í sambandi við tilraunir ail að
skilja hvernig mannsheilinn
þroskast. Ein kenning heldur því
fram, af heilinn byrji að þroskast
á þeirri stundu sem barnið fæð-
ist og sérkenni hvers barns eigi
eftir að endast þvi allt lífið.
Dr. Robert Franz við Western
Reserveháskólann í Cleveland hef-
Framhald á 10. síðu
-----...... nijuu ,,i hinni nyju
stöð Svía, Norðmanna og
Dana, er afla skal reynslu í
móttöku sendinga frá gervi-
hnöttum úti í geimnum. Stöð-
in er áðaUega byggð á
reynslu, sem fengízt hefur í
radíó- og stjarnfræðistöð
Chalmers tækniháskólans í
Gautabörg. Stöðin er í
sænska skerjagarðinum ná-
lægt Gautaborg.