Alþýðublaðið - 15.12.1964, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 15.12.1964, Qupperneq 7
Ævisaga Kennedys Thorolf Smith: JOHN F. KENNEDY Ævisaga. Setberg. Reykjavík 1964. SENNILEGA eru fáir eða engir menn á íslandi jafnfróðir um sögu Bandaríkjanna og Thor- olf Smith. Raunar er hann haf- sjór af fróðleik um alla stjórn- málasögu síðari alda, en það ber þó af, hversu vel hann hefur kynnt sér ameríska sögu. Fyrir fáum árum kom út eftir hann bók um Abraham Lincoln. Hlaut sú bók miklar vinsældir, enda var hinn mesti fengur að henni. Þar var dregin ógleymanleg mynd af þeim mikla stjóirnmálaskörungi ©g hugsjónamanni. Nú hefur Thorolf Smith dreg- ið aðra mynd af amerískum stjórnmálamanni, sem er miklu nær okkur í tíma, John F. Kenn- edy Bandaríkjaforseta, sem myrt- ur var í fyrrahaust. Það morð vakti slíkan harm um mestalla heimsbyggðina, að þess munu fá dæmi. í því sambandi skipti það ekki miklu máli, hvaða afstöðu menn tóku til stjórnmálastefnu Bandaríkjanna. Hér á landi orti ^3]aisla * • • • . sg ' J u 0P re **» THOROLF SMITH fólk úr öllum flokkum erfiljóð eftir Kennedy, og hygg ég, að aldrei fyrr hafi jafnmargir ís- lendingar ort eftir útlendan mann. Eg las einhvers staðar í útlendu blaði, að Kína og Suður-Afríka hefðu verið einu löndin, þar sem valdamenn hörmuðu ekki fráfall Kennedy, en fögnuðu því jafnvel, en vera má, að þetta hafi verið eitthvað orðum aukið. Bók Thorolfs segir frá ætt og uppvexti John F. Kennedys, af- rekum hans í Kyrrahafsstyrjöld- inni og stjómmálaferli. Auðvitað er frásögnin af forsetastarfi hans ýtarlegust, en fáir Bandaríkjafor- setar munu hafa átt við jafn mörg og erfið vandamál að etja og hann, bæði innanlands og ut- an. Inn á við átti hann í hörðum deilum við auðhringa og ofstæk- ismenn í kynþáttamálum, en hélt þar sitt strik af fullri festu og einurð, enda varð hann ekki vin- sæll af þessum aðilum. Út á við voru þó vandamálin enn alvar- legra eðlis, og einu sinni að minnsta kosti, haustið 1962, í Kúbudeilunni, hékk heimsfriður- inn og raunar örlög alls mann- kyns á bláþræði, en ábyrgðartií- finning amerískra og rússneskra stjórnmálamanna varð í það sinn vitfirringunni yfirsterkari, hvað sem síðar kann að verða. Þessi bók er bæði skemmtileg aflestrar og stórfróðleg. Hér er í hnotskurn yfirlit um heimsmál- HVAÐ* ÞORIR Sigurðsson veður- fræðingur lærði hjá norsk- um, bæði að spá um veður og ejnnig að segja á spilin. Spámannshæfileika hans skulum við láta liggja milii hluta, en bridgekunnátla hefur hahn sýnt og sannað, eins og hún getur verið bezt héí á landi. í Noregi spil- aði Þórir löngum með beztu mönnum þeirra, enda fór svo að þegar hann lauk námi og hóf störf hér heima, þá leið ekki á löngu, þar til hann hafði krækt sér í íslandsmeistaratitil í brídge. Síðan hefur Þórir vérið í röð fremstu manna og í landsiiðið komst hann í ár og spilaði á Norðurlandamótinu í Osló í sumar. Þórir spilar Acolsagnkerfið og nú skulum við hjá hvernig hann leysir eftirfarandi verkefni. Tvímenningskeppni, allir utan hættu og skipulega frásögnin um þau, sem sagnir hafa gengið Vestur 1 hjarta, Norður: pass, Austur: 2 hjörtu, er til á íslenzku. Og auk þess er Suður: pass, Vestur: pass, Norður: ???*? Hvað segir þú í norður me3 bókin mikils virði sem persónu- eftirfarandi spil b) S: Á-G-6 saga. Myndin af Kennedy, hin- a) S: Á-6-4 c) S: G 10-8-7-5 um alþýðlega aristókrat, er skýr H: K-9-4 H: D-9 7 H: 8 og ljóslifandi. Það er varla unnt T: D-10-7 3-2 T: K-D-8-5 T: K-D-10-8-5 annað en að fá mætur á mann- L: D-6 L: 10-8-5 L: D-7 inum Kennedy eftir lestur þess- e) S: K-4 d) S: Á-6 arar bókar. Eg tel alveg víst, að H: 10 8-7 H: K-9-7-6 hún muni njóta sömu vinsælda T: Á-D-8-6-5 T: Á-10-8-5 og bókin um Lincoln. L K-8-3 L: D-8-6 Ölafur Hansson. H.A.B. H.A.B. H.A.B, HAPPDRÆTTI ALÞÝÐUBLADSINS Það er á Þorláksmessu, sem dregið verður í H.A.B. Tíminn líður óðum. Salan er í fullum gangi. VINNINGAR eru: t - Rambler-bifreið, verðmæti kr. 240.000,00. Land Rover-bifreið, verðmæti kr. 138.000.00. Húsgögn og heimilistæki, 2 vinningar, kr. 50.000,00 hvor. Munið að koma á Hverfisgötu 4, og kaupa miða strax, annars getur það orðið of seint. — Það er ekki oft, sem svona tækifæri bjóðast, HAPPDRÆTTI ALÞÝÐUBLAÐSINS a) b) c) d) e) Svör við „HVAÐ SEGIR ÞÚ“: Dobla. Ég tel líkur á því, að við verðum varla nema einn niðv.r og jafnvel þótt spilið sé doblað, þá er það ekki nema 100, sem er betra en bútur hjá þeim. Segi makker þrjú lauf, þá segi ég þrjá tígla. (Ég dobla líka. St. G.). Dobla. Ég tek á-móti öllum litum-og engin sögn makkers ætti að koma við mig. (Mér lízt aðeins ver á að dobla núna, en geri þao samt með hálfum huga. St. G.). Þrír tiglar. Ég segi ekki tvo spaða, vegna þess að ég vil heldur spila háspilasterkari litinn, jafhvel þótt sagnstigið sé einum hærra. (Tveir spaðar er mitt val. Fari andstæðingamir að dobla, þá er skárra að flýja í lægri lit en haerri. Að flýja í þann hærri getur kostað eitt sagnstig. St. G.). Pass. Þetta eru fyrst og fremst varnarspil. (Ég held ég myndi freistast til þess að dobla. Við ættum að hafa einhvern möguleika í tveimur gröndum, þremur laufum eða þremur tíglum og ef við getum ýtt þeim í þrjú grönd, þá lízt mér miklu betur á spilið. Makker á að vita, að ég hef ekki mikinn áhuga fyrir spaðalitn- um, þar sem ég strögglaði ekki strax á einum spaða. St. G.). Dobla. Ef makker segir tvo spaða, þá segi ég þrjá tígla, en ef hánn segir þrjú lauf, þá segi ég pass. (Ég er sammála doblinu. Hitt cr annað mál, að -ef makker segir tvo spaða, þá spila ég það. því hann getur ekki búizt við sagnfærum spaða hjá mér, fyrst ég sagði ekki strax. St. G.). vantar unglinga til að bera blaðið til áskrit- enda í þessum hverfum: Hverfisgötu Bergþórugötu Högunum Barónsstíg Afgreiðsla Alþýðublaðslns Síml 14 900. Tí‘ ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. des. 1964 J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.