BFÖ-blaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 3
Leó E. Löve:
Ábyrgð okkar á öðrum
Ég leyfi mér að fullyrða að flesta lesendur
þessa blaðs megi telja í hópi ábyrgustu og jafn-
framt aðgætnustu ökumanna á Islandi. Þann
góða hóp þarf því síst að áminna eða hvetja til
nýrrar og betri breytni í umferðinni þótt ekki
megi heldur slaka á kröfunum. Hvatningu
um að leiðbeina samborgaranum og treysta
þar með undirstöðu menningarsamfélags má
hins vegar beina til allra og helst til þeirra
sem sjálfir eru gott fordæmi.
Eitt af einkennum stækkandi samfélags er
að menn láta sig náungann og framferði hans
sífellt minna varða. Á meðan litla samfélagið
veitir aðhald í krafti staðreyndarinnar um að
allir þekki alla, líta borgarar í stærri samfé-
lögum undan og segja við sjálfa sig: Mér kem-
ur þetta ekki við.
Einnig er það staðreynd að menn veigra sér
við að lenda í útistöðum við náungann sem
tæki afskiptasemina óstinnt upp.
Það kann vel að vera að við sem ekki þekkj-
um af eigin raun getum ekkert sagt um ástæð-
ur þess að menn láta sér detta í hug að aka eft-
ir að hafa bragðað áfengi. Við vitum hins veg-
ar hvað lögin segja og með óbrenglaða dóm-
greind gerum við okkur grein fyrir sennileg-
um afleiðingum.
Lesandi góður. Sjáir þú barn verða sér að
voða dettur þér ekki annað í hug en að hlaupa
til og bjarga því. Hvers vegna ekki líka að
afstýra ölvunarakstri? Afskiptasemi þín af
þvílíku athæfi kann að bjarga mannslífum.
Hver er munurinn í raun?
Vissulega á þjóðfélagsmyndin og eftirlits-
leysi yfirvalda þátt í ýmsu því sem aflaga fer á
íslandi eins og í flestum löndum í kringum
Leó E. Löve er lögfræðingur og
forstjóri ísafoldarprentsmiðju.
okkur. En þegar allt kemur til alls: Hvað er
samfélagið annað en við sjálf?
Það er ef til vill tilætlunarsemi af höfundi
þessara lína að ætlast til þess að menn gangi
fram fyrir skjöldu og baki sér óvinsældir ein-
ungis til þess að koma í veg fyrir hugsanlegt
slys. Við skulum því vekja samvisku okkar
sjálfra og þeirra sem við umgöngumst. Vinn-
um að þeirri hugarfarsbreytingu að menn eigi
að skipta sér af. Ef við hlýðum eigin samvisku
líður okkur vel.
Verum minnug þess að í sérhveiju félagi er
það félagsandinn sem gildir. Það á líka við um
sjálft þjóðfélagið. Skiptum okkurafþvísem okk-
ur kemur við. Berum ábyrgð á náunganum.
KFÖ-blaðið • 2/1991 • Júm 1991
Útgefandi: Bindindisfélag ökumanna,
Lágmúla 5,108 Reykjavík, sími 679070.
Ritnefnd: Sigurður Rúnar Jónmundsson (ritstj. og áb.m.),
Halldór Árnason og Jónas Ragnarsson.
Útgáfústj.: Gísli Theódórsson.
Myndir: Myndsköpun o.fl.
Forsíðumynd: Við Langasjó (ljósm. Guðlaug Sveinbjarnardóttir)
Prentun: GuðjónÓ hf.
Upplag: 4.000 eintök. 2. tbl. 19. árg.