BFÖ-blaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 5
fram í ofbeldisverknaði. Kemur þar til m.a.
skert hæfni, andleg sem líkamleg, hömluleysi
og siðferðisbrestur svo og að áfengi er notað og
viðurkennt skálkaskjól fyrir hegðun sem
almennt er talin neikvæð eða jafnvel óhæfa.
Þegar allt þetta fer saman er við því að búast
að stundum bresti viðurkenndir hættir í sam-
skiptum manna.
í norskri könnun sem birt er í bók Hans
Olav Fekjærs, Áfengi, okkar eigið val? sem
út kom hjá Námsgagnastofnun árið 1988 er að
finna eftirfarandi upplýsingar (á bls. 45) um
þátt áfengis í ofbeldisverkum þar í landi. Það
er engin ástæða til að ætla annað en að málum
sé svipað farið hjá okkur:
Árásir...............................82%
Líkamsmeiðingar .................... 81%
Manndráp ............................71%
Rán..................................79%
Skemmdarverk ........................60%
Hótanir og þvinganir ................80%
íkveikjur af ásettu ráði.............62%
Nauðganir............................63%
Áfengi/ölvun er því augljóslega afgerandi
þáttur í oíbeldisverkum hvers konar og er það
niðurstaða ýmissa vísindamanna sem kanna
áfengismál og áhrif áfengisneyslu að þegar
heildarneysla áfengis eykst fjölgi ofbeldisverk-
um.
5