BFÖ-blaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 7
Vínveitingastaðir í Reykjavík 1990
koma sér af staðnum þegar teiti lauk. Ofbeldi
innan dyra var yfirleitt leyst af dyravörðum
og starfsfólki húsanna áður en illa fór. Slíku
eftirliti er ekki til að dreifa á götum úti enda
erfitt að koma því við. Aukin löggæsla kemur
því að takmörkuðu gagni þó að hún kunni
að leysa einhver vandræði. Staðirnir eru
margir og á sama tíma, þ.e. á kvöldin og um
helgar, og ofbeldi á sér stað við vínveitinga-
húsin er það sama að gerast inni á heimilum
víða um borgina. Það þarf því mikinn Qölda
lögreglumanna til starfa. Það er ekki heldur
við því að búast að lögregla komi í veg fyrir
ofbeldi nema í undantekningartilfellum. Það
tekur ekki langan tíma að berja mann til
óbóta í húsasundi eða stinga til ólífis.
Tilkoma bjórsins hefur valdið hvoru-
tveggja, aukinni neyslu og fjölgun dreifing-
arstaða. Aukin neysla áfengis gaf mönnum
undir fótinn með skjótfenginn gróða af áfeng-
issölu. Mikil samkeppni og kapphlaup er um
áfengisneytendur og heltast margir úr þeirri
lest. En aðrir koma í þeirra stað og ganga
margir staðir kaupum og sölum. Hvernig er
sá kostnaður sem fylgir tíðum eigendaskipt-
um og breytingum brúaður? Veitingamenn
hafa haldið því fram í blaðaviðtölum að eng-
inn grundvöllur sé fyrir öllum þeim fjölda
vínveitingastaða sem nú er í borginni. Þess
vegna hljóti gjaldþrotum að fara fjölgandi á
næstunni. Einhverjir hljóta nú að tapa.
Á.E.
7