BFÖ-blaðið - 01.06.1991, Qupperneq 8
Elvar H0jgaard:
Eldsneytisspamaður
- minni mengun
í vetur hækkaði verð á olíu mikið á heims-
markaði. í kjölfar þess hefur áhugi á eldsneyt-
issparnaði aukist og jafnvel stjórnvöld hafa
séð ástæðu til að hvetja almenning til að leita
allra leiða til að ná fram sparnaði. Einkum
hefur verið bent á þrjár leiðir. Er full ástæða
til að kynna sér þær þó að olíuverð fari nú
heldur lækkandi.
í fyrsta lagi á fólk að reyna eftir megni að
samnýta bíla og auka notkun almenningsfar-
artækja.
í öðru lagi eru bíleigendur hvattir til að huga
að ástandi bíla sinna með tilliti til bensín-
eyðslu. Einkum er þá rætt um stillingu vélar,
(kveikja, kerti, þræðir, loftsía og íl.). Loft-
þrýstingur í hjólbörðum hefur hér einnig
áhrif, minna loft - meiri núningsmótstaða.
Þegar ekið er utan þéttbýlis þar sem há-
markshraði er 80 eða 90 kílómetrar fara
aukahlutir utan á bílnum að hafa áhrif á loft-
mótstöðuna. Hér má nefna hluti eins og grjót-
grind og toppgrind. Því fyrirferðarmeiri sem
þessir hlutir eru þeim mun meiri verður loft-
mótstaðan.
í þriðja lagi er svo aksturslagið, eða bíl-
stjórinn. Þessi atriði hafa áhrif á eyðslu allra
ökutækja hvort heldur um er að ræða almenn-
ingsvagn eða einkabíl. Þetta er að mínu mati
sá þáttur sem hefur hvað mest áhrif, fyrir
utan samnýtinguna.
í bæklingi sem ágætur samstarfsaðili Öku-
leikni, Skeljungur hf., hefur gefið út eru talin
upp nokkur atriði til leiðbeininga fyrir öku-
menn sem vilja spara eldsneyti. Hér skulu
nefnd fimm þeirra ásamt stuttum viðbótum.
1. „Ekki láta vélina ganga að óþörfu“. Hér er
ekki aðeins um leið til bensínsparnaðar að
ræða, heldur erum við um leið að koma í
veg fyrir óþarfa mengun.
2. „Með því að aka alltaf rólega af stað“ má
koma í veg fyrir óþarfa hávaða sem verður
til þegar vélin er látin snúast mjög hratt.
3. „Með því að halda jöfnum hraða í akstri“.
Þetta leiðir af sér afslappaðri og þægilegri
akstur fyrir bílstjóra, farþega sem og aðra
vegfarendur í umferðinni.
4. „Með því að nota innsogið ekki lengur en
þörf krefur“. Hér verður afleiðingin sú
sama og í lið 1, þ.e. bensínsparnaður og
minni óþarfa mengun á umhverfi okkar
því bruninn verður ófullkomnari.
5. „Með því að láta bílinn ekki spóla í snjó.“
Þetta ráð er einnig grundvallaratriði í
akstri í hálku og getur oft ráðið úrslitum
um það hvort við náum að taka af stað í
brekku eða snjóskafli og þá um leið hvort
við komumst leiðar okkar eða ekki.
Þessi fimm atriði standa öll fyrir sínu en hér
má þó bæta við einu atriði sem er „að gefa ekki
mikið inn þegar vél bílsins er gangsett“. Sé
þessa ekki gætt mengum við að óþörfu bæði
með hávaða og útblæstri en einnig er hætta á
að við skemmum vélina ef kalt er í veðri.
Hvort fólk kýs að ferðast eitt í eigin bíl eða
með almenningsvögnum stjórnast líklega af
þörfum hvers og eins en hin atriðin ættu allir
að geta verið sammála um að eru bæði orku-
sparandi og valda minni mengun á umhverfi
okkar. Tökum því höndum saman, spörum
eldsneyti og minnkum mengun.
/