BFÖ-blaðið - 01.06.1991, Qupperneq 9
Nokkrir góðir punktar
• Með því að sameina erindi og aka færri
ferðir, má spara mikið bensín. Það má
líka oft spara mikið með því að velja hag-
kvæmustu akstursleið áður en ekið er af
stað. Ekki gleyma því að oft geta sími og
myndriti sparað ferðir.
• Vinnufélagar og nágrannar geta sparað
mikið bensín með því að ferðast saman og
skiptast á að aka. Það er líka skemmti-
legra. Þetta ættu skíðamenn einnig að
hafa hugfast. Hafið líka samráð um versl-
unarferðir.
• Sparaðu bensín, notaðu strætó. Það er
ódýrt og áhyggjulaust að nota strætis-
vagn og önnur almenningsfarartæki.
Með því spörum við líka bensínið.
• Bensín- og bremsufóturinn - ræður miklu
um bensíneyðsluna. Rykkjóttur akstur er
frekur á bensínið. Forðist spymur, sýnið
forsjálni og hagið akstri eftir aðstæðum. Þá
eykst öryggið og snögghemlun verður óþörf
nema í neyðartilvikum. Fylgið „grænum
bylgjum“ þar sem þær eru.
• Notið skriðþungann og látið bílinn renna
síðasta spölinn áður en þarf að nema
staðar, t.d. á rauðu ljósi eða við gatnamót.
Einnig má nota skriðþungann þegar ekið
er niður brekkur.
• Forðastu hraðakstur. Bensíneyðsla á 90
km/klst er um 20% meiri en á 70 km/klst.
Of hraður akstur er bæði ólöglegur og
dýr.
• Bensínseyðslan er meiri meðan innsogið
er notað. Við gangsetningu á ekki að
draga innsogið lengra út en nauðsynlegt
er. Það á heldur ekki að nota það lengur
en þörf krefur. í bílum með sjálfvirkt inn-
sog má oft taka innsogið af með því að
stíga snöggt á bensíngjöfina.
• Bíllinn eyðir álíka miklu bensíni á hálfri
til einni mínútu í lausagangi og þarf til að
ræsa vélina aftur. Ef þú sérð fram á lengri
bið skaltu stöðva vélina.
• Viðhald bílsins hefur mikil áhrif á
bensíneyðsluna. Mikilvægt er að gang-
kerfið sé stillt reglulega og kerti og loftsía
séu í góðu lagi. Bremsur sem „liggja útí“
og lélegar hjólalegur auka líka bensín-
eyðsluna.
• Opnir gluggar og toppgrind eða aðrir
hlutir sem settir eru utan á bílinn, auka
loftmótstöðuna og um leið bensíneyðslu.
• Of lítið loft í hjólbörðum eykur bensín-
eyðslu, jafnvel um mörg prósent. Það er
betra að hafa of háan þrýsting en of lág-
an.
• Akið ekki með þunga hluti í bílnum að
óþörfu. Hreinsið drullu og klakadröngla
sem vilja setjast á undirvagninn. Klaka-
drönglar þrengja einnig stundum að hjól-
börðum. Munið að bensíneyðsla eykst
með aukinni þyngd bílsins.
• Bensíneyðslan er meiri þegar vélin er
köld. Það er því mjög óhagkvæmt að aka
köldum bíl stuttar vegalengdir, oft getur
verið jafn fljótlegt að fara fótgangandi.
Gönguferðir eru líka allt í senn, hress-
andi, spara bensín og eru umhverfisvæn-
ar.
9