BFÖ-blaðið - 01.06.1991, Síða 11
Morgunstemmning við Langasjó 1988.
an um Kaldadal og sáu síðan ekki bíl fyrr en í
Reykholti í Borgarfirði en þaðan gekk betur
að fá ferð spotta og spotta til Reykjavíkur. Við
Elliðaárnar tókum við strætó í bæinn og kost-
aði farið 50 aura. Segir Höskuldur að það hafi
ekki verið algengt að ferðast á puttanum á
þessum árum.
- Þessi páskaferð var eiginlega eina vetrar-
ferðin en nú seinustu árin hef ég þó tekið upp
að fara um páskana á gönguskíðum inn í
Landmannalaugar eða Þórsmörk. Þá er ekið
með okkur upp að Sigöldu eða Hrauneyjar-
fossi en þaðan eru 25 til 30 km inn í Laugar og
tekur það yfirleitt daginn að fara þá leið.
Árbækur í 63 ár
Höskuldur var kjörinn forseti Ferðafélags-
ins fyrir sex árum en félagið er nú nærri 64
ára og hefur rekið fjölbreytta starfsemi öll
þessi ár. Félagsmenn á öllu landinu eru nú
8.400, skálar félagsins eru 27 og á síðasta ári
tóku milli 5 og 6 þúsund manns þátt í ferðum
félagsins. Sumir fara margar ferðir en alls má
gera ráð fyrir að um fjögur þúsund þátttak-
endur séu í ferðunum á ári. í sumar kemur
árbók Ferðafélagsins út í 63. sinn.
— Já, árbókin er að mínu viti einn merkasti
þátturinn í starfinu. Þarna hefur félagið gefið
út 62ja binda verk um landafræði íslands og
við erum þegar búin að skipuleggja árbækur
næstu fjögurra ára. í ár kemur út síðari bókin
um Tröllaskaga og á næstu árum verður fjall-
að um Austur-Skaftafellssýslu, skagann milli
Eyjafjarðar og Skjálfanda, Heklusvæðið og
Grafninginn, en um hann hefur aldrei áður
verið Qallað í árbókunum.
Um suma staði hefur verið fjallað oftar en
einu sinni, til dæmis um Snæfellsnesið og það
er fróðlegt að sjá hvernig bókagerðin sjálf hef-
ur breyst og kröfur manna um pappír, kort og
myndir. Það er feikileg vinna að taka saman
efnið í þessi rit og sjá um útgáfuna en margir
félagar, lærðir og leikir, hafa lagt hönd á plóg-
inn og unnið mikið starf við þessa útgáfu. Eg
vona að framhald verði á henni svo lengi sem
félagið starfar.
11