BFÖ-blaðið - 01.06.1991, Qupperneq 12
Höskuldur og Guðlaug komin vestur yfir
Víknafjöllin. Myndin er úr ferð yfir Austur-
Skagann frá Skjálfanda til Eyjafjarðar.
Laugavegur vinsæll
Höskuldur hefur síðustu sumur farið í hin-
ar lengri gönguferðir Ferðafélagsins og er
hann beðinn að segja svolítið frá þeim:
- Ein vinsælasta gönguleiðin er svokallað-
ur Laugavegur, frá Landmannalaugum í
Þórsmörk. Þessi leið er farin á íjórum eða
fimm dögum og gist í skálum félagsins á leið-
inni. Lengstu ferðirnar standa yfir í átta til
níu daga og þá er gengið með allan búnað og
ekki gist í skálum. Ég hef tekið þátt í þessum
ferðum síðustu árin og höfum við einkum ver-
ið á ferli á Bárðargötu, þ.e. á svæðinu suðvest-
an við Vatnajökul og í Vonarskarði og í sumar
er ráðgert að fara frá Nýjadal og inn í
Kverkfjöll.
Þátttakendur í þessum ferðum eru á bilinu
17 til 20, fólk á aldrinum 30-40 ára og upp í
minn aldur. Ég hef raunar stundum furðað
mig á því hvers vegna svona ferðir séu ekki
fleiri. Þarna erum við að fara um mjög áhuga-
verð svæði, til dæmis Lakagíga og sjáum
samspil elds og ísa og alls konar náttúrufyrir-
bæri sem tengjast eldgosum og jöklum á allt
annan hátt en menn geta reynt þótt þeir ráði
yfir öflugum vélknúnum tækjum.
Nei, menn þurfa ekki að vera afreksmenn
en hins vegar fara menn ekki alveg óvanir
beint í slíkar ferðir. Það þarf að bera með sér
tjald, svefnpoka, fatnað og allan mat og oftast
eru menn tveir eða fleiri saman og geta sam-
einast um eldunartæki og tjöld. Við hjónin
höfum bæði tekið þátt í þessum ferðum og veg-
ur bakpokinn hjá mér 20-22 kg þegar lagt er
af stað og poki konunnar 15-16 kg. Þetta er að
mínu viti hámark og síðan léttist byrðin örlít-
ið eftir því sem gengur á matarbirgðir.
Hvernig er best að útbúa sig í slíkarferðir og
veitiðþið einhverjar leiðbeiningar áður en lagt
er upp?
- Éélagið sendir öllum sem skrá sig í ferð-
irnar leiðbeiningablað með ábendingum og
áður en lagt er af stað förum við yfir búnaðinn
til að fullvissa okkur um að ekkert mikilvægt
hafi nú gleymst. Nestið er mest þurrmatur,
brauð og slíkt og reyna menn þá að borða fyrst
brauð sem harðnar en geyma rúgkökur þar til
líður á ferðina og oft freistast menn til að hafa
góðan mat til að borða svona fyrsta daginn.
Við hjónin höfum alltaf tekið með sláturkepp
og borðum hafragraut og slátur á morgnana
enda er slátrið mjög næringarrík fæða.
Það er líka mikilvægt að velja góðan regn-
fatnað, hafa hlýjar peysur, gönguskó og til
dæmis strigaskó til að nota þegar vaða á yfir
ár. Það er ekki þægilegt að vaða berfættur í
jökulám þar sem ekki sést til botns og ef menn
meiðast á fæti við að vaða þá getur jafnvel
ferðin orðið ónýt. Það verður því að vanda
fótabúnað mjög og menn skyldu aldrei leggja
upp í langar gönguferðir á nýjum skóm.
Þverskurður þjóðfélagsins
Hverjir taka helstþátt íþessum ferðum?
- Þetta er í raun mjög skemmtilegur þver-
skurður af þjóðfélaginu. Þarna koma lang-
skólagengnir menn sem verkamenn og mér
finnst þetta undirstrika svo vel hversu lítill
stéttamunur er í landinu. Þarna sameinast
menn um að gera ferðina ánægjulega og þótt
stundum þurfi að bregða út af áætlun vegna
færðar eða veðurs gerir enginn sér rellu út af
því.
12