BFÖ-blaðið - 01.06.1991, Page 13
Ræður veðrið ekki miklu um stemmninguna í
hópnum?
— Ekki endilega og mér finnst eins og veðrið
hafi alltaf verið betra en við gátum búist við í
þessum ferðum. Við höfum verið í samfelldri
sól alla dagana en við höfum líka verið í þoku
og sudda og þá reynir kannski helst á farar-
stjórann að taka áttirnar því stundum þarf að
ganga eftir áttavita í hálfan eða heilan dag.
Mér finnst þetta miklu fremur hleypa ákveðn-
um spenningi í mannskapinn heldur en leiða
- að vita hvort við náum á réttan áfangastað
þrátt fyrir lítið skyggni.
Ferðafélagið hefur átt nokkurt samstarf við
norska ferðafélagið og þannig hafa íslending-
ar tekið þátt í gönguferðum um Jötunheima í
Noregi tvö síðustu sumur. - Norðmenn eru
miklu agaðri en við á sviði gönguferða því þeir
geta gengið að vistum í skálum sínum og
greiða þá fyrir það sem þeir neyta. Ég efast um
að það gengi hjá okkur en vissulega væri það
sums staðar til þæginda að þurfa ekki að vera
með vistir á öllum gönguleiðum og myndi
eflaust freista fleiri að taka þátt í slíkum ferð-
um ef þeir losnuðu við burðinn.
Hafa Ferðafélagsmenn áhyggjur af stað eins
og Þórsmörk ?
- í raun ekki og nú þegar Þórsmörk hefur
verið friðuð fyrir ágangi búfjár er hægt að
leggja meiri rækt við uppgræðslu og ég er
bjartsýnn á að þar megi draga úr landeyðingu.
Ferðafélagið tók líka upp ítölu fyrir nokkrum
árum þannig að í Langadal gista ekki fleiri en
350 til 400 manns samtímis. Ég held að það
verði að gera hjá öðrum aðilum sem standa
fyrir ferðum í Þórsmörk. Vandræðin hafa
helst verið kringum fjölmennar ferðir starfs-
mannafélaga þar sem þátttakendur eru miklu
fremur í áfengisveislu en náttúruskoðunar-
ferð. Það er ekki hinn rétti tilgangur með
Þórsmerkurferð.
Engum dytti í hug
að hafa áfengi meðferðis
Höskuldur segir að ekki sé lagt bann við
áfengisneyslu í ferðum Ferðafélagsins en hins
vegar sé það svo að nánast engum detti í hug
að hafa slíkt nesti meðferðis í gönguferðun-
um. Fyrir utan þyngslin þurfi menn að vera
Höskuldur Jónsson á ferð um sjávarströnd
árið 1987.
klárir í kollinum og þess vegna hafi aldrei ver-
ið vandræði af þeim sökum en einstaka sinn-
um hafi skálaverðir þurft að amast við áfeng-
isneyslu í skálum félagsins. Að lokum er
Höskuldur spurður hvernig hann sjái fyrir sér
árangur af starfi Ferðafélagsins í yfir sex ára-
tugi:
- Við getum ekki mælt beinan árangur af
starfi félagsins en við erum ánægð með að
8.400 manns eru skráðir félagar sem greiða
félagsgjöld. Þeim tilheyra síðan yfirleitt fleiri
fjölskyldumeðlimir. Ferðafélagið er því áreið-
anlega eitt íjölmennasta félag landsins og
bara það styrkir okkur í því að við séum
á réttri braut við að efla áhuga á landinu,
þjálfa okkur í umgengni við landið og gæta
þess að við spillum ekki náttúru þess. Ég held
líka að 95% ferðamanna séu æfðir og reyndir
og kunni þessa list. Það er hlutverk okkar
allra að hafa áhrif á þá fáu sem enn henda
rusli, svíða jörð eða spilla landi með farartæki
sínu. jt.
13