BFÖ-blaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 14
Reglur um
akstur utan vega
„Bannaður er allur óþarfa akstur utan vega
eða merktra vegaslóða, þar sem hætt er við að
spjöll hljótist á náttúru landsins. Nauðsynleg-
um akstri á slíkum svæðum skal jafnan hagað
svo, að engin óþörf spjöll eða lýti á landi hljót-
ist af honum.“
„Náttúruverndarráð setur svæðisbundnar
reglur um akstur ökutækja eftir merktum
leiðum í óbyggðum.“
„Á áningarstöðum skal ávallt leggja ökutækj-
um á þeim svæðum, sem afmörkuð hafa verið
eða merkt til slíkra nota. Óheimilt er að hrófla
við hindrunum eða merkjum sem afmarka
slík svæði, í þeim tilgangi að komast framhjá
þeim.“
Almennar umgengnisreglur
Hvar sem menn ferðast ber að virða þá meg-
inreglu að skilja við landið eins og komið var
að því. Allt rusl ber að taka og láta á þá staði
sem eru ætlaðir fyrir slíkt. Olíuskipti eru að-
eins leyfð á smurstöðvum eða þar sem unnt er
að taka við afgangsolíu.
Rafmagnsveita
Reykjavíkur
léttir þér lífið
1921-1991
Hvar gilda sérstakar reglur?
Undir öllum kringumstæðum ber að forðast
akstur utan vega á friðlýstum svæðum og á
grónu landi, sérstaklega mosa og þar sem
jarðvegur er blautur. Sum sveitarfélög hafa
einnig bannað allan akstur utan vega.
Hvert á að snúa sér?
Langflestir hlýða þessum reglum. Klúbbar
áhugamanna hafa verið stofnaðir gagngert til
að bæta umferðarmenningu á hálendinu en
það er alltaf erfitt að hemja skussana. Sárin
sem þeir valda geta orðið stór og djúp og gróið
seint.
Á sumrin birtast kort Náttúruverndarráðs og
Vegagerðarinnar í dagblöðum og sýna þau
hvaða vegir eru opnir á hverjum tíma. Séu
menn í einhveijum vafa skal þeim bent á
Vegaeftirlit ríkisins s. 91 21000 til að fá
nákvæmari upplýsingar um færð.
Telji menn að verið sé að brjóta lög með akstri
utan vega er sjálfsagt að láta viðkomandi lög-
regluyfirvöld vita. Viðkomandi þarf þá að
gefa upp númer á farartækinu, stund og stað.
Ágæti ferðalangur!
Samtökin Ferðaklúbburinn 4x4 eru félag
áhugamanna á fjórhjóladrifsbifreiðum. Mark-
mið samtakanna er m.a. að ná til sem flestra
er hafa áhuga á ferðalögum um landið og gefa
gott fordæmi um umgengni og verndun
landsins.
Jeppamenn: Látum öll landspjöll heyra sög-
unni til. Útbúnaður fjórhjóladrifsbifreiða í
dag er orðinn svo góður að það að valda nátt-
úruspjöllum sýnir aðeins kunnáttuleysi við-
komandi til ferðalaga. Ferðaklúbburinn 4x4
hvetur alla ferðamenn til að vanda umgengni
sína um náttúru íslands.
Góða ferð.