BFÖ-blaðið - 01.06.1991, Page 15
Félagsstarfið
Ársþing BFÖ
Þann 10. maí s.l. var haldið í Reykjavík 18.
sambandsþing BFÖ.
Þingið sátu fulltrúar deilda ásamt stjórn
BFÖ og gestum. í skýrslu forseta BFÖ, Brynj-
ars Valdimarssonar kom fram að starfsemin á
síðasta ári var blómleg. Haldnar voru fjöl-
margar keppnir um landið í ökuleikni, auk
reiðhjólakeppna voru haldnar samhliða.
BFÖ-blaðið kom ut í 4 tölublöðum, haldin var
ráðstefna um ölvunarakstur og gefinn var út
bæklingur um sama efni. Þá kynnti félagið
rækilega frumvarp Árna Gunnarssonar og
fleiri á Alþingi, þar sem kveðið var á um lækk-
un áfengismarka í blóði ökumanna. Því miður
náði frumvarpið ekki fram að ganga á síðasta
þingi.
Rekstrarafkoma félagsins var góð á síðasta
starfstímabili, hagnaður varð rúmlega 700
þúsund krónur.
Á þinginu var kynnt starfsáætlun komandi
starfstímabils og Qöldamargar ályktanir voru
samþykktar.
Efnislega fjölluðu þær m.a. um eftirfarandi:
1. Lagt er til að „kílóaskattur“ af bílum
renni óskiptur til umferðaröryggismála.
2. Skorað er á yfirvöld að beita sér fyrir því
að gjaldskrár Bifreiðaskoðunar íslands
verði enn lækkaðar frá því sem nú er.
3. Skorað er á Dómsmálaráðherra að beita
sér fyrir endurskoðun á gildandi umferð-
arlögum.
4. Skorað er á tryggingafélög, Umferðarráð
og ökukennara að auka fræðslu og kynn-
ingu á því hvernig útfylla skuli tjóna-
skýrslueyðublöð þau sem ökumenn hafa í
bílum sínum.
5. Hvatt er til lækkunar hámarkshraða í
íbúðagötum.
6. Beint er tilmælum til tryggingafélaga að
kanna tjónatíðni 17-20 ára ökumanna
með það í huga hvort hækka eigi ökuleyf-
isaldur.
7. Skorað er á fjölmiðla að stórauka flutning
á fræðsluefni um umferðarmál.
8. Skorað er á þingflokkana að taka upp að
nýju frumvarp það sem ekki fékk af-
greiðslu á síðasta þingi um lækkun leyfi-
legs áfengismagns í blóði ökumanna.
9. Bent er á að akstur og áfengi fara aldrei
saman.
10. Skorað er á yfirvöld að taka áfengislög-
gjöfina til endurskoðunar.
11. Skorað er á Dómsmálaráðherra að ljúka
sem fyrst endurskoðun á ökukennslu.
12. Skorað er á Dómsmálaráðherra að stuðla
að löggildingu ölvunarsýnistækja, sem
leysa af hólmi blóðprufur, þegar öku-
menn eru teknir grunaðir um ölvunar-
akstur.
Á þinginu flutti Ómar Smári Ármannsson,
lögreglumaður, mjög fróðlegt erindi um ölv-
unarakstur og forvarnir í Reykjavík. Spunn-
ust miklar umræður og fyrirspurnir af erindi
Ómars Smára.
Brynjar Valdimarsson var endurkjörinn
forseti BFÖ fyrir næsta starfstímabil.
Sambandsþing BFÖ samþykkti meðal ann-
ars ályktun um aukna notkun hjólreiða-
hjálma.