BFÖ-blaðið - 01.06.1991, Síða 17
Félagsstarfið
Dregið í happdrættinu
Dregið var í happdrætti Bindindisfélags öku-
manna þann 15. apríl 1991 og komu vinning-
ar á eftirtalin númer:
Vinningar Númer
1. Ferðavinningur frá
Ferðamiðstöðinni Veröld, 100.000 2307
2. Ferðavinningur frá
Ferðamiðstöðinni Veröld, 80.000 6041
3. Ferðavinningur frá
Ferðamiðstöðinni Veröld, 60.000 2481
4. ÚttekthjáSjónvarpsmiðstöðinni, 20.000 4867
5. ÚttekthjáSjónvarpsmiðstöðinni, 20.000 3499
6. ÚttekthjáSjónvarpsmiðstöðinni, 20.000 3337
7. ÚttekthjáSjónvarpsmiðstöðinni, 20.000 2288
8. ÚttekthjáSjónvarpsmiðstöðinni, 15.000 3907
9. Úttekthjá Sjónvarpsmiðstöðinni, 15.000 6231
10. ÚttekthjáSjónvarpsmiðstöðinni, 15.000 2941
11. ÚttekthjáSjónvarpsmiðstöðinni, 15.000 4979
12. ÚttekthjáSjónvarpsmiðstöðinni, 10.000 5249
13. ÚttekthjáSjónvarpsmiðstöðinni, 10.000 4672
14. ÚttekthjáSjónvarpsmiðstöðinni, 10.000 2945
Vinninga má vitja í Ferðamiðstöðina Veröld
og í Sjónvarpsmiðstöðina Síðumúla 2, Reykja-
vík, gegn framvísun happdrættismiða og
stimplaðrar kvittunar. Upplýsingar eru gefn-
ar í síma 679070 eftir kl. 17, þriðjudaga.
Aðalfundur
Reykjavíkurdeildar
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar BFÖ var
haldinn 31. janúar síðastliðinn, eins og
minnst var á í síðasta blaði. Á fundinum var
kjörin ný stjórn en fráfarandi formaður, Karel
Matthíasson gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
í stjórn voru kosnir Kristján Ragnarsson, for-
maður, Karel Matthíasson og Alfreð Harðar-
son en fyrir í stjórn voru Kristinn Breiðfjörð
og Elvar Hpjgaard.
Líflegar umræður urðu á fundinum um
umferð og öryggismál, og m.a. flutti Árni Ein-
arsson stutt erindi þar sem hann ræddi þátt
sinn og BFÖ í undirbúningi frumvarps um
lækkun leyfðs áfengismagns í blóði öku-
manna. Eftirfarandi þrjár ályktanir voru
samþykktar á fundinum:
Aðalfundurinn tekur undir áskoranir yfir-
valda til ökumanna um að draga úr ökuhraða,
enda telur fundurinn slíkt ekki einungis
minnka eldsneytiseyðslu heldur einnig fækka
umferðarslysum.
Aðalfundurinn beinir þeirri áskorun til dóms-
málaráðuneytisins að samræmdri skráningu
umferðarslysa verði komið á svo fljótt sem
auðið er.