Alþýðublaðið - 15.01.1965, Side 3
Tíu kongóskir uppreisnarmenn, sem íbúar þorpsins Ituri tóku til fanga, voru pyndaðir til dauða ný-
lega í hefndarskyni fyrir misþyrmingar uppreisnarmanna á tveim konum nokkrum dögum áður.
Stérárás á birgðaleiðir
Vietcong og Pathed Lao
Washington, 14. janúar.
(NTB-Reuter).
22 bandarískar og laótískar flug-
vélar gerðu í gær mikla loftárás
á mikilvæga birgðaleið hersveita
kommúnista í Laos, að þvi er skýrt
var frá í Washington í dag. Tvær
bandariskar þotiu- voru skotnar
niður, en báðum flugmönuunum
var seinna bjargað.
Árásin var gerð á mikilvæga brú
á „Þjóðvegi sjö” í norðurhluta
Mið-Laos.
Formælandi stjómarinnar neit-
aði í gær að ræða um árásina,
en staðfesti að flugvélarnar tvær
hefðu verið skotnar niður og að
flugmönnunum hefði verið bjarg-
að. Hann neitaði einnig í dag, að
segja annað um hemaðaraðgerð-
irnar.
í árásarsveitunum voru bæði
bandariskar þotur og flugvélar úr
konunglega laótíska flughernum.
Sumar flugvélarnar fóru i könn-
unarskyni og-aðrar voru fylgdar-
flugvéiar - sjálfrar árásarsveitar-
innar, sem gerði árás á brúna úr
lítilli hæð.
Talið er, að eyðOegging brúar-
innar bindi enda á flutning vopna
og birgða til hersveita kommún-
ista í nokkurn tíma.
Góðar heimildir herma, að
Bandaríkjamenn hafi byrjað fyrir
nokkru að gera loftárásir á birgða
leiðir hersveita kommúnista frá
Norður-Vietnam. Árásin í gær hafi
verið gerð að beiðni Laos-stjóm-
ar og átt að koma í veg fyrir
Framh. á bls. 4.
Versnandi sambúð
Belga og Tshombe
Briissel og Leopoldville, 14. jan.
(ntb-rt).
Belgiska stjórnin neitaði f dag
að ræð'a viS kóngóska sendinefnd,
sem komin var til Briissel að ræða
leyfi til námnreksturs í Kongó.
Þetta bendir tll versnandi sam-
búðar stjómanna í Briissel og í
Leopold ville.
Formælandi í utanríkisráðu-
neytinu sagði, að orsök ákvörðun-
arinnar væri sú, að sendinefndin
væri ekki fær um að ræða námu-
leyfamálið. Hann sagði, að Kongó-
menn krefðust allra verðbréfa, sem
Belgar eiga í námafélögunum 6em
starfa í Kongó.
Verðmæti þessara hlutabréfa
nema 750 milljónum dollara. —
Belgar héldu þessum hlutabréfum
eftir 1960 sem tryggingu fyrir þvi
að kongóska stjórain greiddi op-
inbert gjald sem nam 900 millj.
dollara. (
Tshombe forsætisráðherra átti
Framhald á 4. siðu
Enginn sáttafundur
boðaður
Reykjavík, 14. janúar. — EG.
ENGINN sáttafnndur hefur enn
verið boðaður í deilu bátasjó-
manna og útgerðarmanna, að því
er Jón Signrðsson formaðnr Sjó-
mannasambands Islands tjáði
blaðinu I dag.
Ekki kvaðst Jón vita til að
fleiri útgerðarmenn hefðu farið
inn á þær brautir að leigja báta
sína til staða úti á landi þar sem
ekki er verkfall, enda mundu þær
aðgerðir, sem fyrirhugaðar eru af
hálfu verkalýðsfélaga, að líkind-
um hafa gert mönnum Ijóst, að
slíkt mundi tæplega borga sig.
Býsf við uppreisn
austanmúrs
Miinchen, 14. janúar. NTB-DPA.
Varaforsætisráðherra Vestur-
Þýzkalands, Erich Mende, segir í
viðtali við tímaritið „Revue” að
ekki sé óhugsandi að borgara-
styrjöld brjótist út í Þýzkalandi,
ef kúgun íbúa Austur-Þýzkalands
verði of mikil. Hins vegar gætu
Vestur-Þjóðverjar ekki skorizt í
leikinn, ef uppreisn yrði gerð í
Austur-Þýzkalandi, því að varnir
Vestur-Þjóðverja væru samein-
aðar -vörnum NATO. Mende sagði,
að auk þess mundi valdbeiting
ekki leysa pólitísk deilumál.
Hitiast LBJ og
Kosygin!
Moskva, 14. jan. (NTB-RT).
Andrei Gromyko utanríkisráð-
herra ræðir á morgun við sendi-
herra Bandarikjanna í Moskva, —
Foy Kohler, ef til vill um fund,
með Kosygin forsætisráðherra og
Johnson forseta.
Kohler sagði, þegar hann kom
til Moskva í síðustu viku úr heim
sókn til Bandarikjanna, að sér
kæmi ekki á óvart þótt Johnson
forseti héldi fund með hinum nýju
leiðtogum Sovétríkjanna áður en
langt um liði.
Frétt frá Berlín hermir, að
Kosygin forsætisráðherra komi í
heimsókn til Austur-Þýzkalands í
sambandi við 800 ára afmæli kaup
sýningarinnar í Leipzig, 27. febr.
til 9. marz.
LBJ ber fram frumvarp
um lægstu aðstoð USA
Washington, 14. janúar.
(ntb-reuter). 1
Johnson forseti Iagði í dag
frumvarp um 3.380 milljón dollara ,
(rúml. 144 milljarða kr.) aðstoð við
erlend ríki fyrir Þjóðþingið. 500
milljónum dollara (um 21 millj-
arð kr.) verður varið til Vietnam.
Forsetinn sagði, að þetta mundi
kannski ekki hrökkva til og bað
þingið um heimild til að auka að-
stoð Bandaríkjanna í Vietnam. 580
milijónum dollara (um 24 millj-
örðum kr.) verður varið til Róm-
önsku Ameriku.
Forsetinn kvaðst gera séf grein
fyrir því, að almenningur krefð-
ist þess að gætilega yrði farið með
fé það sem varið væri til aðstoðar
við erlend ríki en sagði, að vegna
aukinnar aðstoðar Rússa og Kín-
verja við þróunarlöndin gætu
Bandaríkin ekki skert aðstoðina
meira en þeir hefðu nú gert.
Hann sagði, að Rússar og Kín-
verjar hefðu þrefaldað aðstoð sína
við þróunarlöndin á árinu sem
leið. Upphæð sú, sem hann færi
fram á væri hin lægsta síðan að-
stoð við erlend ríki hófst. Hún
værl 136 milljón dollurum lægri
en farið var fram á í fyrra og
minnsta byrði sem lögð væri á.
bandarísku þjóðina i formi aðstoð-
ar við erlend ríki síðan Marshall
áætlunin hófst 1948.
Frumvarpið gerir ráð fyrir, að
1170 milljónum dollara verði varið
Framhald á 4. síðu
Sjófatnaður
Regnfatnaður
Sjóstakkar
Sjóhattar
Regnkápur
Regnhattar
Síldarpils
Svuntnr
Ermar
Tréklossar
Gúmmískór
Gúmmístígvél
U, VÍ!, 1/1 hæð,
og álímd.
Vinnufatnaður
Busnr
Blússur
Skyrtur
Húfur
Sokkar
Knldaúipwr
XJIlarpeysnr
Ullamærföt
Trollbuxur
Búllur, hvitar
Vinnuvettlingar
Ullarvettlingar
Gúmmívettlingar
Plastvettlingar
Leðurvettlingar
Sjófatapokar
Vatt-teppi
Madressur
Snyrtivörur
Hreinlætisvörur
Tóbaksvörur
Verzlun 0. ELLINGSEN
1
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. janúar 1965 3