Alþýðublaðið - 15.01.1965, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 15.01.1965, Qupperneq 6
\ I»AÐ VAR vcrið að taka enn eina biblíukvikmyndina í eyðimörkinni í: Kaliforníu. Dag nokkurn kom framleiðandinn, sem átti meira fé «1 Vit, auga á tólf illa klædda menn, sem stóðu saman í hóp. — Hvaða tólf náungar eru þetta, spurði hann. — Það eru postularnir tólf. — Tólf postular, sagði framleiðandinn argur. Það tekur ekki maður eftir þeim. Við verðum að hafa minnst 50 postula. ÍTALI nokkur sprengdi bílinn sinn og bílskúrinn í loft upp um daginn, en það skeði raunar af misskilningi. Þetta byrjaði allt saman með því, að mús hafði komizt í skúr* inn, og olli hún manninum ama m. a. með því að naga göt á dekkin,- En þegar ven.iuleg eitrun bar ekki árangur, setti maðurinn talsvert . magn af karbít í vatn í fötu inni í bílnum. Síðan gekk hann inn til sín — öruggur um, að gasið mundi kála mýslu. ... Sprengvngin eyðilagði bílinn og bílskúrinn og noklqrar rúður brotnuðu í húsinu, en enginn meiddist, utan hvað músin drapst víst. * * ★ ANDERS Lofthus skógarhöggs maður í Sangdal á Þelamörk í Noregi, borðar hádegismat með elgdýri á hverjum degi. Á hverj- um morgni, þegar sögin tekur að suða, kemur elgurinn og þeg- ar kemur að matarhléinu deila þeir elgurinn og Lofthus með sér matarpokkanum í mesta bróð erni. Þegar elgurinn er búinn að borða, hefur hann sig burtu í hæfilega fjarlægð, en síðdegis kemur hann aftur í kaffihléinu. Ef aðrir en Lofthus eru vi-ðstadd- ir, hefur hann sig á braut. ★ XJLBRICHT í Austur-Þýzka- landi opnaði hliðin á múrnum um jólin og leyfði Vestur-Berlín- arbúum að heimsækja vini og vandamenn í austur-þýzku sæl- unni. Enginn skyldi þó halda, að hann hafi ekki viljað hafa nokk- uð fyri-r snúð sinn, því að hann tók sem svaraði rúmum 32 krón- um af hverjum manni, sem fór inn fyrir múrinn þær tvær vik- ur, sem hann var opinn. Nú fór rúm milljón manns austur fyrir, svo að Ulbricht hefur haft um eða yfir 33 milljónir króna upp úr krafsinu í erlendum og hörð- um gjaldeyrl( sem hann vanhag- ar alltaf mjög um. RANNSÓKN í Bandaríkjunum hefur leitt í Ijós, að sú mann- gerð þar í landi, sem líklegust er til að neyta áfengis. sé vel menntaðir karlmenn, ógiftir og I góðum stöðitm. Annars kemur ' líka fram í rannsókn þessari, að tala þeirra, sem neyta áfengis hafi hækkað urn 7% á þeim ár- um, sem liðin eru síðan síðasta rannsókn var gerð,- Þá kemur það fram, að mest er>um drykkju karlmanna milli 21 árs og fer- tugs. Þeir, sem minnst drekka, eru bændur, trésmiðir og málar- ar. Rannsóknin er gerð af lækni við Iowaháskóla í samvinnu við skoðanakannastofnun. Spurðir voru 1515. YFIR 700 visinda- og listamenn frá Sovétríkjunum eru á ferð um austanvert Miðjarðarhaf. Á myndinni sjást nokkrir þeirra staddir í Akropolis í Aþenu. En til Grikklands komu þeir með 20 þús. tonna rússnesku skipi, er heitir Ivan Franco, en það er nú í sinni jómfrúför. HVERNIG EIGA NEMENDUR AÐ KLÆÐAST í SKÓLA? — ★ — PÁLL PÁFI VI. hefur sent 250.000 krónur að gjöf til ekkju indversks blaðaljósmynd- ara, sem dó á meðan páfi var í hei-msókn sinni á Indlandi. Hann skrifaði henni einnig huggunarbréf. Blaðaljósmyndarinn var að elta páfa á ferð hans um Bombay og stóð aftan á vöru- bíl. Hann tók hins vegar ckki> eftjr lágt. brú, sem lá yfir götuna, og dó á staðnum. — ★ — JÚ hundruö ár hafa Svisslendingar sungið þjóðsöng sinn undir i' „God Save the Queen“, þar til ríkisstjórnin lét semja nýtt lag fyrir þrem árum. Þeir væru þó ekki brezk nýlenda! En nýja lagið féll landsmönnum ekki í geð, svo að haldið var áfram að nota „God Save the Queen“. Afleiðmgin er sú, að nú eiga Svisslendingar að ganga til einnar af hinum mörgu þjóðaratkvæðagreiðslum sinum. Þeir eiga að svara játandi eða neitandi spumingunni: „Óski-ð þér, að vér reynum að verða okkur úti um nýtt lag, eða eigum við að haida áfram að nota „God Save the Queen“?“ — ★— EINS og mehn muna lét Ringo höfuðbítill Star taka úr sér hálskirtla á sjúkrahúsi í Löndon um daginn. Allt varð vitlaust og meS stuttu mi-llibili voru gefnar út frétta- tilkynningar um líðan hans, og vælandi bítilaðdáendur héngu fyrir utan sjúkrahús- iö hópum saman. .Blómahafið var ógurlegt og hver símastúlkan af annarri varð að hætta vegna ofþreytu. Fyrir nokkrum dögum voru hálskirtl- arni-r teknir úr einum mesta listdansara nútímans, Rudolph Uureyev, á sama sjúkrahúsi. Nú voru engar fréttatilkynningar gefnar út, engin blóm og aðeins ein upphringing, frá Margot Font-eyn, sem mikið dans- ar með honum. Nureyev tók þessu ósköp heimspekilega: — Hví skyldu vera nokkur læti út af kirtlunum í mér. Ég dansa jú á fótunum, en ekki kirtlunum. ÞESSI mynd þótti okkur svo falleg, þó að liún sé orðin ( g dálítið gömui, að við gátum ekki iátið hjá líða að birta hana. ; H Hún er frá siglingakeppninni um Ameríkubikarinn, sem fram H j| fer út af Newport í Rhode Island í Bandarikjunum, þegar skor 1 H að er á sigurvegarann frá næstu keppni á undan. í tvö ár í röð H jg hafa Bretar skorað á Bandaríkjamenn og í bæði skiptln liefur H bandaríska skútan „ConsteIlation“ sigrað. í haust var það §j | brezka skútan „Sovereign", sem skoraði á. Keppnin er fyrir p j§ 12 metra skútur. Á myndinni sést Constellation nær, en So- • H vereign fjær. ,ll'!!l!IIl!ll!llll1lllllll!IU|]!!lllllllllllllllllllllll!!!íilll!lí!!l!l!!!II!!!n!l!li!!!llllll!l!!!!linil!llllllll!ll!lllll!!!llll]]liIII!lll!llMl!!IUll!!!!!lll!IPU!!lllllllMI!ll!!"VI!llillll!lll!l!IIIIII!ÍÍl MAÐUR klæðir sig eins vel og maður getur, og svo er maður bara rekinn heim, nöldraði Stasz Gorski, 14 ára, er búningur hans hafði skyggt á búning allra bekkj arfélaga hans í skólanum í Cham paign í Ijlinois í Bandaríkjunum. Þetta skeði rétt fyrir jól en vegna hátíðahaldanna puntuðu allir sig sem bezt þeir gátu, é\ Stasz var snobbaðri en þeir all- ir til samans. Fyrr á skólaárinu höfðu ýmsir nemendur verið reknir heim, af því að þeir mættu í skólanum í vinnubuxumt stuttbuxum eða með alltof sítt hár. En það hafði aldrei gerzt, að nemandi væri rekinn heim fyrir að vera of fínn. Síðasta daginn fyrir jól leigði Stasz sér smóking, elegant skyrtu lakkskó, gullhnappa o.s.frv. Hann trúði Stanley pabba sínum fyrir áformi sínu, og sá tók vel í þetta og hjálpaði honum. Pápi tók á leigu hvítan kádijják og Framh. á 13. síðu. S 15. janúar 1965 — ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.