Alþýðublaðið - 12.05.1965, Page 5

Alþýðublaðið - 12.05.1965, Page 5
TAKNÞOKA Erlingur E. Halldórsson: MINKAHNIR Leikrit Helgafell, Reykjavík Mcmlxv, um minnkandi kristinsdóms- áhuga, en hugmyndaríkir hag- fræðingar? ÞÓRÐUR: Viðreisnarsinnaður 149 bls. MINKARNIR eftir Erling Halldórsson er lengra og viða- meira verk en Reiknivélin sem Gríma sýndi í fyrra. En leikrit- unaraðferð höfundarins er hin sama í báðum verkunum, við- leitni þeirra kemur út á eitt. Báðum verkunum virðist ætlað að vera einhvers konar tákn- mynd, að líkindum samtíðarinn- ar eða þjóðfélagsins; samsvörun þeirra við meintan veruleika mundi framganga af opinberun þeirra á sviðinu; verkin ættu þá að skýra áhorfanda sínum þann heim sem hann lifir við. Þetta er að vísu getgáta mín. En ef- laust gætu velviljaðir og kapp- samlr rit- og leikskýrendur lagt verk Erlings Halldórssonar út í þessa áttina, þýtt táknkerfi hans í leikjunum lið fyrir lið; í þess- um nýja leik eru t.a.m. útlegg- ingarefni eins og Herðubreið, Pandóra, minkmennirnir, kjall- aragröfturinn. En þar fyrir má spyrja hvort þvílíkur skilningur leikjanna sé raunverulega knýj- andi, hvort hann svari sinni fyr- irhöfn, hversu meint „merking” leikjanna sé samsömuð mynd þeirra á sviðinu, máli þeirra. Það kom á daginn við. sýningu Reiknivélarinnar í fyrravor að hún naut .sín allmiklu betur á sviði en bók, komst betur til skila; þetta lofaði góðu um sviðs kunnáttu og vinnubrögð Erlings Halldórssonar, Minkarnir njóta að sínu leyt.i sömu alúðarfullu vinnubragða, og leikurinn er miklu efnismeiri og fjölþættari; það má því ætla að yrði forvitnilegt að sjá liann á sviði. Samt virðist mér, alveg eins og um Reiknivélina, mikið efamál að sýning hans borgaði sig raunveru- lega, að hún megnaði að leiða í Ijós nokkra umtalsverða verð- leika sem ekki verða skynjaðir af textanum einum saman. Erlingur Halldórsson er sjálfsagt kunnáttu- samur leikhúsmaður, leikur hans ber vitni sviðsþekkingu og sviðs legri hugkvæmni. En þetta næg- ir bara ekki til raunverulegs skáld skapar í leikhúsinu. Höfundurinn veldur ekki skáldsköpun efnivið- ar síns í samhengi máls og mynd- ar; skilgreiningu lians í sam- Skiptum lifandi fólks á sviði. Úr- ræði hans verður löngum undar- lega óhlutstæð orðræða, sem með köflum orkar furðu afkára- lega og hvergi megnar að vekja áhuga né andsvar lesanda, né þá, að líkindum, áhorfenda. Dæmi: „(Tromma. — Á baktjaldi kvikmynd af landslagi, tekin á ferð.) GRÍMA (spaugsöm). Hvað er óttalegra Þórður minn, á tím- biskup. GRÍMA: Ha? ÞÓRÐUR: Viðreisnarsinnaður biskup! (Tromma) GRÍMA: Ja, hagfræðingar tefla fram tölum sem maður ætti að trúa, en hver fær trú á bisk- upi þó hann láti byggja kirkju? (Tromma) Hann getur barið bumbur og fyllt kirkjur fyrir mér, ég tek einhvern veginn ekki mark á því. ÞÓRÐUR: Hvers vegna, GRÍMA: Kristindómurinn er hæfileg ástæða fyrir fólk til að hittast. ÞÓRÐUR: Eg er ekki kristinn. (Tromma.) GRÍMA (kerskin); Hittu þá þitt fólk. ÞÓRÐUR (stingur pípunni upp í sig): Mitt fólk eru þeir sem ekki vilja mink . . Og svo framvegis, allt með sömu dauðans alvörunni. Nú er það vissulega hugsandi að textabútur af þessu tagi reynd- ist raunverulega starfhæfur í réttu samhengi sínu. Hér er hann einungis tekinn upp til dæmis um orðræðuaðferð leiksins sem alla tíð virðist stunda eftir þversögn- um, fjarstæðum sjálfra þeirra einna vegna, án þess þeim sé nokkru sinni skipað saman, feng- in staðfesta í áþreifanlegu mann- legu samhengi sem kynni að veita táknbáknum leiksins inntak og merkingu. Erlingur Halldórsson getur formað einstök orðsvör eðlilega og stundum hnyttið, en ekki heilleg samtöl eða þætti sem veki eða haldi athygli; orðræða hans sannar engan mannlegan veruleik á sviðinu sem kynni svo að skírskota til einhvers veruleika utan þess. Má vera þetta sé vituð aðferð hans; má vera hann hugsi sér að tíu myndir Minkanna skír- skoti á einhvern beinni hátt til Framh. á 10. síðu. SAMVINNUSKÓLANUM AÐ BIFRÖST SLITIÐ SAMVINNUSKÓLANUM Bifröst var sagt upp 1. maí s.l. Fór at- höfnin fram í hátíðasal skólans og hófst með því, að skóiastjóri, sr. Guðmundur Sveinsson. gerði grein fyrir starfi skólans liðið skólaár. Engar breytingar urðu á föstu kennaraliði skólans, en nýr stundakennari, Mr. Donald Brand er sendikennari, kom að skólan- um og annaðist kennslu og þjálf- un í enskum framburði og hafði talæfingar með nemendum. í vetur stunduðu nám í skól- anum 72 nemendur. 34 í 1. bekk en 38 í 2. Luku þeir allir prófi og stóðust, í I. bekk hlaut einn nemandi, Þorsteinn Þorsteinsson frá Hofsósi, ágætiseinkunn, 9,10, og 32 I. einkunn. í 2. bekk fengu tveir ágætiseinkunn, Hreiðar Karlsson frá Narfastöðum. Suð- ur-Þingeyjarsýslu, 9,41, sem jafn framt er hæsta einkunn í skól- anum á þessu ári, og Halldór Ás-* grímsson frá Höfn í Hornafirði, 9,05, 34 nemendur I. einkunn og tveir II. einkunn. í sambandi við vetrareinkunna gjöf var tekih upp sá nýbreytni að halda skýndinróf í öllum náms greinum mánaðarlega. Þót'ti þettá eefa góða raun og stuðla að jafnari le'-trj jafnframt því sem nemendur áttu auðve’dara með að átta sig á og fylgjast með framförum sínum í einstökum greinum. Að bessari greinargerð lok- inni voru braiitskráðum nemend um afhent skírteini þein’a. Þá lék hliómsveit skólans nokkur lög. Að því loknu fór fram af- hending viðurkenninga og verð- launa. Umsiónafmenn hlutu bækur að launum fvrir vel unnin störf. Hreiðar Karlsson lilaut bókaverð laun fvrir námsafrek og enn- fromur bókfærslubikarinn fyrir beztan áraneur í bókfærslu. Anna Harðardóttir, Akranesi, hlaut neninsaverðiaun frá Verzl- unarmannafélasi Reykjavíkur fyr ir hæsta einkunn í vélritun. For- maður nemendasambands Sam- vinnuskólans. Óli Hörður Þórð- arson. sölustíóri, afhenti verð- launagrip, sfyttu með merki Sam bandsins. sem eefin er í tilefni áttatfu ára afmælis Jónasar Jóns sonar frá Hriflu, fyrrv. skóla- stióra Samvinnuskólans, o? veit- ast skal Þrrir beztan árangur í samvinnusögu. Að þessu sinni Maut Hreiðar Karlsson þennan grin. í stuttu ávarpi, sem skóiastjóri flntti til að bakka þessa giöf, ffiinntist hann Jónasar .Tónsson- ar og starfa hans í þágu skólans og samvinnuhreyfingarinnar og skvrði frá bví, að stjórn Sam- bands íslenzkra samvinnufélaga befði ákveðið að minnast afmæl- isins með bví að gangast fyrir stofnun sérstakrar deildar innan bókasafns skólans, sem bæri nafn Jónasar og helguð væri al- mennum félagsfræðum og gæti orðið vísir að félagsmálabóka- safni samvinnumanna. Hefur stjórnin ákveðið að leggja fram í þessu skyni áttatíu þúsund krónur á þessu ári. Að lokinni afliendingu verð- launa söng blandaður kór nem- enda nokkur lög undir stjórn, Hauks Gíslasonar, Borgarnesi. Síðan fluttu ávörp tveir úr úr hópi gesta Hrólfur Hall- dórsson, fulltrúi, Reykjavík, tal aði fyrir hönd 10 ára nemenda, þ. e. þeirra, er brautskráðust síðastir úr SamvinnuSkólanum undir stjórn Jónasar Jónsonar, meðan skólinn starfaði í Reykja vik. Færðu þeir skólanúm pen- ingagjöf í sjóð, sem stofnaður var 1963 og helgaður er minn- ingu Jónasar Jónssonar og konu hans, Guðrúnar Stefánsdóttur, og á meðal annars að styrkja nemendur til utanfarar og fram haldsnáms. Síðari ræðumoður-* inn var fulltrúi 25 ára nemenda, Jóhannes Þ. Jónsson, kaupfélags stjóri, Suðureyri, sem einnig af- henti peningaupphæð i sama sjóð. Að ræðum loknum flutti- frú Ása Hansen, Svaðastöðum, Skagafirði, frumort kvæði tj»- skólans, en hún var ein í hópl 25 ára nemenda, sem heimsóltu skólann þennan dag. Þar næst fluttu stuttar ræður fulltrúar heimamanna staðarins, Ingólfur Sverrisson f. h. nem- enda I. bekkjar, Jóhann Ellert Ólafsson f. h. þeirra, er braut- skráðust og Vilhjálmur Einars- son f. h. kennara skólans. Að lokum flutti skólastjóri skólaslitaræðu og skólakórínn flutti söng samvinnumanna und- ir stjórn Hauks Gíslasonar. Að athöfninni lokinni þágu gestir Framhald á 10. síffu. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 12. maí 1965 MinningarorS: Sigríður Guðmundsdóttir Hinn 4. þ m. andaðist frú Sig ríður Guðmundsdóttir í Landa- kotsspítala eftir margra ára van heilsu. Hún var fædd 4. febrúar 1898, og var því rúmlega. 67 ára, er hún lézt Foreldrar henn ar voru þau Guðmundur Guð- mundsson og Sigurveig Einars dóttir í Skógholti, er síðar nefndist Skáholt. Sigríður gekk í Kvennaskólann hér í Reykja vík. Hún giftist eftirlifandi mannj sínum, Ingólfi Bjarna- syni verzlunarstjóra, 27- ágúst 1932. Bjuggu þau lengi að Hól um við Kleppsveg, en síðustu ár in að Silfurteig 2 hér í borg Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið, og eru 3 dætur á lífi, Sigríður bankaritari elzt ógift,) Guðrún og Ingibjörg (báð ar giftar). Dreng misstu þau hjón í frumbernsku. Sá, er þessar línur ritar kann ekki að rekja ættir Sigríðar, en á margar góðar minningar um hina látnu heiður^konu- Hún var ekki allra „viðhlæj andi“, nokkuð „seintekin" sem kallað er, en trölltrygg þeim, er hún batt vináttu við, — kjarna- kona- Manni sínum og börnum bjó hún mjög ánægjulegt heimili, enda mætti segja, að hún lifði fyrir heimili sitt og fjölskyldu Samt sem áður hafði hún víðan sjóndeildarhring, og áhuga á andlegum málefnum, en þar kaus hún frjálslyndi og fagur- hyggju, en ekkert volæði eða váboðun (,,alarmisma“). Hún gekk í Guðspekifélagið og var meðlimur þess til hinztu stundar. Er mér kunnugt um það, að í veikindum hennar hvarflaði hugur hennar oft til kenninga þeirra, er sá félags skapur heldur á lofti og taldi hún sig eiga þeim mikið að þakka. í banalegunni hafði hún. með sér til lesturs bækur, er um slík málefni fjalla, að svo miklu leyti sem grið væru gefin tti slíkra athafna. > SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIB Yfirleitt virtist mér hún haía mjög heilbrigðar skoðanir á hlutunum, eins og komizt er a9 orði- Hún var ein af þessuffi eðlisgreindu konum, sem ratg réttar leiðir án mikilla heilar- brota, og eru farsælar í störfunt sem þær rækja á yfirlætislaus an og hljóðan hátt. íslenzka þjó3 in hefur aUtaf átt — og| á sem betur fer enn — marg^t siiha ^kvenkosti", þrátt fyrir „bítla”- æði og aðra tízkuóra. Vil ég I þessu sambandi nota tækifærlff til að þakka fyrir margar góða* Framh. á 10. ’síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.