Alþýðublaðið - 12.06.1965, Blaðsíða 2
siáastlidna nótfr
★ SAIGON: — Bandarískar flugvélar og sudur-vietnamlskir
fiermenn ráku í gær flótta einnar hersveitar Vietcong í skógunum
ijmhverfis bæinn Dong Xoai. Hundruð líka lágu á víð og dreif í
fcænum og grátandi konur og börn leituðu að ættingjum í rústum
theimila sinna.
★ WASHINGTON: — Sendiherra Bandaríkjanna í Saigon,
hlaxwell Taylor, sagði í gær, að sókn sú sem búizt hefði verið við
«f hálfu Vietcong væri liafin og að búast mætti við' hörðum bardög
lim næstu tvo mánuði. Hann sagði að sóknin væri mjög mikilvæg
f.vrir Vietcong, og á hinn bóginn væri mjög mikiivægt fyrir Banda
ríkjamenn að hún bæri ekki árangur.
★ BONN: — De GauIIe forseti og Ludivig Erhard kanzlari
ræddust við í gær skömmu eftir að forsetinn kom til Vestur-Þýzka
lands í opinbera heimsókn. Hvergi var flaggað í Bonn við komu
de Gaulles til Bonn og andrúmsloftið var kuldalegt. Vestur-Þjóð-
verjar telja, að engar mikilvægar ákvarðanir verði teknar, er
fcætt geti samskiptin meðan á lieimsókninni stendur.
★ HOUSTON: — Geimfarinn Edward White sagði í gær að
liann hefði skotið sér sjálfur út úr Gemini-geimfarinu áður en hann
fór í „göngufcrðina“ í geimnum. Hann kvaðst ekki hafa átt í nein-
«jm erfiðleikum með að „ganga" ofan á geimfarinu.
★ MOSKVU: — Wallenberg-málið var tekið fyrir í viðræðum
Erianders, forsætisráðherra Svía, og Kosygins, forsætisráðherra
Rússa, í gær, en Rússar halda því enn fram að ekki hafi tekizt að
finna stjórnarerindrekann sem hvarf er Rússar hertóku Búdapest
■í lok heimsstyrjaldarinnar.
★ NEW YORK: — Albanía, sem oft er talin málpípa Kín-
verska alþýðulýðveldisins hjá SÞ, tók skýrt fram í gær að Kínverj
ar mundu ekki taka þátt í neinum alþjóðaviðræ'ðum um afvopn
unarmál, sem SÞ mundu boða til meðan landið hefði ekki aðild
að samtökunum.
★ BÚDAPEST: — Franz Koenig kardináli, erkibiskup Vínar
borgar, kom til Búdapest í gær að heimsækja yfirmann ungversku
fcirkjunnar, Jozsef Mindzenty kardinála. Koenig er helzti samn-
•ángamaður Páfagarðs gagnvart Austur-Evrópu.
191,6 milljón kr.
aukning á veltu
63. aðalíund/ur Santbands ísl,
samvinnufélaga hófst að Bifröst
í Borgarfirði í morgun. Til fund
ar eru mættir hátt á annað hundr
að manns; fulltrúar kaupfélaga
stjórn SÍS, forstjóri framkvæmda
stjórar og margt annarra starfs
manna og gesta.
Á fundinum í dag fluttu stjórn
arformaður forstjórj og fram
kvæmdastjórar Sambandsins
skýrslur sínar um starfsemina á
árinu 1964.
Heildarvelta Sambandsins á ár
inu nam 2.021,8 milljón króna og
er þar um að ræða 191,6 milljón
ir króna aukningu frá því árinu
áður.
Formaður stjórnar Sambands
ins, Jakob Frímannsson kaupfélags
stjóri setti fundinn og bauð fund
armenn velkomna- Hann minntist
samvinnuleiðtoga, sem látist höfðu
á árinu frá því að síðasti aðal
fundur var haldinn. Vottuðu fund
iarmenn hinum látnu virðingu
sína með því að rísa úr sætum.
Að loknum störfum kjörbréfa
nefndar fór fram kjör fundar
stjóra og var einróma kjörinn Þor
steinn Sigurðsson, Vatnsleysu og
til vara Jón Jónsson, Dalvík.
Fundarritarar voru kjörnir þeir
-Óiskar Jónssþn, S(elft>ssi, Skúli
Ólafsson, Reykjavík og Sigiu-ður
Óll Brynjólfsson, Akureyri-
Frá Iðjufundinum í Iðnó í gær. (Mynd: JV)
IÐJA SAMÞYKKTI
Reykjavík. —
Á FIMMTUDAG náðist sam-
komulag milli Iðjufélaganna í
Reykjavík, Hafnarfirði og Akur-
«.vri og fulltrúa iðnrekenda um
íiýja samninga. Iðja í Reykjavík
•hélt félagsfund í Iðnó síðari hluta
dags I gær og voru nýju samn-
imgarnir samþykktir með um 250
. Btkvæðum gegn u.þ.b. 70 atkvæð-
um. A að gizlca 300 manns voru á
fundinum.
Samkomulagið við Iðjufélögin
byggist í meginatriðum á þeim
samningum, sem gerðir voru við
verkalýðsfélögin fyrir norðan og
austan, þ.e.a.s. almenn kauphækk
un verður 4% og vinnuvikan stytt
ist úr 48 stundum í 45 á óbreyttu
kaupi. Að auki voru ýmsar smá-
vægilegar breytingar gerðar á
samningunum. T. d. lengist sumar
leyfi þeirra sem unnið hafa 20
ár og lengur lijá sama atvinnurek-
anda úr 24 dögum í 27 daga og
þeir sem vinna sérlega óþrifalega
vinuu fá ókeypis vinnuföt eftir
þörfum og þvott á þeim.
Samningarnir gilda frá 1. júní
í ár til 1. júní 1966, eða í rétt ár.
Þá flutti Jakob Frímannsson, for
maður Sambandsins, skýrslu
stjórnarinnar og gerði grein fyrir
helztu framkvæmdum Sambands
ins á liðnu starfsári. Var á árinu
haldið áfram við ýmsar bygging
arframkvæmdir, sem byrjað hafði
verið á 1962 og 1963. Lokið var
við þyggingu Ármúlaj 3, Ullar
þvottastöðvarinnar í Hveragerði
fyrsta áfanga kjötstöðvarinnar á
Kirkjusandi og íbúðarhús fyrir for
stöðumann verksmiðjunnar Varae
í Borgarnesi. Eina nýja byggíngat
framkvæmdin, sem byrjað var á
á árjnu er viðþygging við Skinna
verksmiðjuna Iðunni- Alls nam
fjárfesting SÍS í byggingarfrara
kvæmdum á árinu kr. 16-323.000.
00, á móti þeirri uppliæð kom lán
að upphæð nærri 23 milljónjr
króna. Kom Mælifell til landsins
16- apríl 1964.
Fr'amhald á 15. síðu
FÁIR FUNDIR OG
LITILL ÁRANGUR
Reykjavík. — EG.
UNDIRNEFNDARFUNDUR var
í gærmorgun hjá fulltrúum verka
lýðsfélaganna fjögurra hér í
Reykjavík og í Hafnarfirði, sem
undanfarið hafa verið á fundum
með sáttasemjara og atvinnurek-
endum. Annar fundur verður í
dag, en um belnan árangur er
ekki hægt að fjölyrða.
Ekki er búizt við sáttafundi í
verkfalli þjóna, þerna og mat-
sveina á kaupskipunum og strand
ferðaskipunum fyrr en eftir helg-
ina, en verkfall hófst hjá þessum
stéttum á miðnætti aðfaranótt
föstudagsins.
Á aðalfundi Félags síldarsalt-
enda á Norður og Austurlandi var
eftirfarandi tillaga samþykkt í
fyrradag. 21 greiddi atkvæði með
tillögunni, 3 voru á móti og fimm
greiddu ekki atkvæði.
„Aðalfundur FSNA telur sjálf-
sagt, að allir atvinnurekendur á
Norður- og Austurlandi fari að
öllu leyti eftir samkomulagi því
um kaup og kjör, sem undirritað
STÆKKUN Á
BREIÐADALSVÍK
Reykjavík. — GO.
SÍLDARVERKSMIÐJAN á
Breiðda'lsvík hóf bræðslu 9- þ. m.
Verksmiðjan er gefin upp fyrir 500
mála afköst á sólarhring, — en
bræðir upp í 1000 mál. Þróarrými
er fyrir 5—6000 mál og búið er
að taka við um 5000 málum alls.
í gær, þegar við áttum tal við
framkvæmdastjóra bræðslunnar,
var veður hið ákjósanlegasta, 2000
mála pláss í þróm og bátar á leið
inn með um 2500 mál.
Eftir næstu mánaðamót verður
lokið við stækkun, sem nú fer
fram á verksmiðjunni og verður
hún þá með 1200 mála afköst
á sólarhring.
var á annan í hvítasunnu, hinn
7. þ. m. í Reykjavík af öllum full
trúum vinnuveitenda og fulltrúum
verkamanna frá þessu svæði, sem
þátt tóku í samningunum, að ein
um undanteknum.
Telur fundurinn, að vinnufrlðn
um og afkomu síldarútvegsins I
heild sé stefnt í voða með því að
gera tilraun til að kollvarpa sam-
komulagi, sem svo almenn sam
staða hefur orðið um, og alvar-
leg tilraun til að hnekkja sam-
komulaginu geti ekki leitt til
annars en mjög alvarlegs tjóns
fyrir alla aðila.”
LIK ENSKA
PILTSINS
ER FUNDIÐ
Reykjavík, 11. júní — ÓTJ.
LÍK enska plltsíns, Anthony
Dean Goffins fannst í gær rekið
í flæðarmálinu rétt norðan við
Gufuneshöfðann. Er taiið að haiut
hafi drukknað. Goffin, sem stund-
aði tónlistarnám í heimalandi sínn
kom hingað fyrir nokkru til að
skoða sig um.
Hann fékk sér vinnu hjá sorp-
hreinsun Reykjavíkur og hugðist
vinna sér inn nægilega mikið fé
til að geta ferðast eitthvað um,
áður en hann héldi utan aftur.
Þegar hans var saknað, var gerð
viðtæk leit, og m. a. flaug þyrla
Landheigisgæzlunnar yfir Esju, en
hann hafði haft við orð að klífa
hana. En öll leit reyndist árang-
urslaus, og ekkert var um piltinn
vitað fyrr en í gær. Foreldrar hans
komu hingað skömmu eftir að
j liann týndist, en héldu svo utan
i aftur, þegar hann var talinn af.
2 12. júní 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ