Alþýðublaðið - 12.06.1965, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 12.06.1965, Blaðsíða 10
I | jÉ Danmörk - Svíjb/oð - Rúmeníaá i 29.7. - /9.8. 22 daga ferð | t, 1/1 i<n nn Y//JW. Y/. m jg !f i| 1 í Ve/ð Ar. 14.360.00 Fararsíjóri: Gestur Þorgrímsson. Ferðir, hótel, matur og leiðsögn innifalin í verði. Aðeins morgunmatur í Kaupmannahöfn. Ferðir til Istanbul, Odessa, og innan lands gegn vægu aukagjaldi. Ferðamannagjaldeyrir. 300 sól ardagar á ári. Þægilegt loftslag. Nýtízku hótel og gott fæði. Tryggið ykkur far í tíma. Ódýr- ustu Rúmeníuferðir sem völ er á. Örugg farar- stjórn. Höfum nú þegar sent yfir 50 manns. Ferðaáætlun: 29. júlí: Flogið til Kaupmanna- hafnar og dvalið þar 2 daga. 31. júlí: Farið með ferju til Maimö og flogið samdægurs til Con- stanta og ekið, til Mamaia baðstrandarinnar við Svaitahaf og dvalið þar í hálfan mánuð á hótel Doina. 14. ágúst: Farið frá Mamaia til Constanta og flogið til Malmö en þaðan farið með ferju til Kaupmannahafnar og dvalið þar 6 daga. 19. ágúst: Flogið til íslands. LAN □ S d N T ! v 10 12- júní 1365 # BILLINN Bent an Icecer sími 1 8 8 33 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Fimmtugur Framhald af 7. síðu að komast hjá því, að taka að sér ýms aukastörf, sem hann, með öll sín hugðarefni á sviði ís- lenzkra fræða, hefði betur verið laus við, sum hver að minnsta kosti, þótt hann skoraðist ekki undan þeim. Á ég þar einkum við það, að hann var skipaður for- maður landsprófsnefndar mið- skóla árið 1948 og gegndi því tímafreka starfi í samfleytt átján ár áður en hann létti því af sér í byrjun þessa árs. En þá höfðu að visu þegar fyrir löngu verið lögð á herðar honum þrjú önnur aukastörf: Hann var kosinn í stjórn þjóðvinafélagsins árið 1958 og ráðinn ritari hugvísinda- deildar vísindasjóðs sama ár; gegnir hann báðum þeim trún- aðarstörfum enn. Loks tók hann árið 1962 sæti í nýyrðanefnd, sem þá var starfandi á vegum orða- bókar háskólans; og þegar sú nefnd var nýlega endurskipulögð undir nafninu íslenzk málnefnd, j var hann einnig skipaður í hana. j Hygg ég að Bjarni uni sér vel ■ við það aukastarf, enda er hann j áhugasamur og oft slyngur orða- smiður. Eg hef verið svo heppinn að eiga Bjarna Vilhjálmsson að sam- starfsmanni tvisvar sinnum á æv- inni: fyrst við Alþýðublaðið fyrir hartnær aldarfjórðungi, þá að vísu ekki nema eitt ár; en nú við þjóðskjalasafn árum saman. Betra samstarfsmann á ég bágt með að hugsa mér, enda fer hjá honum flest það saman, sem hverjum manni má til ánægju og ávinnings verða í daglegri um- gengni og samvinnu: góðar gáfur, yfirgripsmikil menntun og létt lund. Um gáfur Bjarna og mennt- un er óþarft að fara hér fleiri orðum. í þeim efnum sýna verkin merkin. En skapgerð hans og mannkosti þekkja þeir einir, sem hafa umgengizt hann eða átt við hann samstarf. Þeir eru að vísu margir, enda er Bjarni vinsæll maður; og engan veit ég hann eiga sér óvildarmann. Er hann þó enginn jábróðir manna; þvert á móti hefur hann mjög ákveðnar skoðanir bæði á mönnum og mál- efnum, er fastheldinn við þær og lætur ekki hlut sinn fyrir nein- um, ef því er að skipta. Honum er yfirleitt ekkert fisjað saman. Fram á þennan dag hefur hann haldið tryggð við alþýðuhreyf- ingu þessa lands, sem hann komst ungur í kynni við á háskólaárum sínum; og fáa skólabræður þekki ég, sem eins miklir kærleikar eru með, þótt árin hafi liðið, og með Bjarna og skólabræðrum hans frá Akureyri, sumum hverjum að minnsta kosti. Þetta lýsir mannin- um, tryggð hans og trúfesti. En hann er líka einstaklega ánægju- legur samferðarmaður og félagi: alltaf hjálpfús og velviljaður og í alla staði drengur hinn bezti; I viðræðum gamansamur og oft skemmtilega kýminn, þótt alltaf sé gaman hans græskulaust. Hann er elnn af þeim mönnum, sem segja má, að beinlínis sé raannbætandi að umgangast. Kvæntur er Bjarni ágætri konu, Kristínu Eiriksdóttur, ætt- aðri vestan af Hesteyri við Isa- fjarðardjúp. Eiga þau fjögur börn, tvær dætur og tvo syni, sem öll mega nú heita upp komin og eru hvert öðru efnilegra. Óska ég þeim öllum hjartanlega til ham- .igju á þessum afmælisdegi eimilisföðurins; en honum þakka ég ótaldar ánægjustundir, sem ég hef átt í samsua við hann bæði fyrr og síðar, og bið hann lengi iifa. Stefán Pjetursson. Hjótbarðavlðgerðir OPIÐ ALILA DAGA (LÍKA LAUGARDAGA OG SUNI'ÍUDAGA) FRÁ KL. 8 TIL 22, Gúmmívinnustofan h/£ Skipboltl 35, Rej’kJovOc. Klippt og skorið Framhald. af 16. síðu. hvað þær eiga að heita, en auð \vitað skiptir þaí elngfc máliL Myndirnar eru til að skoða og svo má líka hrista þær þá glamrar í þeim svo >að það er hægt að spila á þær. Annars verður hér mikið spilverk í dag við opnunina. Þá verður frumflutt af segulbandi verk eftir Atla Heimi Sveinsson sem hann kallar Viðbrögð. — Sigurjón: — Við létum diter rot gera fyr ir okkur sýningarskrá og nú er ég orðinn hálf hræddur um að hún sé of fín og beri myndirnar ofur liði, en við skulum vona að gest irnir hafi hana bara í vasanum meðan þeir skoða sýninguna. Ann ars gera þeir varla annað á meðan þeir virða fvrir ‘■ér skvána því hún er heill fermeter að stærð og prenb"ð beseia megin á hana og það má dÞer eiea að hann gleymdi ekki að hafa myndlistann á henni, híns vegar var ekki pláss fyrir verðlistann. — Hreinn. — Nei. riei. b°tta er ekk; fyrsta svningin mín. Ee hef einu sinni svnt eina mynd áður- Tek aff mér hvers konar (iýffingar úr og á ensku. EIÐUR GUÐNASONí Skipholti 51 - Sími 32933. iöggiltur dómtúlkur og hkjala- þýðandi. Einangrunargler Framleitt einungis úr úrvalsgleri — 5 ára ábyrgð. Pantiff tímanlega. Korkiðjan hf. Skúlagötu 57 — Sími 23260. SMURSTÖÐIN Sætóni 4 — Sími 16-2-27 BílUnn er smurður fljótt og vel. Soljum allar teguadir af smurolíu SKIP M.s. Skialdhreið fer vestur um land til Akureyrar 16. þ. m. Vörumóttaka árdesis á laugar- dag o? mánndag'ti't áæilunarbafna við Húnaflóa oe Skagafjörð. Öl- afsfjarðar og P'dvfkur. Farseðls.r seidir á þriðjudag. K.F.U.M. Almenn samkoma á vegum Kristniboðssambandsins annað kvöld kl. 8 30 í sambandi við heimkomu frú Áslaugar og Jó- hannesar Ólafssonar, kristniboðs læknis. Giöfum til kristnibcðs veitt móttaka. Kristniboffssamkoma. Frú Ásla'ie og Jóhannes Ólafs son, kristniboðslæknir. eru komin heim í hvfldarlevfi frá störfum í Eþíópíu. Verða þau boðin velkom in á kristniboðssamkomu ' húsi K.F.U.M. og K, annað kvöld kl. 8,30, Jóhannes Ólafsson talar. Gjöfum til kristn’boðsins í Konsó veitt viðtaka í samkomulok. Allir velkomnir. Samband ísl. kristniboðsfélaga. 21690 |

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.