Alþýðublaðið - 12.06.1965, Side 6

Alþýðublaðið - 12.06.1965, Side 6
 L U E El IN N w Áður ókunnur ættbálkur finnst á Nýju Guíneu Áður óþekktur ættbálkur inn fæddra hefur fundizt á afskekktu isvæði í hinu torfæra Sepik—hér aði á Nýju Guíneu. Úr þyrlu sá starfsmaður land s*jórnar Ástral íumanna kofa i fjallshlíðunum og gizkaði á, að ættbálkurinn væri minnst 8Ö0 manns — en gæti verið allt að 1500. í Po -t Moresby er upplýst, að menn Jiafi haft grun um, að fólk byggi á þessu svæði, en ekki hefði verið talið, að það væri svo margt. Leiðangur verður nú gerður út til að reyna að ná sambandi við ættbálkinn, sem talinn er vera sama manngerð og Temefomin— ættbálkurinn — einn hinn frum AF fögulegum minjum á Bretlandseyjum koma langsam lega flestir til að skoða Tower í London. X fyrra komu þangað ekki færri en 1,6 milljónir gesta. Næst að vinsældum koma svo Edinborgarkastali, Hampton Court og Stonehenge- stæðasti á Nýju Guíneu- Það er erfitt s+arf sem bíður leiðangurs manna, því að a.m.k. Temefominar hafa hvað eftir annað ráðizt á flokka stjómarvaldanna, og þar að auki þarf leiðangurinn að sækja yfir 3000 metra háan, skógivaxitm fjallgarð til að ná *il ættbálksins. Judy Holli day látin AMERÍSKA leikkonan Judy Holliday lézt í New York á ann an í hvítasunnu nálega 42 ára að aldrj- Judy hlau* heimsfrægð og Oscar-verðlaun 1951 fyrir leik sinn í myndinni Fædd í gær( en síðar kom hún fram í fjölmörg um kvikmyndun. 1952 var hún kölluð fyrir rannsóknarnefnd amerísku nefndarinnar vegna þess að hún hafði lánað alls konar vinstri sinnuðum félögum nafn sitt- Flugvéiaverkfræ'ðing'ar eru stöðugt að vinna ao Uukmiigum og smíði flugvéla, sém geti tekið sig upp lóðrétt til flugs og lent þannig líka (VTOL). Margir vinna að þessu með þotuhreyflum, en sérfræðingar munu vera sammála um, að hentugra sé að nota skrúfuhreyfla við þetta. Hér sjáum við módel, sem vestur-þýzka fyrirtækið VFW er að vinna að og nefnist VC-400. Vængjunum er snúið í flugtaki og Iendingu, en leggjast fram, þegar flogið er lárétt. Til öryggis eru allir fjórir hreyflarnir tengdir saman, þannig að þótt einn bili, knýja hinir skrúfu hans. Sömuleiðis á vélin að geta flogiff á tveim hreyfl-im, sem eru skáhallt hvor á móti öðrum, og gæti þá lent á venjulúgan hátt á sæmilega langri braut. Enn einn kostur viff þetta fyrirkomulag á hreyflum mun vera sá, aff ekki er nauffsynlegt aff koma ílutningi fyrir nákvæmlega á og kringum þyngdarpunkt vélar- innar. Þessi vél á aff geta flogiff meff 800 km hraffa og flutt 36 . farþega effa; 3,5 tonn af flutningi. ÞAB hefur valdiff mikilli hugaræsingu úti í hinum stóra heimi, aff Ijósmyndari einn hefur gert Soraya, fyrr verandi keisaradrottningu í írant tilboff um 15.000 doll ara laun fyrir aff sitja fyrir nakin á mynd (samanber hina frægu mynd af Marilyn sálugu Monroe) og skyldi myndin birt í hinu þekkta, ameríska karímannablaði Playboy. Tilboff þetta þótti því ó- svífnara sem það er vitaff mál, aff við tökuna á kvik- mynd þeirri, sem Soraya hefiu- þegar leikiff í, neit aði hún meira aff segja aff kyssa. Viffbrögff Soröyu sjálfrar ku hafa verið ofsa- Ieg. Og svo mikiff er víst, að Playboy hefur séff sitt ó vænna og segir nú, aff ljós- myndarinn sé ekki starfs maður .blaffsins og hafi gert þetta tilboff án samráðs viff blaffiff.: >oooo<>oooooooooo HREINSUN í NEW YORK Nú er allt útlit fyrir það, að gestir í New York geti ekki leng ur farið í Greenwich Viliage, eins og í hvem annan dýragarð, til að sjá begtnikka og aðrar furðu verur tuttugustu aldarinnar. Wagn er borgarrtjóri hefur nefnilega gefið út skipun um, að „honky— tonk“ andrúmsloftinu í þessu hverfi sktili útrýmt. Drykkjumenn, flækingar og bullur verða reknir úr kjallaraholunum, þar sem þeir hafa hafzt við og til þess settar sterkar ilögreglusveitir. Beatnikkar njr .hóta stríði, hinir raunveru legu bóhemar, sem stunda listir sínar í ódýru húsnæði á s*aðn um, þakka sínum sæla fyrir að losna við lýðinn. ★ Ódýrara að gefa vín en vatn! Við höfum áður skýrt frá því í þessum dálkum hve gífur- legur þurrkur gengur yfir New York um þessar mundir* En New York er ekki ein um þetta. Á æ stærri svæðum í Bandaríkjunum er þurrkurinn um það bil að verða háskalegur og Johnson forseti hef- ur beðið þingið um stóra fjárveitingu til rannsóknarstarfa, er miðast eiga við að hindra, að ríkin verði ein stór eyðimörk. Annars mun vera orðið svo lítið um vatn í New York, að svo kann að fara, að hinir stæi-ri veit- ingastaðir taki að bjóða mönnum ókeypis vín í stað vatns með mat. — Það er ódýrara fyrir okkur en bera fram vatn, segir einn þjónanna. ^ Ofdrykkja indíána. AMERÍSKT whiskyfyrirtæki. hefur stöðvað auglýsingaher- ferð um öll Bandaríkin vegna-þess að auglýsingarnar særðu þá ágætu menn indjána. Auglýsingin var mynd af indjána, . stríðsmáluðum, með glas af whiskýi fyrirtækisins : hendinni ; — og undir stóð; — Ef Sioux-indjánarnir hefðu þekkt svo milt whisky sem okkar, hefðu þeir aldrei kallað það „eld- vatn“. Nú hefur indjánasambandið lýst yfir: — Þessar auglýsing ar gera grín að hlut, sem var og er enn, mi-kill mannlegur harmleikur. Hann hófst fyrir mörgum mannsöldrum, þegar ind jánar tóku að drekka. Enn þann dag í dag er of- drykkja hræðilegt vandamál meðal ættbálka indjána. ★ Heppin leikkona. Þegar Jayne Mansfield heyrði fyrir nokkrum mánuðum, að hún gæti fengið keyptan búgarð í Texas, þar sem hún hafði leikið :■ sinni fyrstu kvikmynd, sló hún umsvifalaust til. Hún á víst ekki eftir að sjá eftir því — því að á meðan verkamenn voru að gera sundlaug á búgarðinum, rákust þeir á olíubrunn, — og hann getur gefið af sér góða peninga, sagði verkstjórinn. Þá má segja, að það er ekkert hálf- verk á neinu í sambandi við Jayne þessa. En allavega er hún búin að stofna „Mansfield Petroleum Company“ ásamt fjölda spekúlanta. ★ Hjónabönd söngkonunnar. Dægurlagasöngkonan Lilla Ringiein frá Frankfurt hefur verið gift öllum hinum þremur meðlimunum í kvartettinum, sem hún kraftbirtir söngrödd sína í. Hún er nú nýskilin við ur. 3 — og nú hyggst hún ganga : hjónaband með framkvæmda stjóra kvartettsins. ★ Hún er of feit fyrir mig“. Elizabeth Taylor, hin fimm sinnum gifta „fegursta kona 20. aldar“, fékk nýlega að gjöf frá kvikmyndastjóra sínum, Marty Ransohoff, demant, sem kost- að hafði 600.000 krónur. — En nú er hún búin að senda honum hann aftur í ofsareiði. Móðgunin stafar af því, að í mynd- inni „Sandpiper“ hafði Marty klippt burtu þriggja mínútna senu, þar sem Liz sást lítt klædd sem fyrirsæta hjá myndhöggyara. Marty segist hafa gert þetta vegna Liz sjálfrar og kvik- myndaeftirlitsins, en hún vill ekki hlusta á slíkt. — Þetta er skemmdarverk við framtíðarstarf mitt, segir hún. Hún er nefnilega sögð hrædd um, að áhorfendur fari aftur að raula, eins og komið hefur fyrir áður: — She’s too fat for me. ★ Skotasaga. Fjórir Skotar sátu saman í klúbb sínum £ Edinborg. Allt í éinu tók Mclntosh upp vindlaveski sitt og bauð sessunaut sínum til hægri vindil. Sá afþakkaði. Þá bauð hann sessunaut sínum til vinstri. — Nei takk, þú veizt vel, að ég reyki ekki. Þá tók Mclntosh upp úr veskinu forláta vindil og kveikti í honum af mikilli nautn. Þá sagði sá fjórði: — Og hvers vegna býður þú mér ekki vindil? — Kæri vinur. svaraðl Mclntosh, ég veit vel, að þú reykir. * .VT -■ i HW&.. L ■[$ ' ' t ■:: .X*? ^ ' i £ 12. júní 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.