Alþýðublaðið - 23.06.1965, Síða 5
FRÁ STAFSEMISJÁLFS-
BJARGAR, SAUÐÁRKRÓKI
LOKIÐ er nú starfsári Sjálfs-
bjargar á Sauðárkróki 1964—65,
sem hófst á því, að mikið og al-
varlegt brunatjón varð á félags
heimiiinu, sem nú hefur verið
endurreist og við það aukið stórri
og rúmgóðri vinnustofu. Búizt er
við, að þar komi til með að starfa
ALBERT MAGNUSSON
8—10 manns, sem hafi með hönd-
um samsetningu og pökkun á
framleiðsluvörum vélsmiðju Jón-
asar Guðlaugssonar. Forstöðu-
maður vinnustofunnar er Albert
Magnússon.
Starfsemi félagsins hefur staðið
með miklum blóma á starfsárinu,
þegar tekið er tillit til þess, að
félagsheimilið tók ekki til starfa
eftir brunann fyrr en í febrúar
síðastliðnum. Tekin var upp sú
nýjung um jólin, að 3 jólasveinar
á vegum félagsins drógu sleða
með jólagjöfum ýmissa aðila til
barna í kaupstaðnum og útbýttu
þeim. Mæltist þetta uppátæki vel
fyrir jafnt meðal yngri og eldri
Sauðkræklinga.
Félagið efndi til álfadans og
álfabrennu um nýjárið, og var það
x fyrsta sinn i þrjátíu og þrjú ár,
sem slíkar skemmtanir hafa verið
haldnar á Króknum. Félagsmenn
lögðu á sig mikið starf í sambandi
við hátíðarhöld þessi og voru þau
fjölsótt, þrátt fyrir mjög óhag-
stætt veður.
Haldin voru föndurskvöld, þar
sem unnið var að gerð ýmissa
muna, sem síðan voru seld á
stærsta bazar, sem komið hefur
verið á fót á Sauðárkróki- Einnig
framleiddi félagið á árinu boilu-
vendi, sem sendir voru á markað
hér í Reykjavík, og auk þess
gekkst það fyrir blómasölu í
byggðarlaginu í sambandi við
konudaginn. Seldust blómin þegar
upp og fengu færri en vildu.
Á vegum félagsins fór fram
eitt spilakvöld og annað bingó-
kvöld og loks einn opinber dans-
leikur. Allar voru skemmtanir.
þessar vel sóttar og undirtektir
ágætar. Fimm félagsfundir voru
á árinu og einn skemmtifundur
og tók félagið þátt í árlegri
merkjai, blaða og happdrættis-
sölu Landssambands fatlaðra.
í núverandi stjórn Sjálfsbjarg-
ar á Sauðárkróki sitja Albert
Magnússon formaður, Pálmi Sig-
urðsson varaformaður, Hólmfríður
Jónasdóttir, ritari, Egill Helgason
gjaidkeri og Ragnheiður Þórvalds
dóttir meðstjórnandi.
Virkir félagsmenn eru 75, en
styrktarfélagar. 163.
Pússningarsandur
Heimkeyrður pússningarsand-
ur og vikursandur, sigtaður
eða ósigtaður við húsdyrnar
eða kominn upp á hvaða hæð
sem er, eftir óskum kaupenda.
SANDSALAN sf. við Elliðavog
Sími 41920.
FERÐIR
f VIKU
BESIMALESÐ
TIL
L0ND0N
Verzlanir 1 Piccadilly, veitingahúsin l
Soho, leikhúsin. í West End, listasafnii i
Tate o g flóamarkahurinn á Porto Bello.
LONDON
FerBaskrifstofurnar og Flugfélagið veita
allar upplýsingar.
h//ds\
',ó ///’
/CE1A/VÐ4/H
( I u g f é I ag íslands
Látið okkur ryðverja
og hljóðeinangra
bifreiðina með
TECTYL!
RYÐVÖRN
Skúlagötu 62. Síml 13100.
Látið okkur stilla og
herða upp nýju
bifreiðina!
BlLASKOÐUN
Skúlagötu 32. Sími 13-100
K.S.8
K.R.
K.R.R.
Nú Scikur knaftspyrnusniilingiirinn ÞÓRÖLFUR BECKmeð K.R.
Hann er fryggiur fyrlr 6 milljónir ísS. kr, fyrir þennan eina leik.
f Sjællands Boldspil Uniou- KR
leika á Laugardalsvellinum í kvöld kl. 830.
KomiÖ og sjáið spennandi leik.
Dómari: Steinn Guðmundsson.
Línuverðir: Baldur Þórðarson og Jón Frið-
steinsson.
Verð aðgöngumiða. Stúkusæti kr. 125,00. Stæði kr. 75,00.
Börn kr. 25,00. Börn fá ekki aðgang í stúku nema gegn
stúkumiða. — Forsala aðgöngumiða við Útvegsbankann.
Knattspyrnufélag Reykjavíkur.
Símaskráin 7965
Miðvikudaginn 23. júní n.k. verður byrjað að afhenda
símaskrána 1965 til símnotenda í Reykjavík. Fyrstu tvo
dagana, það er 23. og 24. júní, verða afgreidd símanúmer
sem byrja á tölustafnum einn. Næstu tvo daga, 25. og
26. júní, verða afgreidd símanúmer sem byrja á tölustafn-
um tveir og 28., 29. og 30. júní verða afgreidd símanúmer,
sem byrja á tölustöfunum þrír og sex.
Símaskráin verður afgreidd .í anddyri Sigtúns (Sjálf-
stæðishúsinu), Thoi’valdsensstræti 2, dagl<»«a kl. 9—19,
nema laugardaga 9—12.
í Hafnarfirði verður símaskráin afhent á símstöðinni við
Strandgötu frá þriðjudeginum 29. júní n.k.
í Kópavogi verður símaskráin afhent á póstafgreiðslunni,
Digranesvegi 9, frá þriðjudeginum 29. júní n.k.
Athygli símnotenda skal vakin, á því, að símaskráin 1965
gengur í gildi í júlí n.k.
Símnotendur eru vinsamlega beðnir að eyðileggja gömlu
símaskrána 1964, vegna margra númerabx-eytinga, sem
oi-ðið hafa-frá því hún var gefin út, enda ekki lengur í
gildi.
Bæjarsími Reykjavíkur, Hafnarfjarðar
og Kópavogs.
;
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. júní 1965 $