Alþýðublaðið - 24.06.1965, Page 9
FALL BEN BELLA
MEÐ falli Ben Bella er þróunin
í Alsír komin á nýtt stig- Síðan
haustið 1962 hefur hann haft nær
algert einræðisvald, og gömlum
vinum hans og samherjum frá
dögum frelsisbaráttunnar gegn
Frökkum hefur verið rutt úr
vegi hverjum á fætur öðrum. Nú
er röð.in komin að honum sjálf-
um, og sá maður hefur nú steypt
honum af stóli, sem hann fékk til
fylgis við sig þegar óvíst var,
hver fara mundi með sigur af
hólmi í valdabaráttu þeirri, sem
hófst þegar Alsír hlaut sjálf-
stæði.
Alsír hlaut sjálfstæði í júlí 1962
en traust stjórn komst ekki á lagg
irnar fyrr en þremur mánuðum
síðar. Hinum ýmsu valdaklíkum
•tókst ekki að ná samkomulagi, og
útlagastjórnin hlaut ekki viður-
kenningu sem stjóm landsins. —
Ben Khedda, þáverandi forsætis-
ráðherra reyndi að treys'a sig í
sessi með því að víkja yfirmanni
útlagahersins, sem hafði verið
staðsettur í Túnis og Marokkó,
Boumedienne ofursta. En hann
virti ákvörðunina að vettugi og
snerist í þe&s stað á sveif með
Ben Bellq, sem sleppt hafði verið
úr frönsku fangelsi, þar sem hann
hafði selið inni um fimm ára
skeið-
Bandaiagi Ben Bella og Bou-
mediennes tókst að brjótazt til
valda, þótt skæruliðar
heima fyrir neituðu að leggja
niður völdin, sem þeir höfðu tek-
ið í s:nar hendur- Skæruliðum
tókst ekki að veita 40.000 vel-
þjálfuðum og velvopnuðum her
mönnum Boumediennes við-
nám. Útlagaher hans varð brátt
kjarninn í herafla Alsír- Ben
Bella lagði þannig grundvöllinn
að völdum sínum.
★ Miklar vinsældir.
Ben Bella naut góðs af þeim
miklu vinsældum, sem hann naut.
Fjöldinn dýrkaði hann sem þjóð-
hetju. Fangavistin hafði gert
hann að píslarvo*ti og auk þess
hafði hún það í för með sér, að
hann stóð utan við hið frekar
hversdagslega starf, sem þeir
þjóðernissinnaleiðtogar urðu að
inna af hendi, sem ekki voru í
fangelsi. Þes'ir menn urðu meðal
annars að standa í hinum erfiðu
samningaviðræðum við Frakka,
'og nöfn þeirra voru sett í sam-
band við þau skilyrðí, sem Alsír
varð að fallast á til þess að hljóta
fullveldi.
um að tjaldabaki. Það hefur allt-
af veriö' ljóst, að hann hefur ver
ið æði valdamikill í æð.tu for-
ystunni. í maíbyrjun var hann í
hálfsmánaðarheimsókn í Sovét-
rikjunum og hann var í hópi heið
ursgesta í hátíðahöldunum 1- maí.
AHMED BEN BELLA
— vinsældir komu ekki að^ gagni.
★ Útlagaherinn.
Lítið er um Boumedienne vitað.
Hann er fertugur að aldri sonur
fátæks bónda í Guelma, sem er 60
km sunnan við hafnarbæinn Bone.
Hann er vel menntaður og hefur
stundað nám við Zitouna-háskól
ann í Túnis og E1 Azhar háskólann
í Kairo- Vitað er að Boumedienne
er eldheitur Múhameðstrúarmað-
ur. Að lokinni skólagöngu mun
hann hafa fengizt við kennsiu-
störf um nokkurra ára skeið í Al-
sír- Þetta var á árunum fyrir liina
miklu uppreisn gegn Frökkum
1954, og eftir það helgaði hann
uppreisninni alla krafta sína.
Að nokkrum árum liðnum varð
hann yfirmaður allra hersveita
uppreisnarmanna í .Vestur-Alsír
Eftir 1958 vann hann að skipu
lagningu útlagahersins í Marokkó
og Túnis, og á síðustu árum AI-
sírstyrjaldarinnar kom hann upp
öflugum her. En her þessum tókst
ekki að taka virkan þátt í stríð-
inu vegna öflugs eftirlits Frakka
á landamærunum. Útlagaher hans
fékk flest þau vopn, sem útlaga
stjórninni tókst að kaupa í Austur
Evrópu og Miðausturlöndum- Eft-
ir frelsistökuna var útlagaherinn
eina trausta afiið í stjórnmálum
Alsír, þar sem skæruliðar voru
dreifðir, samvinna þeirra á milli
lítil og rígur mikill. Þegar horfur á
þátttöku hersins :■ stríðinu í Alsír
minnkuðu, stefndi Boumedienne
að því að koma á fót fastaher at-
vinnuhermanna, sem að gagni
gæti komið eftir frelsistökuna.
★ Róííækur trúmaður.
Talsvert er vitað um þjóðféiags
skoðanir Boumediennes. Hann
hefur verið fylgjandi rótiækri
bændabyitingu, og þótt hann sé
mikill t'rúmaður hafa skoðanir
hans mótazt af marxisma. Hann
vill, að valdi verði miskunnar-
laust beitt til þess að hinum póli-
tísku og efnahagslegu markmið
um verði náð-
Erfitt er að segja um, að hve
miklu leyti skoðanir hans og Ben
Beila séu ólíkar. Ef áhrif bylting
arinnar verða þau, að við tekur
harðsnúnari og grimmilegri
stjórn, á það fljótlega eftir að
koma í ijós. Einnig á eftir að
koma í ijós, hvort valdataka Bou-
mediennes stendur í sambandi
við andstöðu þá gegn stjórninni,
sem meira hefur verið vitað um
og fyrrv. félagar Ben Bella úr
fangavis*inni í Frakklandi hafa
staðið fyrir.
í apríl sl. var Berbaleiðtoginn
Hocine Ait Ahmed dæmdur til
dauða, en seinna var hann náð
aður .... Tveir fyrrverandi leið-
togar Þjóðfrel-ishreyfingarinnar,
FLN, þeir Mohammed Khider og
Mohammed Boudiaf, voru dæmd-
ir til dauða að þeim fjars*öddum-
Allir þessir menn sátu með Ben
Bella í fangavist Frakka á sínum
t:ma. Ef þremenningarnir fá upp-
reisn æru verður þar um mikil-
vægan atburð að ræða, en umrfam
allt mundi það sýna fram á, að
Boumedienne væri traustur í
sessi.
★ Bágbovið ástand.
Sennilega verður allt á huldu
um það, sem býr á bak við bylt-
inguna í Alsír um sinn. Ben Bella
1 Frh. á 10. síðu.
Ben Bella gat fært sér þes:
staðreyndir í nyt, og í valdab,
áttunnj var mönnum ein~ og E
Khedda og Belkacem Krim he
fundið það til foráttu, að þ
báru ábyrgðina á Evian-sai
ingunum-
En sigursæl innreið Ben Be
inn í Algeirsborg og valdata
hans hefði verið óhugsandi
stuðnings Boumediennes og h
mánna hans. Það var eðlileg
leiðing þessarar samvinnu,
Boumedienne var skipaður lai
varnaráðherra, og í fréttum
Alsír var oft sagt, að ofursti
hefði nær öll völd :• sínum hönd-
Ben Bella og Boumedienne í liðskönnun.
Gleraugnabúðin
Laugavegi 46. — Sími 11945.
Hefi opnað nýja gler-
augnaverzlun undir
nafninu
Glerðugnðbúðin
Glæsilegt úrval af kven-
manns-, karlmanns- o g
barnagleraugum, sólgler-
augum og fleiru.
Gerð verða gleraugu sam
kvæmt læknisráði.
Viðgerðir á eldri gleraugum.
Fyrsta flokks þjónusta.
N ý k o m i 3
ENSK 06 TÉKKNESK
Gólffeppi
Teppadreglar
*
fViargar gerðir.
Sérstaklega faifegir iitir.
T eppamoftur
T eppafílt
fViargar ger'ðir.
Geysir h.f.
VESTURGÖTU 1.
Áskriftðsíminn er 14900
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 24. júní 1965 $
■!.. 7TTr T—.— . ■ 1 1 ■; '■ . ■- I " -.-1 -■« rt