Alþýðublaðið - 27.06.1965, Side 2
©eimsfréttir
sidteastliána nótt
★ ALGEIRSBORG: — Fimm menn biðu bana þegar tíma-
sprengja sprakk í fyrrinótt fyrir utan fundarstað utanríkisráð-
Iierra Afríku- og Asíuríkja í Algeirsborg. Þetta var fyrsta sprengju
tilræöið síðan byltingin var gerð. Arabalöndin, að tveimur uudan-
skildum, styðja ákvörðun Serkja um að halda toppfund Afríku-
og Asíuríkja samkvæmt áætlun, en þó er óvíst hvort af henni
geti orðið.
★ I.ONDON: — Harold Wilson forsætisráðherra hefur í fyrsta
skipti gefið í skyn, að ekkert geti orðið af fyrirhugaðri ferð
Vietnam-neíndar samveldisins, en hann telur að hún geti tekið
til starfa þegar betur stendur á. Hann segir tilgang nefndarinnar,
að binda enda á loftárásir Bandaríkjamanna og innþrengingu komm-
Únista í Suður-Vietnam og koma á algeru vopnahléi svo að boða
megi til friðarráðstefnu.
★ LONDON: — í tilkynningu, sem gefin var út í lok sam-
veldisráðstefnunnar, var hvatt til þess að Kínverjar tækju þátt í
ofvopnunarviöræöum í framtíðinni. Um Rhodesíu sagði, að Bretar
inundu því aðeins veita nýlendunni sjálfstæði, að öll þjóðin styddi
I»aö.
★ SANTO DOMINGO: — Átta menn biðu bana í fyrrinótt í
götubardögum í bænum San Francisco de Macoris. Bardagar þess-
ir gefa ástæðu til uggs um að borgarastyrjöldin. sem takmarkazt
hefur við höfuöborglna, breiðist út.
★ NÝJU DELHI: — Yfir eitt þúsund manns hafa dáið af hita-
sótt og kóleru, sem undanfarna daga hefur gengið yfir ýmis héruð
Indlands.
★ WASHINGTON: — Sölustjóri SAS í New York segir, að
flugfélagið muni flytja yfir 50.000 skemmtiferðamenn til Banda-
rikjnana í ár. Þaö sem af væri þessu ári hefðu borizt þrisvar sinn.
vm fleiri pantanir um hópferðir frá Evrópu til Bandaríkjanna en
£ fyrra.
★ SAIGON: — Minnst 35 menn biðu bana og 52 særðust í
sprengjutilræðinu við veitingahús nokkurt í Saigon á föstudag,
samkvæml síðustu fréttum. Vietcong gerði í fyrrinótt árás á bæ
einn aðeins 24 km. frá Saigon.
★ HANOI: — Ho Chi Minh, forseti Norður-Vietnam, sagði I
viðtali við brezka kommúnistablaðið „Daily Worker" í gær, að
Wilson forsætisráðlierra væri of háður Bandaríkjamönnum til að
eeta tekiö þátt í friðarviðræðum.
FULLKOMINN VESTUR-ÞÝZKUR TOGARI
Reykjavík. — GO.
VESTUR-ÞJÓÐVERJAR hafa tekið í notkun nýjan og fullkominn skuttogara, sem heitinn er eftir hin.
um kunna vestur-þýzka jafnaðarmannaleiðtoga, Erich Ollenhauer. Togarinn er 1845 brúttó tonn og gerð.
ur út af eins konar almenningshlutafélagi í Bremerhaven. Togarinn er útbúinn á þann hátt, að hann
skilar fiskinum í neytendaumbúðum og er fyrsta þýzka fiskiskipið, sem þannig er byggt.
Vitnam-nefndin
fer ekki af sta6
London og Saigon, 26. júní
(NTB — Reuter)
HAROLD WLSON forsætisráð
herra gaf í fyrsta skipti í skyn í
gærkvöldi, að ekkert yrði úr fyr
irhugaðri ferð Vietnamftiðar
nefndar Samveldisins, en
sagði, að hún gæ*i tekið til starfa
þegar betur stæði á- Rússar og
Kínveriar hafa neitað að taka á
móti nefndinni. Ho Chi Minh,
forseti Norður-Vietnam, sagöi í
dag að Wilson værj alltof háður
TOFLUR
Reykjavík. — EG.
NÝJAR ítalskar kartöflur munu
koma hér á markaðinn viku af
SÚIí, sagði Jóhann Jónasson, for-
fctjóri Grænmetisverzlunar Iand-
búnaðarins í viðtali við Alþýðu-
blaðið í gær- Vegna vorkulda er
bartöfluuppskeran í norðurhluta
Evrópu hálfum mánuði til þremur
vikm á eftir áætlun, og því varð
nú að fara alla leið suður til Ítalíu
til að fá nýjar kartöflur nú.
Nqkkrar birgðip munu vera til
kartöflum í landinu og ekki
ástæða til að óttast kartöfluskort.
Þæn kartöflur, sem til eru, eru
síðan í fyrra, einkum frá Póllandi
og Danmörku. Forstjóri Grænmet
isy.erzlunarinnar sagði, að viður-
kenna bæri, að þessar kartöflun
væru ekki eins góð vara og æski
legt væri. Kartöflurnar frá Pól-
landi hefði átt að duftbera áðun
oa þær komu hingað til að varna
því, að þær spíruðu, en einhver
misbrestur hefði að líkindum orðið
á því að það liefði verið gert
við alla sendinguna.
Þessar kartöflur hafa mjög stutt'
geymsluþol í búðum eftir að þær
hafa verið teknar fram, og sagði
hann, að þótt þær væru vand-
lega flokkaðar áður en þær færu
í búðin, þyldu þær varla nema
nokkurra daga geymslu þar sem
upphitun væri.
Sem fyrr segir, mun koma send
ing af nýjum ítölskum kartöflum
7, —10. júlí, ef allt fer eftir áætl-
un. Þá er einnig von á dálitlu
magni af nýjum kartöflum frá
Portúgal, en þaðan hafa ekki ver
ið fluttar inn kartöflur í mörg ár.
Jóhann Jónasson sagði, að erf-
itt væri að segja um hvenær
fyi-stu nýju íslenzku kartöflurnar
kæmu á markaðinn, en ef tíðarfar
yrði hagstætt mundi það að lík-
indum verða í byrjun ágúst.
Bandaríkjamönnum til að geta
tekið þátt í friðarviðræðiun.
Brezki forsætisráðherrann kvað
nefndina hafa skorað á deiluaðila
að sýna stillingu í stríðinu. Hann
sagði, að aðaltilgangur friðar-
nefndarinnar væri: 1. að binda
enda á loftárásir Bandaríkja-
manna á Norður-Vietnam, 2.
binda enda á liðsflutninga og
vopnasendingar Norður-Vietnam
til Suður-Vietnam, 3- koma á al
geru vopnahléj svo unnt verði >að
halda ráðstefnu um friðsamlega
laurn.
Samkvæmt tilkynningu, sem
gefin var út í lok samveldisráð-
stefnunnar á hlutverk slíkrar
ráðs*efnu að vera: 1. að binda
enda á styrjöldina í Vietnam^ 2.
fyrirskipa brottflutning ailra er-
lendra hersveita frá landinu og
Framhald á 14. síðu.
SLAGSMÁL Á
RAUÐA TORGINU
Moskva, fimmtudag. — Ungur
Moskvabúi beið bana og sautján
aðrir særðust, þegar utanbæjar-
unglingar efndu til hörkuslags-
mála á Rauða Torginu í Moskva
fyrir nokkru.
Slagsmálin áttu sér stað aðfara
nótt sunnudagsins 13. júní á stóra
torginu fyrir framan grafhýsl
Lenins. Sextán unglingar frá
bænum Grekliovo-Sujevo, sem er
í 90 km. fjarlægð frá Moskva
hafa verið teknir höndum.
í Moskva er upplýst, að þessir
sextán unglingar hafi komið til
borgarinnar á laugardagsmorgun
og þá strax lent í slagsmálum á
aðaljárnbrautarstöð borgarinnar.
Lögreglan skarst þar í leikinn og
hópurinn hélt inn í borgina til
að drekka þar daglangt.
Um miðnætti voru flestir í hópn
um orðnir dauðadrukknir og var
þá haldið á Rauða torgið, þar sem
ungt fólk í Moskva oft fær sér
gönguferðir á síðkvöldum. Án
nokkurs tilefnis, að þvi er virt-
Framh. á 14. síðu.
Flytur erindi í Danmörku
SVO sem áður hefur verið skýrt
frá, stofnuðu Kaj Langvad verk-
fræðingur og kona hans frú
Selma Langvad, fædd Guðjohn-
sen, sjóð við Háskóla íslands á sl.
sumri, og er hlutverk sjóðsins að
treysta menningariengsl íslands
og Danmerkur. Er þetta einn
mesti sjóður Háskólans, að fjár-
hæð röskar 700.000 krónur. Kaj
FÁLKINN GEFUR ÚT SVÍÞJÓÐARBLAÐ
Reykjavík. — GO. I ið — helgað Svíþjóð að langmestu
leyti.
Vikublaðið Fálkinn kemur út j Njörður P. Njarðvík á þarna
á morgun helgað íslandsheimsókn stutt viðtal við Torsten, en Njörð-
Torsten Nilsson utanríkismálaráð- j ur fór til Svíþjóðar á vegum Fálk
herra Svíþjóðar. Blaðið er 68 síð- , ans og safnaði meginhluta efn-
ur að stærð og myndarlega útgef-1 isins. Grein er um Gústaf VI. Ad-
ólf Svíakonung, Volvo og Göta-
verkan eru heimsótt, einnig um
sendiherra íslands í Svíþjóð,
Árna Tryggvason, og myndir eru
í blaðinu frá heimili sænska
sendiherrans á íslandi, August
Framhald á 14. síðu.
Langvad verkfræðingur hefur aS
aukj í tilefni af farsælii lausn
handritamálsins ákveðið að bæta
árlega myndarlegri fjárhæð vi5
tekjur sjóð..ins( sem til úthlutunar
koma. Stjórn sjóðsins er skipuð
Ármanni Snævarr, háskólarektor,
formanni, dr- Brodda Jóhannes-
syni, skólas*jóra og Sören Lang
vad verkfræðingi. Stjórnin óskaði
nýlega eftir því við dr. Kristján
Eldjárn, þjóðminjavörð, að hann
flytti erindi um íslenzka menn-
ingarsögu í nokkrum dönskum
skólum á vegum sjóðsins á hausti
komanda. Hefur dr- Kristján fall
izt á þe si tilmæli. Er þar með
ráðin fyrsta úthlutun úr sjóðn-
um, og er fjárhæð við það miðuð
að gera þjóðminjaverði fœrt að
dveljast í Danmörku nokkurn tíma
til rannsókna í fræðigrein sinni.
2 27. júní 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ