Alþýðublaðið - 27.06.1965, Blaðsíða 3
LOFTLEIÐAKYNNING
Á PARÍSARSÝNINGU
íslenzku flugfreyjurnar, sem
þama voru heita Elín Klein og
Ingunn Benediktsdóttir. Elínu
sagðist svo frá um sýninguna,
er blaðið hafði tal af henni:
— Við vorum þarna tvær í
þrjá daga. Sýningin er búin að
standa nokkuð lengi, en mest
gekk á um síðustu helgi og við
vorum þarna laugardag, sunnu
dag og mánudag. Á sunnudag-
inn var langmest um að vera,
en þá var talið að um 300 þús.
manns hafi skoðað sýninguna.
— Canadair hafði þarna sér
staka sýningardeild á góðum
stað í risastóru flugskýli á Le
Bourget flugvelli, þar sem sýn
ingin fór fram. Verksmiðjum-
ar sýndu þama aðeins flugvéla
líkön, m.a.var þarna stórt líkan
af nýrri þyrlu sem verksmiðj-
urnar eru að hefja framleiðslu
á. Þyrlumar eru byggðar sér-
staklega með tilliti til þess að
beita þeim í baráttu við skóg-
arelda. Einnig sýndu Canad-
air verksmiðjurnar líkan af
nýrri flugvélagerð, sem ekki
þarf langa flugbraut heldur
hefur sig lóðrétt til flugs. Síð-
ast en ekki sízt var þarna svo
stórt líkan af Canadair flug-
vél af gerðinni RR 400,
stærri gerðinni, eins og
Loftleiðavélarnar verða —
begar búið er að lengja þær
eins og fyrirhugað er. Þessi
vél var máluð með einkennis-
litum Loftleiða og merkjum
félagsins og vakti liún mikla
athygli.
— Okkar starf var að dreifa
bæklingum með ýmsum upp-
lýsingum um flugvélarnar, —
hvað þær kostuðu og svo fram
vegis. og einnig dreifðum
bæklingum með unnÞ>sineum
um ferðir og fargjöld Loft-
leiða. Aðsókn að þessari deild
var svo mikil, að við lá, að
við yrðum uppiskroppa með
! bæklinga áður en yfir lauk og
Fnaimhald á 15. síðh.
UNDANFARH) hefur staðið
yfir í París mikil flugvéiasýn-
ing, sem vakið hefur heimsat-
hygli. Canadair verksmiðjurn-
ar, sem Loftleiffir h.f. hafa
keypt fjórar flugvélar af, —
höfðu sérstaka deild þarna á
sýningunni og þar voru til stað
ar tvær fiugfreyjur frá Loft-
Ieiðum, sem útbýttu kynningar
bæklrngum um Canadair og
Loftleiðir.
í 1$S
'-V.
th : ;
' ■
London, 26. júní. (ntb-rt).
í tilkynningu, sem gefin var út
í lok samveldisráðstefnunnar í
London í gærkvöldi var hvatt til
þess, að Kínverjar tækju þátt í
afvopnunarviðræðum í framtíð-
inni. I
Leiðtogar samveldisins telja þá
staðreynd, að Kínverjar hafa
sprengt tvær kjarnorkusprengjur
og greinilegan vilja þeirra til að
framleiða kjarnorkuvopn, undir-
strika nauðsyn þess, að fundin
verði lausn á afvopnunarvanda-
málinu.
Um Rhodesíumálið segir, að
Bretar hafi heitið Rhodesíu sjálf
stæði með því skilyrði, að það
njóti stuðnings þjóðarinnar allr-
ar.
Bretar munu athuga hvort
halda skuli Rhodesíu-ráðstefnu,
ef viðræður þær, sem nú fara
fram við stjórn Rhodesíu bera
ekki árangur.
Leiðtogar samveldisins skoruðu
á stjórn Rhodesíu að láta lausa
alla afríska leiðtoga, sem hand-
teknir hafa verið, tll að draga
úr spennu í nýlendunni og und-
irbúa jarðveginn fyrir hugsan-
lega ráðstefnu um stjórnarskrá
Rhodesíu.
Frá HAB
Dregið hefur verið í happ
drætti Alþýðublaðsins. Fyrri
drát'ur 1965.
Vinningar komu á eftirtal
in númer.
1662 Flugferff fyrir 2
Reykjavík— Ne\r
York — Reykja
vík.
18742 Ifálfsmánaffarferff
fyrir tvo meff
skipi til megin
lands Evrópu.
Vinninganna skal vitjaff á
skrifs'ofu Happdrættr-ins
Hverfisgötu 4, sími 22710.
Skrifstofan er opin alfa
virka daga kl. 9—5, nemia
! laugaidaga kl- 9—12.
Drengjalúðrasveit í Siíöur-Vietnam
hringferð með Esju
| -k SEOUL: — Suffur-Kóreustjórn
■ mun fara þess á leit viff þingiff,
aff 15.000 suffur-kóreanskir her
menn verffi sendir tif Suffur-Vie
! nam, aff því er góff'ar heimildi
herma.
Þriðjudaginn 29. júní fer Esj-
an frá Reykjavík vestur um land
í hringferð. Með skipinu fer
Drengjalúðrasveit Keflavíkur. Eru
drengirnir 20 talsins á aldrinum
14-15 ára. Munu þeir-láta til sín
Eldílaugaskot
Reykjavík. — GO.
Vitamálastjórinn hefur gefiff út
tilkynningu til sjófarenda viff
suðurströnd íslands, vegna hinna
fyrirhuguffu eldflaugaskota Frakka
seinna í sumar- Skotstefnan er í
160 gráffur réttvísandi, effa suffur
í haf. Varffskip munu gæta þess
að ekki verffi skip á hættusvæffinu
þegar tilraunirnar verffa fram-
kvæmdar.
heyra á þeim viðkomustöðum skips
ins, þar sem nægjanleg viðdvöl
verður að degi eða kvöldi til,
ekki sízt ef einhverjir heima-
menn koma um borð, þegar skip-
ið leggst að bryggju, og veita þeim
aðstoð við að komast á þann stað,
sem heppilegast er, að þeir spili.
Lúðrasveitin var stofnuð fyrir
fjórum árum, en þá voru dreng-
irnir 10—11 ára, og þá byrjendur.
í tónlistinni. Stjórnandi og aðal
kennari er og hefur verið frá byrj
un Herbert Hiberschek Ágústsson.
Fararstjóri er Hermann Eiríksson
skólastjóri.
Ferð þessi er farin bæði sem
skemmtiferð og til að kynna þessa
starfsemi, enda von þeirra, að á-
heyrendur hafi ánægju af.
Meðfylgjandi mynd er tekin af
Drengjalúðrasveit Keflavíkur að
, loknum tónleikum vorið 1963.
sðtnveldisins lokið
Lítill afli á
heimamiðunum
Reykjavík. — EG.
AFLABRÖGÐ hjá togurunmn,
sem flestir eru á heimamiffum
um þessar mundir, eru heldur
léleg, aff því er Marteinn Jónas-
son, framkvæmdastjóri Bæjar-
útgerffar Reykjavíkur tjáði blaff-
inu í gær.
Fyrir helgina var verið að landa
úr Ingólfi Arnarsyni í Hafnar-
firði, en hann var með um það
bil 200 tonn af fiski. Varð liann
að fara til Hafnarfjarðar vegna
manneklu við löndun í Reykja-
vík.
Jón Þorláksson kom til Reykja-
víkur á fimmtudag, en ekki er bú-
izt við að byrjað verði að landa
ún honum fyrr en á mánudag, og
er sú töf sömuleiðis vegna mann-
eklu við höfnina. Jón er með
170—180 tonn af fiski.
HaRveig Fróðadóttir hefur und- ‘
anfarið verið í vélarhreinsun í
Reykjavík, en fór út á föstudags
kvöld. Eftir skeytum frá hinum
skipum útgerðarinnar að dæma,
sagði Marteinn, þá er aflinn hér
á heimamiðum heldur klénn og
mestmegnis karfi sem veiðist. —
Um 10. júní sl. var búið að viða
upp í sölukvótann til Bretlands
og nú eru togararnir að byrja að
veiða upp í kvóta næsta mánaðar.
Ráðstefnu brezka
ALÞÝÐUBLAÐtÐ - 27. júní 1965^ $