Alþýðublaðið - 27.06.1965, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 27.06.1965, Blaðsíða 10
GREIN Ó L A F S Frá Ferðafé- lagi íslands Ferðafélag íslands ráðgerir eft- irtaldar sumarleyfisferðir fyrri hluta júlí. 3. júlí 9 daga ferð um Vopna- fjörð og Melrakkasléttu. 8. júlí 4 daga ferð um Suður- . land, allt austur að Núpsstað. 10. júlí 9 daga ferð um Vestur- land og Vestfirði. 12. júlí 8 daga ferð um Öræfin og Hornafjörð, m. a. gengið á Ör- æfajökul. 13. júlí 13 daga férð um Norður- og Austurland. 14. júlí 12 daga ferð um Öskju, Ödáðahraun og Sprenaisand. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins á Öldugötu 3, símar 11798 — 19533. ' Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í ferðirnar með aóðum fyrirvara. Moskvits . . . Framhald af 5. síðu. Sérstætt eins og yðar eigið fingrafar. Ávallt fyrirliggjandi. hafi góða aksturseiginleika. Hann sé í sama verðflokki og smábílar, en menn fái áreiðanlega mikið fyr- 'ir þá peninga, sem þeir verji til 'að kaupa Moskvits Karat M 408. Laugavegi 178. — Sími 38000. ” 1 í Tæknilegar upplýsingar: 1 Brúttóþyng 900 kg. Lengd 409 cm. Breidd 155 cm. Hæð 148 cm. Hæð undirvagns 17,8 cm. Strokkrúmtak 1357 rúmcm. Þjöppunarhlutfall 7:1 Orka 60,5 SAE hestöfl við 4750 snúninga á mínútu. Hámarkshraði á klst. 120 km Benzintankur 46 lítr. Rafgeymir 12 volt Rafall 250 volt Ferðamenn . . . Framhald af 0. síðu. með ári hverju og í fyrra sumar veittu mennirnir á viðgerðarbíl- um félagsins rúmlega 3500 bíl- stjórum aðstoð við viðgerðir og veittu öðrum 5400 ýmsar upplýs- ingar eða ráðleggingar. áugSýsingasíminn 14906 10 27. júní 1965 - ALÞÝÐUBLA0IÐ samkeppni sjónvarpsins við ís- lenzka menningarstarfsemi og einkum þá bókaútgáfu, en hann telur að útgáfustarfsemi sé „und- irstaða sérhvers þjóðernis,” hvorki meira né minna. Sjónvarp- ið keppir ómaklega við bóka- útgefendur sem eiga nógu erfitt f.vrir, segir Njörður. Annar for- leggjari, Baldvin Tryggvason framkvæmdastjóri Almenna bóka- félagsins, vék að hag og aðstöðu islenzkra útgefenda á aðalfundi félagsins nýlega sem sagt hefun verið frá í blöðum; hann birti þar athyglisverðar tölur um erlenda bóksölu á íslandi og samkeppni erlendra forleggjara við íslenzka. Baldvin Tryggvason telur að er- lend vikublöð og mánaðarrit selj- ist hér árlega í upplagi sem nem- ur 1,8 milljónum eintaka, en allt i að 10 þúsund eintök erlendra bóka | seljist máhaðarlega eða um 120 þúsund eintök á ári, þar. af % hlutar ódýrar smábækur. Hann gerir ráð fyrir að islenzk viku- blöð og tímarit seljist í álíka upp- lagi og þau erlendu, en heildar- upplag íslenzkra bóka, að náms- bókum frátöldum, nemi um 350 þúsund eintökum. Þetta er sam- anlagt um hálf fjórða milljón blaða og tímarita og um hálf millj- ón bóka á ári; það samsvarar því að „meðalfjölskyldan” kaupi 12 bækur og 90 eintök vikublaða á ári, 9 íslenzkar en 3 erlendar bæk- ur, 45 íslenzk og jafnmörg er- lend blöð. Þessar upplýsingar eru æði fróðlegar hvort sem þær eru ýkja-nákvæmar eða ekki; hér á landi er enginn aðili sem fylgist með upplagi bóka, blaða og tíma- rita, og sjálfsagt er talningin á innflutningnum ekki mjög ná- kvæm heldur. En séu þær eitt- hvað nærri lagi benda þær til að erlendur bókamarkaður hér se all miklu stærri en ætlandi værd fyrir- fram. Mikið af innflutningnum er mjög ódýrt, vikublöð og smábæk- ur, pocket-bækur og paperbacks; og mikið auðvitað léttmeti, pop, heimilisrit og reyfarar; en líka mikið af góðum bókmenntum og vönduðum fræðiritum í ódýrum, I alþýðlegum útgáfum. Þetta er samkeppni sem íslenzk bókaútgáfa verður að rísa undir og hún bendir líka til óleystra verkefna útgefenda; hér er alltof lítið um einfalda, ódýra bókagerð. gerð bóka sem neyzluvöru en ekki munaðar, sem standist erlendum bókum snúning að verði eða frá- gangi. Erlend smábókaútgáfa hef- ur tekið risaskref á undanförnum árum, flestallar hugsanlegar bók- menntir eru nú fáanlegar í þeirri gerð; þetta er menningarlegur pop-iðnaður í stórum stíl. Eng- um dettur í hug að fullkomlega sambærileg útgáfa verði rekin hér; en engu að síður hljóta ís- lenzkir útgefendur að svara þess- ari samkeppni með einhverju móti vilji þeir halda markaði sín- um óskertum og taka þátt í upp- eldi nýrra lesenda. Og innflutn- ingur erlendra bóka leysir þá eng- anveginn undan skyldu sinni að fylgjast með erlendum samtíðar- bókmenntum, gefa út á íslenzku merkisrit í fræðum og skáldskap; starfið verður bara vandasamara og fylgir því meiri ábyrgð; það er * I % Miðhálendið — Norður- og Austurland. % 14 daga ferB ávúat. VerH kr. &2D0. r ágúst. Verð kr. 6.200. Tararstjóri: Pétur Péturssoit. Ekið fyrsta dag til Veiðivatna, annan dag að Ey- vindarkofaveri í Jökuldal, þriðja dag í öskju norð ur fyrir Tungnafellsjökul um Gæsavötn og Trölladyngjuháls, fjórða dag dvalið f öskju og ekið f Herðubreiðarlindir, fimmta dag veriö f 'Herðubreiðarlindum, sjötta dag ekið um Mývatna öræfi í Möðrudal, Jökuldal og um Egilsstaði á Seyðisfjörð, sjöundi dagur dvalið á Seyðisfirði etc ið upp á Hérað og um það til Borgarfjarðar eystra, áttundi dagur ekið að Egilsstöðum og fi H&Uormsstaðaskóg f Atlavík, nfundi dagur dvalið f Atlavfk, tfundi dagur ekið að Mývatni, ellefti dagur dvalið við Mývatn og ekið til Akureyrar, tólfti dagur ekið frá Akureyri um Skagafjörð, Blöndudal og Auðkúluheiði til Hveravaila, þrett ándi dagur dvalið á Hveravöllum, fjórtándi dagur ekið til Reykjavfkur. 1 báðum ferðum er innifal- ið fæði, 1 heit máltíð á dag, kaffi og súpur. Þátt- takendur þurfa að hafa með sér viðleguútbúnað Og mataráhöld . LA N □SÖN^ sízt af öllu afsökun fyrir því að gefa út ónýta vöru í ónýtum ís- lenzkum þúningi. Þeir víkja þáðir, Baldvin Tryggvason og Njörður Njarðvík, að ranglátri tollun sem standi bókaútgáfu fyrir þrifum hér á landi. Hér er lagður 30—35% tollur á allt bókagerðarefni með- an erlendar bækur og blöð eru, að sjálfsögðu, tollfrjáls; þetta jafn- gildir hreinlega verndartolli í þágu erlendra útgefenda, segir Baldvin. Það er.: gömul réttlætiskrafa, að þessi tollur verði afnuminn og raunar óskiljanlegt að það skuli ekki komið í kring; sú ráðstöfun mundi létta útgefendum lífsbar- áttuna, auðvelda þeim að gegna skyldu sinni, og mæta samkeppni annarra aðila. Það er hugarléttir að Almenna bókafélagið á auðvelt með að koma skoðunum sínum á framfæri, rökstyðja réttlætismál sitt og annarra útgefenda; það eru heilir þrír ráðherrar í stjórn fé- lagsins og forsætisráðherra sjálf-1 ur formaður þess. — Ó.J. Um helgina . . . FramhaJd taf 7. sfðu. gera einangrun. Það er ein þeirra leiða, sem þjóðir geta valið um, en verður að dæm- ast éftir aðstæðum hverju sinni. Hlutleysi hentar sumum vel, en öðrum alls eklci. Svíar hafa með hlutleysi sinu tryggt sjálfum sér frið og vináttu allra nágranna sinna. Þeir hafa stuðlað að friði og jafnvægi í Norður- Evrópu, og. þar með lagt sitt að mörkum til heimsfriðar. Loks verður að minnast þess, að staða Svíþjóðar lyfti Dag Hammarskjöld til hátinda Sameinuðu þjóðanna. Hann vann það heimssögulega afrek að beita lögregluliði samtak- anna til að stilla til friðar í Gaza, Kongó og víðar, og forð- aði mannkyninu frá nýjum styrjöldum. Þegar Hammar- skjöld gerði þessa fyrstu til- raun SÞ til beinnar friðar- gæzlu, voru sænskir hermenn meðal hinna fyrstu, sem settu upp bláu hjálmana og hálsklút- ana, sem tákna friðarsveitir Sameinuðu þjóðanna. Torsten Nilsson hefur liaft mikils arfs að gæta og mikið verk að vinna. En Svíar fá ekki utanríkis- og varnarmál ÖSrum en traustustu leiðtogum sinura.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.