Alþýðublaðið - 27.06.1965, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 27.06.1965, Blaðsíða 11
Ritstióri Örn Eidsson ■■■■■ " . . ■. • Hf : " : ■. »■.■ . jjjStigi lllSSil ■ "V.v' •':■: //■ •..' • W m-i: :'•'■• •;.::•■ i£!ííí:VS: '~. ' mm Ole Madsen vinsælasti knattspyrnumaður Dana FÁA eða enga af knattspyrnu- köppum sínum dýrka og dá Danir, um þes.ar mundir, sem hinn smá vaxna miðherja sinn, Ole Madsen- Hann er sannnefnd þjóðhetja. Um leið og hann nálgast knöttinn kveða við í löngum röðum frá á- horfendapöllunum, slík hróp og köll og fagnaðarlæti, sem undir- strikuð eru með handasveiflum og fótastappi, að allt ætlar niður að keyra. Enda er það svo, að í hvert skiptj, sem Óli er með knöttinn, má búast við að til stórtíðinda dragi. En enn sem komið er, hefur hann ekki gert Dönum glaðara í sinni, en er hann með snilldarað gerðum sínum skapaði danska landsliðinu fory^tuna á 19. mín. landsleiksins við Svía, erfðaóvin- inn á knat'spyrnuvellinum. En sá leikur endaði með dönskum sigri; svo sem kunnugt er, 2:1. Hann er næsta kynlegur kvistur á meiði knattspyrnunnar, sagði sænski landsliðsleikmaðurinn Or- var Bergmann- Það er undravert hversu fljótt hann nær valdi á knettinum og hversu viðbragðs fljótur hann er. Og þá er illa kom- ið hag móthe-janna ef ekki naest til að stöðva hann í tíma- Ekki vildi Orvar samt likja hon lum við hinn heimsfræga Uwe Seeler í þýzka landsliðinu, en að- alstyrkleiki hans var að skapa sér ákjósanlega s'öðu til þess að senda knöttinn á markið, með sín um annáluðu hörkuspyrnum, sem vart neitt stóðst fyrir. Óli skapar sér möguleikana frekar með því að leika „í gegn“ eða í aðstöðu við markið^ og er þrátt fyrir það hversu smár hann er vexti, eitil- harður i návígi og stórhættulegur með skallann. Það hafa verið skrifaðir dálkar á íþró’tasíðum danskra blaða, svo kílómetrum skiptir um Óla, hinn smávaxna miðframherja, og leikur það ekki á tveim tungum, að hann er sá knattspyrnumaður, danskur, sem langmestrar hylli nýtur með þjóð sinni. Óli er og sú manngerð, að hann gaati hvaða dag sem er, gerzt atvinnumaður með miklum og góðum árangri. En hann lætur sem vind um eyru þjóta gylliboð umboðsmanna atvinnumennskunn ar. Það er einkum ívennt, sem Óli vill, að fá að leika fyrir félag sitt Hellerup, sem er í 3. deild, hann hefur enga löngun til að hækka í deild, og starfa áfram eins og hingað til, af áhuga og árvekni að fyrirtæki föður síns, sem rekur vagnasölu. Óli og Egon Hansen v- innh. í landsliðinu, sem er í IY- deild hafa sýnt það og sannað, m. a. j landsleiknum við Svía á dögunum, svo ekki verður um villzt, að leik menn úr neðri deildunum standa síður en svo að baki þeim, sem eru í I. deildinni og teljast m. a. þess vegna til kjamans í kapplið- unum. Þannig sagðist Sænska íþróttablaðinu fyrir skömmu. Ole Madsen var fyrst valinn í danska landsliðið árið 1958 — þá gegn Svíum. Hann var þá alls ó- þekktur III- deildar leikmaður- En . að þeim leik loknum var nafn hans á allra vörum og honum var i ,,sungið lof og dýrð“ um alla Dan- mörk. í þessum fyrsta landsleik sinum gegn Svíum hafði Óli gegn hinni frægu sænsku „silfur-vörn“ að 'ækja, sem talin var ein snjallasta vörn í víðri veröld þá. Svíar höfðu nokkrum mánuðum fyrir þennan landsleik við Dani, unnið til silf- urverðlauna í heimsmeistara keppninni. Hvað er svo sagt um viðskipti hins óþekkta II. deildar leik- manns Dana, við þessa heims- frægu vörn. í danska blaðinu ,,Fodbold Jul“ sl. ár segir m. a. þetta: Sviðið er Rosunda leikvangur- Þar hafði Óli aldrei komið áður. Vissulega hefði hann átt að vera fullur undrunar og lotningar. — Hann, nýliðinn úr III. deild í landsliði þjóðar sinnar, öllum ókunnur. En Óli lét sér ekkert vaxa í augum, enda er hann þann ig, að hann kallar ekki allt ömmu sína. Svíarnir höfðu þegar tekið forystuna — en þá tók hann til sinna ráða, og tók ákvörðun, sem nánast mátti kallast öllum sanni fjær, ef einhverjum öðrum en honum hefði dottið hún í hug. Hann ætlaði sér sem sé sjálfur, upp á eindæmi, að jafna metin, með því að vaða í gegnum meiri hlutann af sænska liðinu. Þessi fjarstæðukennda hugmynd kom þegar til framkvæmda með þeim hraða í „orði og athöfn“ sem ein- kennir Óla, öðrum fremur. — ,,Sendu mér knöttinn“, sagði hann við Enoksen, sem lék miðherja. Hann fékk knöttinn og hóf sókn ina upp á eigin spýtur. Áhorfend- urnir fylgdust „spenntir" með og flestir þeirra hristu höfuðið, yfir þessu dirfskubragði, sem þeir al- mennt töldu dauðadæmt þegar í stað. Með eldsnöggu viðbragði skildi hann sænska innherjann eftir, og átti síðan ,,aðeins“ sjálfa silfurvörnina eftir. Næsti mót- herjinn sem varð á vegi hans var Sigurður Parling, sem hafði við urnefnið „Járnstóin" og talinn einn sterkasti og um leið harð- fengasti varnarleikmaðurinn. Að vísu kom það fyrir og það oftar en einu sinni, að knötturinn komst fram hjá honum, en mót- herjinn næstum því aldrei. Þegar Óli rak knö‘tinn fram hjá honum með snöggri spymu, renndi,, jám- stóin“ sér á næsta ruddalegan hátt í veg fyrir hann. Slíkur á- rekstur hefur orðið mörgum leik manninum að falli. En Öla, tókst með hinum lipru og léttu skref- um sínum svo að segja að sleppa við árá°ina, var aðeins örlítið hrakinn af stefnunni, en náði sér aftur á strik og skoppaði svo ör- uggur á skeið á eftir knettinum.Þó munaði þetta sekúndubroti, sem nægði Áka Johannssyni, hinum viðfræga bakverði að ná til knatt- arins fyr-t. Eða svo virUst, að minnsta kosti. Hann þekkti ekki á hraða Öla — í það skiptið- Óli réðst þegar að honum og féllu báðir +il jarðar við áreksturinn, en knötturinn hrökk til Enoksen, sem reyndi að hemja hann, sem mistókst, oe knöt*urinn hrökk frá honum — Óli var bá aftur kominn í víg-töðu og náði nú til boPana og sendi hann á markið og óverj- andi í netið- Þessi leikur varð Ake Frh. á 14. slðu. í FYRRAKVOLD setti Frakk- land nýtt heimsmet í 4rl500 m. boðiilaupi, hljóp á 14,49,0 mín. og bætti þar með met A.-Þýzkalands um 9 sek. Tímar einstakra hlaup ara vopu: Vervoort 3,41.8, Nicolas 3,44,2, Jazy 3,40,8 og Wadoux 3.42,2 mín. Á móti í Kauhava sigraði Clarke í 5 km. hlaupi á 13,33,0 mín., en annar varð Philip, V,- Þýzkalandi á 13.54,0 mín. Danir og Revkjavík á Melavsl'i í kvöld Hér er statt danskt unglingalið á vegum Víkings, sem nefnist Her- lev. Lið þetta leikur við úrvalslið Reykjavíkurféiaganna á Mela- velli kl. 20,30 í kvöld. Úrvalslið KRR er þannig skipað: Þorbergur Atlason, Anton Bjarnason, Jón Ólafsson, Halldór Einarsson, Sæv ar Sigurðsson, Bolli Bollason, Her mann Gunnarsson, Bergsveinn Alf osson, Hreinn Elliðason, Helgi Númason og Einar ísfeld. Á þessari mynd er Ole Madsen að leika á sænskan lcikmann í landsleik. ALÞYÐUBLAÐIÐ - 27. júní 1965

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.