Alþýðublaðið - 27.06.1965, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 27.06.1965, Blaðsíða 16
Fréttir af atburði þessum eru enn óljósar og hvílir yf- ir þeim duia Tíminn, ÞAÐ þótti nokkrum tiðindum sæta fyrir allmörgum árum er stofnuð var fyrsta bííaleigan á íslandi' Bílaleigurnar eru nú orðnar allmargar og virðast hafa nóg að gera, að minnsta kosti yfir sumartímann þegar mest er hér um ferðamenn og ferðalög lands manna sjálfra eru í hámarki. Bílaleigan Bíllinn var stofnuð árið 1962. Hún er ein af sjö eða átta bilaleigum, sem nú eru rekn- ar hér í borginni. Við ræddum stuttlega við Guðbjart Pálsson, nú fyrir helgina um starfsemi fyrir- tækisins. — Hvað eruð þið með marga bíla? — Við erum með um þrjátíu bíla, nánar tiltekið 22 fóiksbíla og átta jeppa. — Eru jeppamir vinsælir? — Þeir eru mjög vinsælir, og þá sérstaklega vor og haust, og ef menn ætla í einhver þau ferða- lög, þar sem hætta getur verið á að lenda : tvísýnni færð. Það er mikið um það, að sölumenn leigi hjá okkur jeppa á sumrin til sölu ferðalaga um landið, og undanfar in ár hafa komið til okkar á hverju vori tveir Danir, sem ferð ast um landið og koma við í öll- um eða nær öllum skólum lands ins með allskyns hannyrðavörur( sem þeir eru að selja. Þessir menn eru meira að segja búnir að panta jeppa hjá okkur í maí næsta vor, —. allur er varinn góður. k Vísindamaður nokkur hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að í mannslíkamanum muni nægilegur lirennisteinn á 220 eldspýtna- hausa, i*f Reiknað liefun verið út, að möguleikarnir á því að fjórir spiiamenn i bridge fái hver sinn litinn á hendi séu 2 235 197 406- 805 366 368 301 560 000 á móti einum. ★ Á bar einum í Tennessee geta allir viðskiptavinir, sem eru eldri en áttræðir, fengið að drekka eins mikið og þeir vilja ókeypis, ef þeir koma í fylgd með foreldr- um sinum. ★ Afkvæmi 450 melflugna geta etið á einu ári sem svarar þyngd tveggja tólf tonna vörubíla. ★ Verkfræðingur nokkur hefur komizt að því, að ef ketti er strok- ið um bakið, þegar kalt er í veðri myndast rafmagn. Ennfremur hef ur þessi ágæti maður reiknað út að strjúka þurfi venjulegum ketti, 9,2 milljón strokur til að framleiða nóg rafmagn til að hægt sé að láta loga á venjulegri 75 kerta peru í eina mínútu. ★ Rannsóknir hafa leitt það í ljós, að bandarískar konur kaupa 90% allra karlmannavasaklúta, sem seldir eru þar í landi. ★ Talið er, að árlega eti Banda- ríkjamenn að minnsta kosti 5,5 milljarða af heitum pylsum. ★ Póststofan í írlandi hefur sent út aðvörun um að ekki megi senda álmtré í pósti til írlands. ★ Vísindamaður hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að bæði froskar og flugur geti fengið sina drátt. ★ Skrifuð hefur verið ritgerð um það, hver eigi sorpið eftir að það er komið í ruslatunnuna. ★ Vísindamenn fullyrða, að svín sofi aldrei á vinstri hliðinni. ★ Fiskifræðingur hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að fiskum þyki gott að láta kitla sig. ★ Blaðafulltrúi leikarans Van •Tohnson skýrði nýlega frá því, að freknurnar á andliti leikarans væru að meðaltali einn sextándi úr þumlungi að þvermáli. ★ Ef öllu þvi magnesíum, sem er í hafinu mundi dreift á yfir- borð jarðar, mundi það mynda sex feta þykkt lag. ■k Talið er, að venjulegt ský sé um það bil 140 tonn að þyngd. — Er hægt að fá bíl hjá ykkur nú um helgina — Nei, því miður erum við bún- ir að ráðstafa öllum okkar bíium. Þegar er komið fram í seinnipart viku nú um hásumarið er yfir- leitt búið að leigja alla bíla fram yfir næstu helgi- — Hvaða skilyrðum þarf að fullnægja til þess að fá bíl á leigu? — Leigutakinn verður að vera 21 árs og fjárráða og hafa fullgilt ökuskírteini. Ennfremur þarf hann að borga eitt þúsund krónu’- sem tryggingnrfé, um leið og hann tekur við bílnum- — Bera menn svo einhverja ábyrgð á bílnum sjálfir ef'ir að þejr eru búnir að taka hann á leigu. — Já, við undirskrift leigu samnings skuldbindur sá sem bílinn tekur á leigu sig til að greiða fyrstu þrjú þúsund krón- urnar, ef eitthvað kemur fyrir bílinn. — Hvað er leigugjaldið hátt. — Fimm manna bíll kostar núna 405 krónur á sólarhring og fjórar krónur á hvern ekinn kíló Ég spurði kallinn hvernig orðið errasekkjumaður væri hugsað. — Jú, drengur minn, svar aði kallinn. — Þegar húu mamma þín er nokkra daga í bnrtu, þá segir hún alltaf, að ég geti slegið blettinn á meðan ... Forsjónin hefur jafnan verið mér hliðholl. Um leið og- bítlagargið komst I móð, mátti heita að ég væri orð- inn heyrnalaus ... metra. Jepparnir og sex manna bílarnir sem við erum með kosta sex hundruð krónur á sólarhring og fimm krónur á hvern ekinn kílómetra. — Skipta útlendingar mikið við ykkur? — Já hingað koma margir út- lendingar, sérstaklega yfir sumar ið, en íslendingar eru samt i auknum mæli farnir að notfæra sér það að leigja bíl án öku- manns. OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO' POP-LJÓÐ \ í upphafi var orðið og orðið var hjá guði en nú orðið er orðið POP orð minna viðkvæmu vona POP-lín POP-korn POP-list Og ef einhver vill vita hvernig POP-ljóð lítur út þá er það svona LÆVÍ S 000000000000000000000000000000004

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.