Alþýðublaðið - 27.06.1965, Blaðsíða 9
Æska Austur-Þýzkalands
FJÖLDI ungs fólks var í hópi
þeirra hundruð þúsunda, sem
gerðu uppreisn í Austur-Berlín
og Austur-Þýzkalandi 17. júní
1953 og kröfðust lýðræðis og
frjálsra kosninga. Fjöldi ungs
fólks var handtekinn þegar stjórn
Ulbrichts bældi uppreisnina nið-
ur, og allt að 50% þeirra, sem
flúið hafa vestur á bóginn, hafa
verið æskufólk.
Þetta er furðulegt þegar þess
er gætt, að þetta æskufólk hafði
alizt upp í kommúnistisku þjóð-
félagi með öllum þeim mikla á-
róðri, sem því fylgdi. En þrátt
fyrir hinn kommúnistíska áróður
hafði unga fólkið getað borið sam
an lýðræði og kommúnisma. Nú
hefur þetta breytzt síðan múr-
inn var reistur í Berlín og landa
mæravörðunum var fyrirskipað
að skjóta með köldu blóði alla
þá, sem reyna að flýja. Þar við
bætast tólf ár kommúnistísks á-
róðurs síðan uppreisnin var gerð
17. júní 1953.
Hvernig er þá aðstaða ungs
fólks í Austur-Þýzkalandi nú?
'k Valda erfiðleikum,
Ljóst er, að fjöldi þeirra ung-
menna, sem flýja frá Austur-
Þýzkalandi þrátt fyrir allar þær
hættur, sem slíkt hefur í för með
sér, heíur aukizt töluvert. Ástæð-
an er ef til vill sú, að auðveld-
ara er fyrir ungan mann eða
unga konu að taka svo alvarlega
ákvörðun, en fólk hættir tæplega
lífi sínu á þennan hátt án þess
að á bak við búi pólitísk sann-
færing.
Vitanlega er talsvert stór liluti
ungmenna í Austur-Þýzkalandi fús
til samvinnu við kommúnista, og
er ástæðan ýmist einlæg sann-
færing eða lirein hentistefna. En
annai' stór hluti ungs fólks í
Austur-Þýzkalandi hefur þegar
valdið yfirvöldunum alvarlegum
áhyggjum.
Austur-þýzk blöð gæta þess
vandlega, að draga ekki of dökka
mynd af ástandinu, og því er
furðulegt, að þau eru fús að játa
mistök sín og gefa ungu fólki,
kennurum þeirra og embættis-
mönnum þeim, sem fara með
málefni þeirra, ,.góð ráð og leið-
beinmgar.” Blöðin hvetja al-
menning til að hamla gegn göllum
einræðiskerfisins svo að unnt
verði að vinna þau verk, sem
vinna þarf.
Stundum ’gera yfirvöldin sig að
athlægi með kúvendingum í á-
róðri sínum. Fyr-ir nokkrum ár-
um bönnuðu yfirvöldin ungu
fólki að hlusta á jazz-músik, en
þegar það bar engan árangur upp
götvuðu þau, að jazz hefði verið
,,list svartra þræla í Bandaríkj-
unum” og „vopn þeirra gegn arð
ræningjunum.” Þannig varð jazz
„virðulegur” og sama er að segja
um suður-ameríska tónlist, sem
átti ekki upp á pallborðið fyrr en
pastro komst til valda á Kúbu.
J>á varð þetta „tónlist hamingju-
samra eyjaskeggja, sem hafa ver
ið frelsaðir undan oki heims-
valdasinna.”
k „Bítfamúsik“.
' „Bítlarnir” njóta mikilla vin-
sælda meðal ungs fólks í Austur-
Þýzkalandi, og margar hljómsveit
ir hafa tekið sér þá til fyrirmynd-
ar og leika tónlist þeirra þrátt
fyrir boð og bönn yfirvaldanna.
Fyrst í stað fóru yfirvöldin hörð-
um orðum um „spillandi áhrif”
Bítlanna á unga fólkið og sögðu
að tónlist þeirra „samræmdist
ekki meginreglum sósíalistískrar
menningarstefnu,” en þegar þessi
áróðursherferð hafði engan árang
ur í för með sér urðu yfirvöldin
að breyta um stefnu og finna
ástæðu, er réttlætt gæti þessa
stefnubreytingu og samræmdist
um leið skoðanakerfinu.
KASTUÓS
Þannig hefur málgagn kom-
múnistaflokksins, „Neues Deut-
schland” birt grein þar sem segir
að meðlimir einnar bitlahljóm-
sveitar í Leipzig hafi ekki ein-
ungis unnið þarft starf í æsku-
lýðssamtökum kommúnista heldur
einnig reynzt dyggir þegnar „hins
sósíalistíska þjóðfélags.” Og blað-
ið bætti við: „Við skulum hafa
það í huga, að það var tónlist af
þessu tagi, sem baráttumenn mann
réttinda í Alabama sungu í hinni
frækilegu frelsisgöngu frá Selma
til Montgomery!”
Hins vegar er það aðeins ungt
fólk í Leipzig og nágrenni sem
fær að gera það, sem kommún-
istaflokkurinn reyndi svo ákaft að
fá það til að hætta við. „Bítla-
músik” er hvað sem öðru líður,
dálítið ólík hugmynd þeirri um
„hamingjusöm æskuár,” sem emb
ættismenn kommúnista tala um í
áróðri sínum.
★ Skipulögð
„hamingja“.
Með „hamingjusömu lífi æsk-
unnar” í Austur-Þýzkalandi er
átt við „tómstundaheimili” — og
svokallaðar „menningar-” og
„æskulýðshallir”, sem aðallega eru
rekin af embættismönnum kom-
múnista. Aðrar „skemmtanir”
eru sumarbúðir, þar sem megin-
áherzla er lögð á áróður og her-
þjálfun, sem hvort tveggja er lið
ur. í „hagnýtri notkun frítím-
ans” og „baráttunni fyrir friði.”
Fregnir herma, að árangurinn af
þessari skipulagningu frítímans
hafi verið litill.
Kommúnistar hafa alltaf lagt
mikla áherzlu á menntamál. Þeir
vonuðu að það mundi færa þá
nær því marki að „skapa nýja,
sósíalistíska mannveru.” Hver
lögin á fætur öðrum hafa tekið
gildi og hin síðustu kallast „lög
um hið sameiginlega sósíalistíska
menntakerfi.” í lögum þessum
segir, að öll þjóðin verði að „vinna
með því að læra og læra með því
að vinna” frá vöggu til grafar, og
umfram allt skuli þjóðin „læra
meira og afreka meira.” Játað
er óbeint, að tilraunir þær, sem
gerðar hafa verið í þessu skyni
til þessa, hafi ekki borið árang-
ur.
★ Frelsisþráin lifir.
Með slíkri „menntun” er að
sjálfsögðu hægt að beina „starfs-
áhuga” í hvaða átt sem er. Einnig
Framhald á 15. síðu
Fánadýrkun barna í Austur-Þýzkalandi.
HANOMAG
Dieselbílar
18 manna hópferðabílar — 2 tonna sendibílar — yfir-
byggðir og óyfirbyggðir, 3—3Vá tonna sendi- og vörubíl
ar — IVz og 3 tonna bílar með drifi á öllum hjólum,
útbúnir til ýmis konar notkunar á vegum og vegleysum.
Hanomag bílar eru viðurkenndir sem miög traustir og
endingargóðir.
Gefum nánari upplýsingar og sendum myndalista þeim,
sem þess óska.
BERGUR LÁRUSSON H.F.
Brautarholti 22, Reykjavík. — Sími 17379.
Eftir 1. júlí verður síminn 12650.
LOKAÐ
Skrifstofur vorar og afgreiðsla að Laugavegi
114 verða lokaðar mánudaginn 28. júní >vegna
skemmtiferðar starfsfólks.
Tryggingastofnun ríkisins.
Tilboð óskast í eftirtalin tæki:
1. VÉLAFLUTNINGAVAGN, 15 tonna.
2. GARANT ’58, yfirbyggður.
3. FORD ’42, yfirbyggður (ógatígfær).
4. PRIESTMAN-krani (Panter), 6 tonna.
Tækin nr. 1—3 eru til sýnis í porti Vélamiðstöðvar
Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 1, r en nr. 4, kraninn, við
bifreiðaverkstæði Reykjavíkurhafnar við Ármúla, næst-
komandi mánudag og þriðjudag.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri, Vonarstræti 8,
miðvikudaginn 30. júní n.k. kl. 10,00 f. h.
Innlcaupastofnun Reykjavíkurborgar.
GARÐAHREPPUR
Starf forstöðukonu við gæzluvöllinn í Sílfurtúni er laust
til umsóknar.
Upplýsingar um starfið veitir undirritaður.
Sveitarstjórinn í Garðahreppi, 25. júní 1965.
TILBOÐ ÓSKAST
í húsið Steinsholt í Garðahreppi, til niðurrifs eða brott-
flutnings. Húsið stendur á lóðinni nr. 47 við Lindar-
flöt. Byggingarréttur fylgir á lóðinni.
Tilboðum sé.skilað fyrir 2. júlí til undirritaðs, scm veitir
nánari upplýsingar.
Sveitarstjórinn í Garðalireppi, 25. júní 1965.
OOOOOOOOOÖOVOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
Áskriftasími Alþýöublaðsins er 14900
oooooocooooooooooooooooooooooooo*
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 27. júní 1965 &
(