Alþýðublaðið - 28.09.1965, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 28.09.1965, Qupperneq 9
Hér er veriff aff meta og; vega dilkakjötiff . . . Sveinn og er hann Guðmundsson, kjörbúðarstjóri og kjötmatsmaður á Króknum — og þar að auki al- nafni kaupfélagsstjórans. Sveinn var fljótur að sjá í hvern flokk kjötið átti að fara — og kallaði upp jafnóðum: Pyrsti, fyrsti, — fyrsti, annar, fyrsti, þriðji, fyrsti, fyrsti o.s.frv. Blaðamaðurinn spu.cði, hvað að- allega réði því, hvernig kjötið flokkaffist, og svaraði Sveinn því til, að holdafarið og útlitið ætti mestan þátt í því. Samkvæmt sam- anburði við skrokkana kom í ljós, aff blaðamaðurinn færi að öllum líkindum í þriðja eða fjórða flokk, en matsmaðurinn í þann fyrsta. Einn af þeim, sem fylgdist með matínu, upplýsti, að yfirleitt væri ekki talað um kjötskrokka, heldur um dilkakjöt, en fyrir slátrun um dilka á fæti. Það er auðvitað ekki hægt að búast við þvi, að þeir, sena aldir eru upp fjarri sláturhús- um, séu inni í sláturhúsamáli og vát því þessi fróðleikur vel þeginn. Ðilkakjötið var nú vigtað, en það gerði maður að nafni Sigurð- ur Stefánsson. Þegar hann var kynntur, var það látið fylgja með, að hann væri só eini. úr hópnum, er viðstaddur var matið og vigt- unina, sem keypti Alþýðublaðið, en hann bætti því við, að það hefði hann gert í fjöldamörg ár. Sig- urður kvaðst vera að verða sjö- tugur og ætlaði hann því brátt að hætta að vinna við vigtunina, en öllum þarna kom saman um, að hann væri kominn vel inn í fagið, eftir langt starf á þessu sviði, — haust eftir haust. Sagði Sigurður, að hann stundaði búskap í hjáverk- um, eins og svo margir fleiri á Sauðárkróki. Einhverjir af þeim, sem hlýddu á úrskurð matsmannsins, vorú bændur, og voru þeir þangað komnir til áð sjá, í hvaða flokk þeirra kjöt færi. Voru allir sam- mála um, að Sveinn, alnafni kaup- félagsstjórans,' væri sanhgjarn og réttlátur matsmaður. Þegar ákveðið var, hverjum flokkanna dilkakjötið tilheyrði, var fest á það merkisspjald með merki SÍS. • Auk þess var tilgreint, hvaða flokk hér væri um að ræða, en á útflutningsmálinu var dilka- kjötið nefnt Iceland Lamb. Einnig stóð á merkispjaldinu: THEY EAT , WELL, sem útleggst eitthvað á þá leið, að kjötið bragðist vel, en ekki — eins- og sumir ætla — að dilk- arnir hefðu borðað vel. Eftir áðurnefnda meðhöndlun eru skrokkarnir klæddir í gaspoka og þannig búnir eru.þeir sendir inn í fyrstiklefann, en þar endar ferð þeirra í bili — í kjötstæðu. Eitt sláturhús, eins og þetta á Sauðárkróki, er mikil bygging og og merkileg fyrir ókunnuga. Auk allra vinnusalanna, frystiklef- anna og geymslunnar fyrir dilka á fæti, er þarna að finna vist- legan matsal starfsfólks, eldhús, snyrtiherbergi og það annað, sem nauðsynlegt er á góðum vinnustað. Sumir hafa með sér mat og kaffi „út á Eyri”, þar sem sláturhúsið er, því að þótt vegalengdin sé ekki meiri frá miðbænum þar, en frá Lækjartorgi að Hljómskálanum, er það talið mjög langt á sauð- krókskan mælikvarða. Eftir að hafa skoðað sláturhús- ið, að svo miklu leyti, sem það verður skoðað í stuttri gönguferð þar innandyra, hitti blaðamaður- inn nokkra unga menn fyrir utan aðaldyr þess. Þeir unnu að því að breiða gærurnar til þerris — og klippa hornin af hausunum, sem búið var að láta meginið af blóð- inu renna úr (með nýju aðferð- inni, sem minnzt var á hér að framan). Kindahausar með sakleys issvip voru á vinnuborði horna- klipparanna, og virtust horfa á þann, sem fram hjá gekk. ACtur varð manni hugsað til þess, sem flestum dettur í hug, þegar komið •er í sláturhús, — þess, að þessir hausar höfðu nokkru áður verið •hausar á dilkum „á fæti,” en nú • eru þetta aðeins hausar, sem bíða þess að verða sviðnir. En jafnvel þeir, sem mest hugsa um það núna, hve leiðinlegt sé, að þurfa að drepa þessi elskulega nytjadýr, munu borða sviðin á jólunum með beztu lyst. — ór. Húsbyggjendur Byggingameistarar Nýtt Glugginn Hinn viffurkenndi norski TE-TU gluggi er kominn á íslenzkan markaff. Framleiffandi samkvæmt einkaleyfi: Gluggaverk- smiðjan RAMMI S/f Hafnargötu 90, Kefiavík. -fc Fyrsta verksmiffjan hér á landi meff SÉRVÉLAR til smíffi glugga og svalahurffa. -fc Opnanlegir gluggar og svalahurffir algjörlega vatns- og vindþéttir. Ný gerff af lömum „PE\DU“-messing-lamir. % -Jt Allir gluggar fúavarffir meff sérsiakri böðun. ■ýf Állir giuggar afgreiddir meff opnaníegum römmum ; hengsluffum. Gluggaverksmiðjan RAMMI s f, Hafnargötu 90, Keflavík Sími 1601. — Heimasímar 2240 — 2412. i ;! i * i' Tiikynning frá Berklavörn í Reykjavík Kaffisala verður eins og venjulega á Berklavarnar- daginn n.k. sunnudag, 3. október til ágóða f fyrir Hlífarsjóð. Konur, sem ætla að gefa kökur, eru vinsam- ; ■legast beðnar að koma þeim í Breiðfirðinga- . \ búð fyrir hádegi á sunnudag, eða hringja í j síma 20343 og 32044. • Stjómin. Sertdisveinn óskasi hálfan dáginn nú þegar. Hampiðjan kf. Stakkholti 4. Sími 11600. ALÞYÐUBLAÐIÐ - 28. sept. 1965 gi

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.