Alþýðublaðið - 03.10.1965, Side 2
feimsfréttir
....sidfcastliána nótt
★ KUALA. LUMPUR: — Djakartaútvarpið licrmdi í fyrri-
nótt, að Sukarno forseti væri enn við völd i Indönesíu, hann væri
heill á ihúfi ofí við beztu heilsu. Áður var orðrómur um, að for-
setinn væri annað hvort látinn, alvarlega sjúkur eða í stofufang-
eisi. Skothríð heyrðist á götum Djakarta en allt er á huldu um
Ibyltingartilraunina á föstudag.
★ SAIGON: — Níu manns biðu bana og að minnsta kosti
40 særðust þegar hryðjuverkamenn Vietcong vörpuðu sprengju
fyrir framan íþróttaleikvanginn í Saigon í gær. Margt manna
var á götunni þar sem sprengjan sprakk.
★ NEW YORK: — Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Dean
Itusk, hélt áfram viðræðum isínum við.Andrei Gromyko, utanríkis-
ráðherra Rússa, í fyrrakvöld að því er skýrt var frá í gær. Þetta
var annar fundur þeirra á tveimur dögum. Helztu mál á dagskrá
voru aðgerðir til að stöðva útbreiðslu kjarnorkuvopna, Kasmír-
deilan og sambúð austurs og vesturs. Áður hafði Rusk rætt við
Singh, utanríkisriáðherra Indlands.
★ NEW YORK: — Fastafulltrúi Pakistans hjá SÞ; Sayed
Amjad Ali, liefur sent U Thant, framkvæmdastjóra SÞ. bréf þar
sem Indverjar eru sakaðir um ný brot á vopnahléssamningnum á
Cliamb-svæðinu í Kasmír. í bréfinu segir, að átökin geti breiðzt
|ít til annarra vígstöðva haldi Indverjar- árásum sínum áfram.
★ NÝJU DELHI: —. Indverski forsætisráðherrann, Shastri,
lýsti því yfir í Nýju Delhi að Pakistanar 'hefðu ekki sýnt vilja
iil að finna jákvæða lausn á Kasmírdeilúnni. Styrjöld gæti aftur
hiossað upp vegna afstöðu Pakistana.
★ MOSKVU: — Æðsta ráð Sovétríkjanna staðfesti einróma í
jgær áætlanir stjórnarinnar um endurskipulagningu á stjórn at-
jvinnuvega landsins. Áætlanirnar kveða á um, að stofnaðar verði
28 nýjar stjórnardeildir, sem stjórna skuli atvinnuvegunum.
Æðsta ráðið staðfesti skipun Dimitri Polyansky í embætti 1. vara
íorsætisráðhcrra. Petr Lomako, varaforsætisráðherra og formað-
ur hinnar voldngu skipulagsnefndar, var leystur frá störfum.
★ KAIRÓ: — Nasser forseti Egyptalands skipaði Aly Sabry
fv. fonsætisráðlierra í embætti varaforseta í fyrrakvöld. Zakaria
Mohieddin var skipaður forsætisráðherra og ráðherralisti hans við
urkenndur. Mohieddin er einnig innanríkisráðheiTa. Fawzi verður
varaforsætisráðherra og er einkum ætlað að fjalla um utanríkis
oiál. Mahomoud Riad verður áfram utanríkisráðherra.
tj'j ★ PARÍS: — Frakkar og Kínverjar undirrituðu í gær samn
inga um víðtæka samvinnu á isviðum menningarmála, vísinda og
tækni. Kínverskir stúdentar munu þegar í haust hefja nám við
ifranska háskóla.
’ Hvað verður hægt
að hjálpa mörgum
EYJABÁTAR SELJA YTRA
Vestmannaeyjum,
ÞAÐ tíðkast nú allmikið að Eyja-
bátar sigli með afla sinn til sölu á
erlendum mörkuðum. Eyjaberg og
Leo eru nú á heimleið eftir að
fiafa selt vel í Grímsby, Eyjaberg
fyrir rúm 3900 pund og Leo fyrir
um 3800 pund. Kristbjörg mun
liafa selt i Grímsby á þriðjudag-
inn og Sjöstjarnan selur um þess-
ar mundir í Aberdeen. Á útleið
eru Frigg, Sindri, Gylfi, Ólafur
Magnússon og ísleifur III. Þeir
eiga allir að selja í Bremerhaven,
nema ísleifur III, sem mun að
öllum líkindum selja í Grímsby.
Nokkrir bátar eru að veiðum og
ætla að sigla út með aflann.
Sænskir læknar vonast nú til að
geta hjálpað allmörgum börnum,
sem fæðst hafa með vanskapað-
ar hendur eða fætur, vegna þess
að mæður þeirra höfðu á með-
göngutímanum tekið inn hið al-
ræmda thalídómíd.
Fyrsti uppskurðurinn af þessu
tagi liefur þegar verið framkvæmd
ur og sá árangur, sem þar náðist
gefur allgóðar vonir. Lítil sænsk
telpa, sem af völdum thalídómíds
var með bæklaðan liægri hand-
legg, hefur nú fengið svo mikla
bót, að ekki er lengur unnt að
sjá neina missmíði á handlegg
hennar og mun hún áður en langt
um líður geta notað liann, sem
ekkert hefði ískorizt, að því er
læknar telja.
Uppskurðurinn var framkvæmd-
ur á Karólínska sjúkrahúsinu í
Stokkhólmi, og gerðu liann nokkr-
ir læknar undir stjórn Magnus
Baekdahl, en hann hefur um skeið
kynnt sér hvað gera mætti til að
gera þessum börnum lífið bæri-
legra.
Stúlkan, sem hér um ræðir er
fjögurra ára gömul og heitir Mari.
í liðamót á hægri handlegg henn-
ar vantaði bein og var liðurinn því
óvirkur. Læknarnir tóku eitt af
rifbeinum stúlkunnar, löguðu það
til og settu það þar sem beinið
vantaði.
Aðgerðin virðist hafa tekizt vel
og litla stúlkan getur nú leikið
sér í boltaleikjum og gripið bolt-
ann eins og önnur börn, en það
gat liún ekki áður.
Sænsku læknarnir vilja ekki
mikið láta hafa eftir sér um mögu
leikana á að hjálpa öðrum fórnar-
lömbum thalídómíd lyfsins. Þeir
benda á að tilfellin séu mjög mis-
munandi, og bæklun stúlkunnar,
Framhald á 14. síðu
Mari í fangi hjúkrunarkonu á
sjúkrahúsinu, þar sem hún nú
dvelur.
Mari sýnir hvað hún getur. Hér
heldur hún á spegli og lagar á sér
hárið.
VINNA18 TÍMA Á DAG
í 7 - 8 MÁNUÐI Á ÁRI
NORSKIR sjómenn liittu nýlegaJ þeir fyrst, að hér væri um skip-
cinsamlan portúgalskan doríufiski
mann, sem var á opinni bátsskel
á regin hafi í Davíðssundi milli
Grænlands og Labrador. Héldu
Stúlkur gabbaðar til Svíþjóðar
Stokkhólmi, 1. október
(NTB - TT)
TJM 12 — 13 norskar stúlkur, sem
mikinn áhuga hafa á dægurlaga-
músík, söfnuðust saman fyrir fram
an útvarps- og sjónvarpsverzlun
skammt frá St. Eriksplan í Stokk-
hólmi þegar verzlunin opnaði. Þær
höfðu ferðazt frá Osló til þess að
hitiá skurðgoð sln, dægurlaga-
hljómsveit, sem er ofarlega á vin-
sældarlistum í Noregi, og átti, að
því er stúlkurnar höfðu fregnað,
að dveljast í Stokkhólmi.
Eigandi verzlunarinnar, sem er
góðkunningi hljómsveitarmann-
anna, gat ekki veitt stúlkunum
neina úrlausn og reyndi að sánn-
færa þær um áð þæi hefðu verið
gabbaðar. Þær trúðu lionum ekki
fyrr en hann hringdi til Halden í
Noregi, en þar var hljómsveitin
í morgun. Tvær stúlknanna fengu
að tala við liljómsveitarmennina í
símanum og hrifningin var svo
mikil að þær fóru að gráta.
Þar sem stúlkurnar voru félaus
ar hringdi eigándi verzlunarinnar
I hórsku ræðismannsskrifstofuna í
Stokkhólmi, en síðan var liaft
samband við barnaverndarnefnd-
ina sem skyldi útvega stúlkunum
mat og peninga til heimferðarinn-
ar. En síðdegis í dag höfðu stúlk-
urnar ekki haft samband við skrif
stofu barnaverndarnefndarinnar
og talið er að þær hafi flestar
hverjar haldið lielm til Noregs á
eigin spýtur.
reka mann að ræða að því er seg-
ir í síðasta tölublaði norska sjó-
mannablaðsins Fiskarcn.
1 ljós kom þó, að hér var um að
ræða doríukarl, sem var komina
talsvert langt frá móðurskipi
sínu. Þarna var að sjálfsögðu ís-
hafskuldi, en Portúgalinn illa
klæddur, tóbakslaus og því sera
næst nestislaus, var þó með lítinn
matarbita og víndreitil á flösku.
Gáfu Norðmennirnir honum mat
og tóbak og hlýjan fatnað, en hann
sagði þeim nokkuð frá kjörum sín-
um um borð, sem ekki eru beisin.
Frá móðurskipinu róa tæplega
hundrað doríur, og er einn maður
á hverri. Þeir róa á hverjura
morgni hvernig sem viðrar og eru
Frh. á 15. síðu.
2 3. okt. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ