Alþýðublaðið - 03.10.1965, Page 5
Þjóðern isstefna
í Austur - Evrópu
TILRAUN valdamannanna í
Moskvu til þess að komast að sam
komulagi við rúmensku leiðtog-
ana, sem íhafa gert uppreisn 'gegn
ofurvaldi Rússa, ;hefur valdið sovét
leiðtogunum erfiðleikum. í sam-
skiptunum við þá bandamenn
sína, sem mesta áherzlu hafa lagt
á nauðsyn aga í herbúðum komm
ánista.
Forseti Tékkóslóvakíu, Novotny,
Or nýkominn úr vikuheimsókn í
Moskvu, þar sem stöðugur orðróm
ur var á sveimi um ósamkomulag
meðal leiðtoga Austutr-Evrópu
meðan hann dvaldist þar. Áreiðan
legasta fréttin um þennan orða-
sveim er frá fréttaritara Reuters
í Moskvu, sem hefur það eftir
„áreiðanlegum heimildum“ að
Novotny hafi ekki tekizt að fá
govétleiðtogana til þess að fall-
ast á að haldin verði ráðstefna
eeðstu manna Austur-Evrópu, þar
sem ræða skuli samræmingu stefn
unnar í efnahagsmálum áður en
næsta fimm ára ætlun verður sam
in.
Novotny mun einnig hafa hvatt
til nánari sameiningar efnahags
Sovétríkjanna og Tékkóslóvakíu
og 'lagt til að samstarfsnefnd Aust
ur-Evrópu á sviði efnahagsmála,
COMECON, yrði fen'gið stærra
hlutverk.
★ MILLI STEINS OG
SLEGGJU.
Hér eru sovézku leiðtogarnir
greinilega milli steins og sleggju.
Annars vegar hafna rúmensku leið
togarnir samræmingu innan
COMECON en hins vegar vilja
Tékkar aukna samræmingu Ef
Tékkar fá ekki vilja sínum fram
gengt geta leiðtogar þeirra dregið
þá ályktun. að þeir verði að finna
svar við vandamálum sínum annars
staðar og fjarlægjast Moskvu
bæði efnahagslega og stjómmála
lega.
Fyrr á þessu ári hélt rúmenska
flokksmálgagnið ,, S téttabaráltan‘ ‘
uppi hörðum árásum á tékknesku
tillöguna um sameiginlega áætl-
unargerð í efnahagsmálum.
Hægt var að líta á rúmensku
greinina sem ásökun þess efnis,
að Tékkar vildu halda Rúmenum
áfram á stigj vanþróunar í iðnaði,
svo að þeir gætu notað sér yfir-
burði sína í efnahagsmálum til
þess að hagnast á hágrönnum sín
um. í greininni sagði, að tékk-
nesku tillögunni svipaði til heims
kapitalismans ,,þar sem lönd heims
valdasinna, sem náð hafa háu
þróunarstigi í iðnaði, reyna að
þröngva óhagstæðum kjörum upp
á þau lönd, sem skemmra eru á
veg komin í þróuninni."
Rúmenar vísa á bug tilraunum
til að knýja fram samræmingu í
skipulagningu efnahagsmála því
að slíkt mundi !gera þeim löndum,
sem lengra eru á veg komin, hærra
undir höfði en hinum ef þessu
væri fylgt út í æsar.
Frá bæjardyrum Tékka séð
verður afleiðingin af þeirri stað-
reynd, að valdamennirnir í
Moskvu beygja sig fyrir kröfum
Rúmena og leggja áformin um
stranga samræmingu í efnahags-
málum á hilluna, sú, að Tékkar
fara á mis við pantanir og fjár-
festingar erlendis frá, sem þeir
telja sig eiga rétt á.
Ef ráðamönnum í Prag tekst
ekki að bæta þetta tjón innan her
búða kommúnista er mjög senni-
legt að Tékkar verði að efla tengsl
in við lönd, sem eru utan bessara
herbúða. Valdamenn í Moskvu geta
haft ástæðu til að óttast, að i kjöl
far slíkrar þróunar fylgi stórt
skref í átt að auknu pólitísku sjálf
stæði eins og þegar hefur átt sér
stað hvað Rúmena varðar,
Moskva gæti stuðlað að því að
koma i veg fyrir slíka þróun mála
ef Tékkum væru tryggðar veru-
lega miklar pantanir til langs
tíma í iðnaði þeirra frá Sovétríkj
unum. '
★ FÓRN FYRIR ALLA
En ef pantanirnar eru nógu
miklar til þess að Tékkar geti gert
sig ánægða með þær kann þetta að
hafa það í för með sér, að Rúss-
ar sjái sér ekki fært að panta
eins mikið magn hjá hinum aðild
arríkjum COMECON, en þau
■hafa einnig mikinn áhuga á að
efla iðnað sinn. Nauðsynlegt kynni
jafnvel að reynast að draga úr
nauðsynlegum framkvæmdum í
Sovétríkjunum sj'álfum.
Bezta lausnin virðist enn vera
isú, að gerð verði sameiginleg á-
ætlun, sem skipti möguleikum á
sviði iðnaðar milli landanna á
þann hátt, að tryggð verði sem
ódýrust vara og sem bezt vöru-
gæði er verði öllum til góðs.
En með þessu yrði þeim lönd-
um, sem nú þegar búa við tiltölu-
lega velsæld, aftur gert hærra und
ir höfði en fátækari löndunum,
sem yrðu gerð fátækari samanbor
ið við' hin. Þannig lokast vita-
hrin'gurinn.
Ef þessi skipan mála yrði knú-
in fram yrði afleiðingin ef til
vill sú, að Rúmenía segði sig úr
austurblökkinni, og önnur „þróun
arlönd“ eins og Búlgaría fengju
tækifæri tii að fara að dæmi Rúm
eníu.
Bezta lausnin finnst því senni-
Framhald á 15. síðu.
TIL SÖLU
Á bifreiðaverkstæði lögreglunnar við Síðumúla 14 er til
sýnis cg sölu Willys Jeppi 1946 í mjög góðu standi. Upp-
lýsingar á staðnum. Tilboð sendist Skiila Sveinssyni,
varðstjóra, fyrir 8. október nk.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 1. október 1965.
Skrifstofur vorar
málningarverksmiðja og verzlanir verða lok
aðar mánudaginn 4. október frá kl. 1—4
vegna jarðarfarar Kristjáns Ásgeirssonar,
fyrrum iverzlunarstjóra á FJateyri.
Slippfélagið í Reykjavík hf.
Innheimfudeild
Útvegsbanka Islands
Er flutt í ný húsakynni á 2. hæð húss
bankans við Austurstræti.
Úfvegsba^ki íslands.
Dansnámskeið
Námskeið í gömlu dönsunum, byrjenda og framhaldsflokk-
ar hefjast mánudaginn 4. október, í Alþýðuhúsinu vjð
Hverfisgötu. Einnig námskeið í þjóðdönsum. Námskeið
í þjóðdönsum og gömlu dönsunum hefjast þriðjudaginn
5. október að Fríkirkjuvegi 11.
Innritun og upplýsingar í síma félagsins 12507.
ÁSGEIR ÁGÚSTSSON, oddviti
í Stykkishólmi, er umboðsmaður
Alþýðublaðsins þar. Dóttir
Ih'ans, Guðbjörg Elín, 12 ára, ann
aist útburðinn. Þau eiga heima að
Tanigagötu 8 og hafa símanúmer
95.
Verið er að byggja dráttarbraut
í Stykkishólmi, og eru miklar von
ir bundnar við þá framkvæmd og
búizt við, að þær hafi úrslitaþýð
ingu á framtíð bæjarins sem iðn
aðarsmiðstöðvar, sem veiti þjón-
ustu vaxandi bátaflota við Nesið
og annars staðar. Byrjað var lítil-
iega á verkinu árið 1962 en af
fullum krafti á þessu sumri Bú-
izt er við, að dráttarbrautin verði
tckin í uotkun nú í haust. Mann
virkið kostar 15 — 16 milljónir
ikróna.
Útgerð ihefur genigið vel frá
Stykkishólmi í sumar, mi'kill afli
hefur verið á handfæri, handfæra
veiðar stunduðu á tímabili um 60
— 70 imienn. Tvö fi'skaðgerðarhúis
eru í smíðum og verður annað
þeirra í senn, sláturhús og er í eigu
Kaupfélags Stykkishólms. Sextán
íbúðarhús eru í smíðum í Stykk-
ishólmi, þá er verið að byggja
póst- o|g símahús. Sjálfvirkur sími
verður tékinn upp á næsta ári. Á
vegum Landsímans hafa verið á
ferðinni menn við mælingar vegna
fyrirhugaðrar endurvarpsstöðvar
sjónvarps hér um slóðir.
Endurskráninigu Amtsbökasafns
ins er nú senn að Ijúka, og er fyr
irhugað að opna það til útlána í
nýju og vistlegu húsi innan
skamms. Sitthvað fleira mætti
segja í fréttum frá Stykkishólmi,
segir Ásgeir Ágústsson, atvinna er
blómstrandi og ferðamannastraum
urinn er drjúgur. Sumarhótelið,
sem 'hér er starfrækt í húsakynn
um heimavistar miðskólans. laðar
að ferðafólkið, enda rekið af mynd
arskap. Það mun hafa verið full
skipað flestar nætur allt sumarið
og mikil greiðasala um helgar.
ÁSGEIR ÁGÚSTSSON
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 3. okt. 1965 5