Alþýðublaðið - 12.11.1965, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 12.11.1965, Blaðsíða 10
SJÖNVÖRP — HEIMILISÚTV ÖRP — BÍLAÚTVÖRP — FERÐATÆKI SÖLUUMBOÐ. Reykjavík: Radíóver sf., Skólavörðust. 8, Akranes: Verzlunin Óðiiin, Keflavík: Stapafell, Vcstmannaeyjar: Raftækjaverzlun Haraldar Eiríkssonar EINKAUMBOÐ GUNNAR ÁSGEIRSSON HF. Suðurlandsbraut 16 — Sími: 35-200. BBC útvegar gögn gegn manninum er hóf styrjoldina Samkeppni Áfeveðið hefur verið að efna til hugmynda- samkeppni um merki Hagtryggingar hf., og verða veittar kr. 10.000,00 fyrir valið merki. Væntanlegir þátttakendur eru vi'nsamlegast beðnir >að senda tillögur sínar í einum eða tveimur litum og stærðinni 20pc20 cm, í lok- uðu umslagi og undir dul'nefni, til skrifstofu fyrirtækisins fyrir 10. des. n.k. Skýring á dulnefni fylgi einnig í lokuðu umsiagi. Öll- um er heimil þátttaka. Stjórn félagsins mun sjálf skipa domnefnd. HAGTRYGGING HF. Bolholti 4, Reykjavík. Systrafélagið Alfa, Reykjavík heldur sinn, árlega bazar mánudaginn 15. nóvember í Góðtemplarahásinu við Templarasund. Bazarinn. liefur á tooðstólum hlýjan ullarfatnað barna og einnig ýmislegt til tækifæris- og jólagjafa. Allt, sem inn kemur fyrir bazarvörurnar, fer til hjúlpar bágstöddum. Bazarinn verður opnáður kl. 2. Allir velkomnir. j London, 10. nóvember j (NTB-Reuter) i Fulltrúi vestur-þýzkra dómsyf- irvalda, dr. Westermann, skýrði trá því í London í dag, að hann mundi klippa og nota hluta af iEvikmynd, sem brezka sjónvarpið ' (efur gert. Yfirvöld í Vestur- ! >ýzkalandi hyggjast nota þessa 1 iluta myndarinnar í leit sinni að : yrrverandi majór úr SS, sem i veðst hafa hafið heimsstyrjöld- i ja síðari Westermann skýrði frá þessu (r hann hafði séð kvikmyndina , Maðurinn sem hóf heimsstyrjöld- i ja“ sem sýnd verður í brezka æónvarpinu á fimmtudaginn. Starfsmenn brezka útvarpsins og sjónvarpsins, BBC, hófu gerð kvikmyndarinnar þegar þeir höfðu leitað uppi Alfred Naujocks fv. major, sem er búsettur í Hamborg. Hann hefur falið sig vendilega og býr m.a. á-bak við tvennar dyr, sem haldinn er vörður um með rafeindatækjum og öðrum örygg-! isútbúnaði, sem minnir á glæpa- sögur. Naujocks, sem nú er 54 ára að aldri, hefur sagt frá því hvern- ig hann hleypti heimsstyrjöldinni af stað með árás, sem sett var á svið, á þýzka útvarpsstöð skammt frá landamærum Póllands 1939. Eftir styrjöldina var hann dæmd- ur í fjögurra ára fangelsi fyrir njósnir. Hann afplánaði dóminn, en síðan hefur verið lýst eftir! honum í nokkrum löndum. í kvikmyndinni segir Naujocks frá því hvernig hann stjórnaði árás hóps Þjóðverja á útvarps- stöðina 31. ágúst til þess að til- kynna á pólsku að Pólverjar hefðu ráðizt á Þýzkaland. Sendingin var síðan flutt á þýzku um allt Þýzka- land og veitti þetta Hitler nauð- synlega átyllu til að ráðast á Pól- land. MinjasafBi . . . Framhald af 2. síðu geta þess, að hinn nýlátni safnari Andrés Johnson í Hafnarfirði hafði lagt grundvöll að merkja- og myntsafni, sem nú hefur ver ið komið fyrir, og dregur ávallt að sér athygli yngri safngesta, þar í er einka bréfamerki, jóla- merki og síldarmerki, en Jón Páls son tómstundakennari gaf stofn inn að ísl. myntsafninu. í þessu sambandi er þess líka að geta, að lokið er uppsetningu og skrá setningu verðlaunagripa og íþrótta peninga Magnúsar Guðbjörnsson ar hlaupara, afhent af syni hans Björgvin skólastjóra að Jaðri. í einum sýningarskáp 145 peningri’ en alls um 400 munir nú skrásett ir, ánafnaðir Minjasafni og Árbæj arsafni af hinum látna. Verðmæt ust muna, sem safninu hafa á skotnast í seinni tíð, verða talin tvö málverk eftir Nicolas Pocock, hinn fræga enska sjómyndamál ara, keypt í London, og sýna Reykjavík 1789. Myndirnar eru málaðar eftir frumteikningu frá Stanley-leiðangrinum það ár. Þetta eru elstu myndir af Reykja víkurbæ ef frá eru taldar vatns I litamyndir Sæmundar Hólms 1781 og einu heimildir sjónarvotts um útliti Hólavallaskóla og kirkjunnar við Aðalstræti. Eftirmyndir af myndum Sæmundar, sem varð- veittar eru í Landsbókasafni, hef ur Aage Nielsen-Edwin myndliöggv ari gert fyrir safnið ásamt yfir lits mynd yf>r bæinn 1801. Eins og frá hefur verið skýrt fannst eldstó í húsinu Austur- stræti 22 við breytingu á verzi uninni Herrabúðin. Þorgrímur Tómasson verzlunarstjóri Herira búðarinnar gerði minjaverði að- vart um fundinn og í samráði við dr. Kristján Eldjárn þjóðminja- vörð var afráðið að Minjasafn borg arinnar tæki mannvirki þetta í um sjón sína, þannig bað fongi að standa óhreyft í hús'nu. Viðgerð á eldstónni annaðist Hans Blomst erberg múrarameistari, en þar hefur verið komið fyrir gömlum eldfærum, katli, þrífót og pottur hangir í hóbandi. Eldstóin er frá byggingarárum hússins 1801 og reiknast því elzta óbreytt mann virki í borginni. Er ánægjulegt til þess að vita, að svo einstætt mann virki í sögufrægu húsi skuli fá að geymast enn um stund í miðbiki borgarinnar. Síðar verður hægt að fjarlægja eldstóna í heilu lagi til varðveizlu í Árbæjarsafni. (Frétt frá Minjasafni Reykjavík ur.) Samn. við Pólverja Framhald af 3 -ooi land og Pólland gerðu með sér í fyrra náðist við tímabilið 1. okt. 1964 til 1. okt 1965, en var fram- lengdur til 15. nóv. Á síðasta samningsári fluttu íslendingar tii Póllands eftirtaldar vörutegundir. 5 þús. tonn af freðsíld, rúm 2 þús. tonn af saltsíld, rúmlega 7 þús. tonn af mjöli, fiskimjöli og síldarmjÖli, 3600 tonn af lýsi og nýlega voru flutt til Póllands 30 þús. stk. af söltuðum gærum. Alls voru fluttar út til Póllands vörur fyrir 135 millj, kr., en frá Pól- fandi fluttum við inn vörur fyrir rúmlega 100 millj. kr. Frá Pól- landi kaupa íslendingar aðallega timbur, járn, kol og vefnaðarvöru. Á síðasta samningsári var samið um kaup á tveim dráttarbrautum frá Póllandi og útlit er fyrir að keypt vwði ein eða tvær til við- bótar. Af þeim sem þegar hefur verið samið um kaup á verður önnur sett niður í Njarðvikum og hin í Neskaupstað og í athugun er Iivort ein verður keypt til Hafn- arfjarðar. Viðskipti landanna hafa farið sívaxandi enda þótt ýmsar af þeim vörutegundum sem við flytj- um inn frá Póllandi hafi verið settar á frílista. ILLINN Rent an Icecar Sími 1 8 8 33 £0 12. nóv. 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.