Alþýðublaðið - 12.11.1965, Page 16
REYKJAVÍK er orðin stórborg, |
en þó ekki nógu mikil stórborg |
til þess að augnabliks rafmagns-
leysi geri henni gramt í geði.
Menn eru líka vanari slíkum fyr-
irbrigðum hér í henni Stór-Reykja
vík heldur en í henni Nýjorkinni,
því að eins og allir vita má ekki
koma ofurlítið frost og hraglandi,
án þess að Sogsvirkjunin fari úr
sambandi
Kallinn keypti Encykloped
iu fyrir fjórtán þúsund kall
og það fyrsta sem hann sló
upp á var orðið Encykloped
ia> til að vita hvað það
þýddi. ....
Þegar ég Iít yfir farinn veg
á ævi minni, verð ég að segja
að mér þykir mjög vænt um
Reykvíkinga, þótt ég liafi
; stundum þurft \að lumbra á
allstórum hluta þeirra. . .
Morgunblaðið.
Það gerist sem sagt ekkert sér-
sakt í slíku tilfelli, utan skóla-
krakkar reka upp gleðióp, ef raf-
magnið fer í grálýsi morguns-
ins ellegar einhverjir fuliir pípu-
hattar verða hræddir, ef lyftan
á Hótel Sögu stöðvast á milli hæða
Auðvitað stafar sú hræðsla þeirra
ekki af því, að þeir séu lokaðir
innan fjögurra veggja, heldur af
hinu, að það slokknar á rafmagn- J
inu í sálartetrinu þeirra, — renn- i
ur af þeim.
Jú, reyndar gæti sitthvað al-
varlegt gerzt í rafmagnsleysi hér
í Reykjavík, þótt ekki hafi neinn
haft spurnir af því enn þá, og er
vert að geta þess, þrátt fyrir það
sem á undan er sagt. Sérhverja
hættu ber að sjá fyrir og barna
brunninn áður en byrgið er dottið I
ofan í, eins og almannavarna-
nefndin hefur margoft bent á.
Til að mynda gæti maður verið
staddur í Austurstræti og staðið
þar fyrir utan kjörbúð SÍS og átt
að kaupa hrossabjúgur í matinn
fyrir kerlinguna, — og hímt þar
fyrir luktum dyrum, því að hurð-
in ku opnast og lokast fyrir raf-
magni. Öllu verra væri þó, ef mað-
ur væri þegar kominn inn, en
ætti þess ekki kost að komast
þaðan út aftur nema maður lof
aði kannske að ganga í Framsókn-
arflokkinn og yrði þá fyrir náð
hlevpt út um kjallaragluggann.
Það eru sem sagt mörg vítin
að varast í hinni rafmagnslausu
veröld og er þó enn ótalið, það
sem mestu máli skiftir: Þegar
rafmagnið fer, stöðvast tíminn,
sem skáldin hafa glímt við í þús-
f js Lögregluradar Ef kerlingin lemur karlinn og krakkarnir bregða á leik, er okkar ágæta lögga óðar farin á kreik.
Og hafir þú of mikinn hraða og hemlír ekki við „Stanz“, þá kemur löggan með kæru og keyrir þig uppi með glans.
1 I Ef hallastu upp að húsvegg til að hrcssa upp á líkamanu, löggan þér ómjúk ekur óðar í kjallarann.
• 1 ; i1 ?! Varastu vondan lifnað, vinur og bróðir minn. Það sést gegnum liolt og hæðir, ef horft er í radarinn. Kankvís.
Svona lítur Reykjavík út þegar rafmagnið bílar
und ár. Því að nú á dögum
ganga allar klukkur fyrir rafmagni
nema dómkirkjuklukkan. Hana
trekkir maður nokkur upp öðru
hverju og fer í Naustið með frúna
í hvert skifti se'm klukkunni er
flýtt eða seinkað, eins og Morg-
unblaðið liefur .mikillega skýrt
frá. . . _ . ....... .
Verst staddir af ölium. má. þó
hugsa sér að þeir veslings menn
séu, sem ganga í hús borgarinnar
og eru að rukka með hávaða og
látum fyrir rafmagnið,^'—- ein-
mitt þegar það fer ...