Vísir


Vísir - 04.02.1959, Qupperneq 6

Vísir - 04.02.1959, Qupperneq 6
V I S 1K Miðvikudc . 4. febrúar 1959 wisxis. \ w « < Oteeranm HOAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.f Visxr kemur ui -1(111 uaga á ári, ymisi h eða 12 niaðsiður Ritstjór ue abvrgðarmaður: Herstemn Páls«nr. y Sknístotui oiaðsins eru í Ingolísstræti Ritjjtjórnarskní'stoíur blaðsins eru opnar frá kl. 8.00—18,00 Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00 Aígreiðsla lngólfsstræti 3, opin frá kl. 9.00—19.00 Sími (11660 (fimm línurl Vísir kostar kr. 25.00 í áskrift á mánuði kr. 2.00 eintakið í lausasölu Félagsprentsmiðjan h.f. Air sjcðir tómir. Framsóknarmenn hafa löngum haft þá iðju að telja lands- mönnurn trú um, að enginn maður kunni að fara með opinbert fé nema Eysteinn Jónsson. Þeir töldu hann undrabarn á sínum tíma, þegar þeir gerðu hann að fjármálaráðherra nýkominn úr skóla, og síðan hefir hann verið þeirra mesta ,,séní“ á fjármálasviðinu. Það er raunar viðurkennt, að hann er einkar laginn við að raka fé í ríkissjóðinn, en hitt er annað mál, hvort það ber vitni um eitthvert sérstakt fjármálavit. í rauninni er aðeins hægt að segja, að maðurinn sé hugkvæmur við að finna upp nýja skatta eða margfalda hina eldri. Þeir, sem höfðu bjargfasta trú á fjármálasnillinni, vökn- uðu við vondan draum fyrir fáum dögum, þegar fyrr- verandi fjármálaráðherra tók til máls á þingfundi og gaf lýsingu á því, hvernig umhorfs væri í fjárhirzlu ríkisins. Hann sagði þá með- al annars, að hagur ríkisins væri með þeim ágæturn, að allir sjóðir væru tómir, svo að mikil vandræði blöstu viö. Gat hann þess sérstaklega í þessu sambandi, að hætta væri á því, að margir rnenn mundu missa íbúðir sínar, af því að ekkert fé væri fyrir hendi í veðmálakerfinu, sem hjálpar mönnum til að eign- ast þak yfir höfuðið. Fleira þarf ekki að telja af því, sem fyrrverandi fjármála- ráðherra hafði að segja um viðskilnað sinn og sam- starfsmanna sinna. ,,Um- bóta“stjórnin hafði skilið þannig við, að gjaldþrot blasti við mörgum mönnum og í rauninni hefði hrun atvinnuveganna fylgt á eft- ir, ef stefna hennar hefði fengið að ráða öllu lengur. Samt gátu ráðherrarnir komið fram fyrir þjóðina, hver af öðrum, og lýst yfir því, að allt væri í rauninni í bezta lagi, því að aldrei hefði verið auðveldara að kippa öllu í lag en einmitt nú. Kannske þeir hafi haft í huga orðtakið: Þegar neyðin er stærst, er hjálpin næst. Minningarorð: Þornióður EyfóifsscM* B'í&ÍbÍSBtteS. ðssV’~ Fíóttinn hafinn. En þrátt fyrir yfirlýsingar um það, að aldrei væri auðveld- ara að leysa vandann en einmitt að undanförnu, gerði stjórnin ekki tilraun til þess. Framsóknarflokk- urinn hafði ekki forustu um að ráðizt væri til atlögu við vandamálin, þrátt fyr-ir það, hvað auðvelt það var, að hans eigin sögn. Enginn má þó ætla, að hann hafi verið aðgerðariaus með öllu. Því fór fjarri. Ráðherrar flokksins tóku nefnilega til fótanna, eins og þeir hafa ætíð gert, þegar í móti hefir blásið. í stað þess að bregðast við vand- anum eins og menn, hlupu þeir frá öllu saman, án þess að bera við að kippa því í lag, og svo lýstu þeir yfir. að samstarfsmennirnir ættu alla sökina, það væru þeir, sem hefðu hlaupizt á brott frá vandamálunum. Þetta er gamla sagan, að því er Framsókn snertir. Hún hefir jafnan hlaupið á brott frá ábyrgðinni, þegar hún hefir talið sér meiri hag i að bera á aðra, að þeir hafi svikið, sé ekki samstarfs- hæfir og þar fram eftir göt- unum. Það er orðið eitt helzta .einkenni Framsókn- armanna, hvað þeir eru fljótir að taka sprettinn, en þeir verða að aðgæta, að menn geta átt á hættu að vera dæmdir úr leik fyrir að „þjófstarta“. Þormóður Eyjólfsson, ræðis- maður á Siglufirði er jarðsung- iirn þar i dag. Með honum er horfinn þjóðkunnur, glæsilegur maður og einn merkasti borgari, sem Siglufjarðarbær hefur átt. Þormóður Eyjólfsson var fædd ur 15. apríl 1882 að Mælifellsá i Skagafirði. Foreldr-ar hans voru, ! Eyjólfur Einarsson og Margrét Þormóðsdóttir. Synir þeirra hjóna voru sjö, og eru nú þrír eftir á lífi, þeir Sigurður Birkis, söngmálástjóri, Jón Eyjólfsson kaupmaður í Reykjavík og Einar Eyjólfssón á Siglufirði. Þormóður útskrifaðist frá Flensborgarskólanum 1902 og tók þaðan kennara próf 1904. Meðan hann dvaldi við nám í Flensborg, var hann þar einnig söngkennari. 1 efra bekk Verzl- unarsk’ólans var hann 1907—08. • Á Siglufirði var ævistarf hans. Þar hlóðust að honum fjöldi | starfa fyrir rikið, opinberar stolh anir og Siglufjarðarbæ. | Hann var umboðsmaður Samá. byi-gðar íslands, Brunabótafélags Islands og Sjóvátryggingarfélags iíslands frá stofnun alira þessara. félaga. Hann var afgi-eiðslumað- ; ur Eimskipaíélags íslands írá 1924 og norskur í-Epðismaður frá sama tima. Skrifstofustjóri sild- areinkasölunnar var hann 1928. Bæjarfulltrúi á Siglufirði var hann frá 1930 og alltaf í fjár- hagsnefnd. Mörg ár í hafnar- nefnd og áratugi i niðurjöfnun- arnefnd og skattanefnd og for- maður beggja nefnda í mörg ár. Þormóður var einnig i stjóm Síldai-verksmiðja ríkisins frá 1930 og oftast formaður. Fyrir Siglufjarðarbæ var hann í einu orði sagt hinn merkasti og ágætasti maður. Hann var líf og lyftistöng bæjarins í hljómlistar- málum og á sama hátt oftast for- maður sóknarnefndar og forustu maður í kirkjumálum. Söngstjóri Karlakórsins Vísis var hann um tuttugu ára skeið, og stofnaði söngmálasjóð Siglufjarðar. Noregskonungur sæmdi hann St. Ólafsorðunni 1936 og stór- riddari Fálkaorðunnar var hann 1942. Þormóður Eyjólfsson fór marg ar ferðir til útlanda i viðskipta- og fjármálaerindum fyrir Siglu-; f jörð og opinberar stofnanir. Þormóður Eyjólfsson kvæntist 30. júlí 1911 Guðrúnu Önnu j Björnsdóttur, mikilhæfri og á-! gætri konu, sem lifir hann, dótt- ur Björns bónda og .hreppstjóra á : Kornsá í Vatnsdal Sigfússonar. j Fyrir mörgum árum kom ég ! til Siglufjarðar og á ég ógleym- anlegar minningar þaðan frá; glæsilegu og góðu fólki, þá kynt- ist ég þeim hjónum Þormóði og frú Guðrúnu og varð það upp- j hafið að þeirri vináttu, sem j hélst svo óslitið eftir það.Sól- j bjartar minningar eru tengdar við hið fagra og íágæta heimili þeirra. Þau hjónin ólu upp tvær kjör- dætur og einn fósturson og fjöldi af börnum skyid og óskyld dvöldu á heimili þeirra hjóna lengri og skemmri tima. Þormóður Eyjólfsson var fal- legur maður, glæsilegt yfirbragð og dagfar var honum i blóð bor- ið. Hann var aðdáandi allra lista, alls þess sem lyftir mannshugan. um upp frá hversdagsstriðinu, lýsir upp og Ijómar. Hann var þróttmikill maður, beztur og sterkastur þegar mest reyndi á. Hann var ráðhollur, tryggur og vinfastur og sparaði hvorki tíma, vinnu né allskonar hjálp til þess að greiða götu vina sinna. Hann var gæfumaður, því hon- um hlotnaðist sú blessun að eiga konu, sem var prýði hans alla tið, og hann var önnum kafinn alla ævi af þeim störfum, sem sýndu og sönnuðu, að hann átti virðingu og traust samtiðar sinn- j ar. Með þakklæti í huga kveð ég hann og votta konu hans innilega samúð mína. >Ión Thorarensen. Vi/ skoðetn utn löejnn jnrðnw: Lík peru frekar en kiílu. Athuganir byggðar á sporbraut Framvarðar. Hér þarf úr a5 bæfa. Fregnir frá Washington herma, að vísindamenn í at- hugana- og rannsóknastöðvum ltal'i nú komizt að því, að jörð- i iii sé frekar eins og pera í lag- inu en hnattlaga, eða eins og kúla, svo sem haldið hefir ver- ið frarn og kennt. Sagt er frá þessu í tilkynn- ingu, sem birt var nýlega. Það voru athuganir á , sporbraut gervihnattarins Framvarðar, Vísir fann að því í gær, hversu seint landhelgisgæzlan til- kynnti um tilraun Þórs til að taka brezka togarann Valafell að veiðum innan 4ra mílna landhelginnar á sunnudag. Varðskipið kom að togaranum á sunnudags- morguninn, en eltki heyrð- ist orð um þetta opinberlega fyrr en klukkan átta á mánudagskvöld — næstum hálfum öðrum sólarhring siðar. Það er ekki djúpt tekið i ár- inni, að slíkur seinagangur í fréttaflutningi veki furðu og gremju almennings. Hann á fullan rétt á að fá að vita, hvað er að gerast í landhelginni, og engin röJr geta réttlætt, að hann fái ekki samdægurs vitneskju um atburði, er gerast eins snemma dags og sá, sem hér um ræðir. Loks ætti það að vera ekki síð- ur keppikefli landhelgis- gæzlunnar en annarra, að málstað íslendinga sé kom- ið á framfæri erlendis með því að greiða fyrir frétta- sendingum til útlanda. Ef það er ekki gert, er verið að hjálpa Bretum að koma sínu sjónarmiði á framfæri lrjá öðrum þjóðum og bægja okkar frá, því að slíkir at- burðir eru ekki fréttamatur r marga daga í augum út- lendinga. sem leiddu til þess, að menn komust að þessari niðurstöðu. Þegar hann var næst jörðu kom fjarlægðin ekki heirn við fyrirfram gerða útreikninga, j en þeir byggðust á fyrri kenn- jingum um lögun jarðar. Norð- jurhvel, segja vísindámennirn- ; irnir, er hvelfdara en ætlað var, en suðurhelmingur dregst inn I líkist mjórri enda á peru. Nýjar athuganir hafa sýnt, jað yfirborð sjávar er 50 ensk- um fet. hærra en áður var talið 'venjulegt, en yfirborð sjávar á suðurskautinu um - 50 e. f. lægra en ætlað var. Svæðin í kringum skautin hækka eða lækka í hlutfalli hér við. | Þá segir í tilkynningunni, að: vísindamennirnir telja að efni inni í jörðinni sé fastar en ætl- að var — ella myndi hin peru- laga hvelfing í norðri og mjórri hlutinn í suðri ekki fá nægi- legan stuðning. KaupJækkanir. „Borgari“ skrifar: „Það mun senuilega ekki fara fram hjá neinum meðal hugsandi fólks, að-meðan Þjóðviljinn ham- ast gegn virðingarveröum og sjálfsögðúm tilraunum til stöðv- unar dýrtiðarflóðinu, og leggur mikla áherzlu á að reikna út hve kaup ýmissa stétta manna lækk- ar, rétt eins og menn viti ekki neitt um þetta, eða Skorti vit íil þess að rsikna það út og verði að láta Þjóðviljann gera þetta fyrir s'g, — þá ræða menn öll þessi mál sín í milli, og það má full- yrða að menn skilja hvað hér er verið að gera, og vilja gera sitt til að það heppnist. Og menn vita líka, að talsvert kemur 'í móti. Margt hefur þegar lækkað að miklum mun, sem stórmunar um á mannmörgum heimilum, svo sem barnaheimilum, og nefni óg þar til kjötið, mjólkina o. fl. Ef sanngirni réði — Ef sanngirni r-éði, er Þjóðvilja- menn birta útreikninga sína, þá reiknuðu þeir einnig út hve miklu verðlækkanir nema, þegar þær eru allar komnar til sögun.n- ar, en það birtast nú margar til- kynningar daglega, sem allar fjalla um lækkað verð. Það. eru ekki birtar tvídálka ramma- klausur um það í Þjóðviljanum. Það „passar ekki í kramið", held ur skal alið á sundrungunni. Það er vegna þess, að það er verið að skapa traust og festu, sem Þjóð- viljamönnum er svo illa við að ræða ur» verðlækkanirnar, en þar sem allt er í ólestri og fólkið óánægt geta þeir helzt gert sér vonir um pólitískan hagnað af þessari starfsemi sinni. Jafnvel þótt — Nú skulum við hugsa okkur, að Þjóðviljinn gerði einmitt þetta: Reiknaði nákvæmlega út kauplækkun og verðlækkun alla. En jafnvel þótt útkoman yröi sú, að kauplækkunin yrði eitthvað meiri en það, að verðlækkanir næðu til að vega þar upp á móti, þá hugsa þjóöhollir menn sem svo, að þeim bori að fórna ein- hverju og þeir gleðjast yfir að fá tækifæri til að gera það, af því að þeir treysta á það, að nú sé stefnt í rétta átt. En svo ber líka að líta á hvers virði það er, að aukið traust skapast og festa. Það verður ekki metið til pen- inga, hvorki fyrir rikið eða ein- staklingana. Menn eru reiðubúnir. Menn eru yfirleitt reiðubúnir til að fórna einhverju og gera það' með glöðu geði. Trúin á krónufjöldann er horfin, hún er ekki til lengur, og menn vilja hjálpa til að treysta gjaldmið- ilinn. En nienn ætlast líha til, að nú verði lækkað á öllimi sviðum, þar sem unnt er, og menn bíða enn frekari lækkana, ekki sízt hjá stofnunum, sem flestum íinnst, hvort sem rétt- mætt er eða rangt, að tíðum hafi gengið fulllangt í hækkunum, og nú spyrja menn til dæmis hvort ekki sé unnt að lækka ýms opin- ber gjöld, rafmagn og burðar- gjöld undir bréf innanlands < g utan. Þess er farinn að sjást vott ur, að einstaklingar, sem fyrir- tæki reka, og önnur fyrirtæl i, vilja stuðla að lækkun með því að gefa sjálfir eða sjálf gott for- dæmi. Að síðustu: Fólk í stéttar- félögum ættu að vara sig á þeirri aðfeið kommúunista, að smnla liði sínu á fundi til samþykkt.ir ályktana. Þeir, sem sjá og ski! ja nauðsyn þess, sem yerið er að gera, ættu að vera hér vel á verði. — Borgari."

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.