Vísir - 08.02.1960, Page 1
12
síður
R. árg.
Mánudaginn 8. febrúar 1960.
12
síður
31. tbl.
Frímerkjamáliil aiteias
á byrjunarstigi.
Grunur á að miklar birgðir hafi horfið
Argentínsk herskip og flugvélar
króa erlendan kafbát inni.
------------- Hans varð fyrst vart fyrir viku
suður af Ruenos Aires.
Enn virðist langt frá því að
öll kurl séu komin til grafar í
frímerkjamálinu svonefnda, og
er rannsókn málsins haldið
viðstöðulaust áfram.
Endurskoðun á gömlum
bngðum póstmálastjórnarinnar
hefur farið fram undanfarna
daga, og hefur Benedikt E.
Árnason stjórnarráðsfulltrúi
haft með hana að gera. Hafa
allar gamlar birgðir þegar
verið taldar, og skýrsla um þá
talningu send sakadómara.
Samkvæmt þessari skýrslu
leikur sterkur grunur á að tölu
vert magn af svokölluðum
,.Balbó“ merkjum vanti í birgð-
irnar, og eru allar líkur fyrir,
því að þessi merki hafi horfið
á svipaðan hátt og þau, sem
þegar er upplýst um. Rannsókn
á bókum póstmálastjórnarinn-
ar varðandi þessi merki, er
samt ekki lokið enn, þannig að
ekki er upplýst hve mikið magn
af þessum merkjum hefur horf-
ið á „eðlilegan“ hátt, en sá
möguleiki er fyrir hendi að ein-
hver hluti upplagsins hafi verið
látinn af hendi. Hér er þó um
svo mikið magn að ræða —
sem horfið hefur — að lítil lik-
indi eru fyrir því að það sé
eðlilegt. Þá hefur og komið í
ljós að einkennilega mikið
magn af þessum merkjum er á
markaðnum.
Venjan mun vera sú að um
4400 merki eru tekin frá af
hverri útgáfu, og er upplýst,
að 5900 merki voru tekin frá
af einnar-krónu merkjunum í
þessari seríu, 4600 af 5-krónu
merkjum og 4000 eintök af 10-
kr. merkjum. f þessar birgðir
mun nú vanta 300 seríur, og á
rannsókn eftir að leiða í ljós
hvernig þær hafa horfið.
Endurskoðun á þessum gömlu
birgðum mun ekki hafa farið
fram áður, og er þar af leið-
andi erfitt að átta sig á því,
hvenær þetta hvarf hefur átt
sér stað. Verðmæti þessara 300
horfnu sería mun nú vera hátt
á aðra milljón króna.
Hnúkaþeyr á
Austfjörðum
í nótt komst lojthitinn upp
í 16 stig á Dalatanga. Er það
mestur hiti, sein hér hefur orð-
ið í febrúar s.l. 25 ár, sagði veð-
urstofan í morgun.
Klukkan 9 í morgun hafði
kólnað um eina gráðu og var
búizt við því að veður færi
kólnandi þar sem annars staðar
á landinu. Á Vestfjörðum var
komið fi-ost í morgun.
Rússar keppa
vestan hafs.
Rússneskir bílar munu keppa
á bandarískum bílamarkaði
seinna á árinu.
Bandarískir bílasalar hafa
samið um innflutning á 10.000
rússneskum bílum á þessu og
næsta ári. Það verða Moskvitz,
sem keyptir verða.
Fregnir frá Argentínu herma,
að argentískum herskipum og
flugvélum liafi tekist að króa
inni erlendan kafbát á flóa suð-
ur af höfuðborginni.
Þykjá þetta óvenaleg tíðindi,
þar sem eins'dæmi má heita, að
tekist hafi að króa kafbát
þannig inni. Hann hefur verið
á snuðri við strendur á fríðar-
tima, en oft heíur kafbáta orð-
ið vart, út af Argentínuströnd-
um og víðar. Ekkert er látið
uppi varðandi neinn grun um
frá hvaða landi kafbátur þessi
sé, en hans varð vart í flóanum
fyrir viku, og síðan hafa flug-
vélar stöðugt verið þarna. á
sveimi og herskip verið á verði,
til þess að hindra hann í að
komast undan. Djúpsprengjum
hefur verið varpað til þess að
reyna að knýja hann upp á
yfirborðið.
Kafbáturinn
sagður laskaður.
í síðari fregnum segir, að
talsmaður flotans hafi neitað,
að láta hafa nokkuð eftir sér
en eftir öðrum heimildum að
dæma hefur kafbáturinn lask-
ast í árásum, sem gerðar hafa
verið á hann, en kunnugt er,
að flugbátur, sem hafði djúp-
sprengjur innanborðs tók þátt
í þeim. Þá hefur verið sagt, að
tundurduflum hafi verið lagt í
mynni Nuveo-flóa, þar sem
kafbáturinn er króaður inni.
Banaslys í Fossvogí
í bifreiðaárekstri.
SiglfírÖingar
fara í verið.
Siglufirði í gær.
Mikill fjöldi fólks frá Siglu-
firði hefur nú farið í atvinnu-
leit í verstöðvarnar syðra.
Atvinna er lítil í Siglufirði
sem stendur. Að vísu veiða bát-
arnir sæmilega þeir sem á ann-
að borð stunda sjóinn, en þeir
eru fáir og auk þess aðeins litlir
bátar. Togbátarnir eru enn
ekki farnir á veiðar, en fara
hvað úr hverju að búast á þær.
þær.
Togararnir hafa verið á
heimamiðum undanfarið og afl-
að illa. Er gert ráð fyrir að þeir
sigli með aflann, og fyrir bragð-
ið veita þeir 'litla atvinnu í
landi.
U Nu sigrar
glæsilega.
Allar líkur benda til, að úr-
slit í þingkosningunum í Burma
verði stórsigur fyrir U Nu.
Flokkur hans hefur fengið 57
þingsæti en ókunnugt er um
úrslit í 160 þingdæmum. Fulln-
aðarúrslit verða ekki kunn fyrr
en eftir viku í fyrsta lagi.
Flokkur U Nu’s gerði það að
stefnuatriði i kosningunum, að
Buddhatrú yrði viðurkennd
rikistrú.
Lest hrapar í Chile-f jöllum.
35 bíða bana, - yfir 50 meiðast.
Ægilegt járnbrautarslys var í Mið-Chile í gær. Járn- brautarlest hljóp af sporinu uppi í fjöllum og biðu a.m.k. 35 menn bara, en yfir 50 meiddust. Þetta gerðist bar sem kröpp beygja er á brautinni en snarbrött lilíð fyrir neð- an. Lestin var að flytja verkamenn úr koparnámu og fjölskyldur þeirra, en fólkið var í skemmtiferð til fjalla.
Barn lézt og fjórir aðrir
slösuðust.
Banaslys varð á Reykjanes-
braut síðdegis í gær við það að
tvær bifreiðar rákust á. Fjórir
aðrir slösuðust meira eða
minna.
Áreksturinn varð í brekkunni
sunnan við Fossvoginn á svæð-
Hví ærast þeir?
Hvað veldur hatri kommúnista og Framsóknar?
Aldrei hafa íslenzkir stjórnmála-
flokkar veriS eins sjúklega haturs-
fullir og kommúnistar og Framsókn-
armenn nú vegna væntanlegra við-
reisnaraðgerða ríkisstjórnarinnar. —
Menn spyrja að vonum, hvað valdi
þessu hatri flokkanna.
Spurningunni er auðsvarað:
★ Þessi flokkar óttast báðir að-
gerðirnar, því að þær geta skapað
þann heilbrigða grundvöll fyrir at-
vinnuvegina, sem vinstri stjórnin gat
ekki skapað.
★ Þessir flokkar meta hatur sitt á
stjórnarflokkunum — en fyrst og
fremst á Sjálfstæðisflokknum —
meira en þjóðarnauðsyn.
★ Þessir flokkar vita, að áhrif að-
gerðanna koma fljótt í Ijós, svo að
nú verður að bregða skjótt við, ef
auðið á að verða að hindra þau með
lamandi verkfallsskriðu.
★ Það, sem þessir flokkar vilja
sízt, er að gefa nokkum frest til að
láta aðgerðirnar sýna gildi sitt.
★ MESTA NAUÐSYN ÞEIRRA
ER AÐ RUGLA ÞJÚÐINA STRAX!
inu milli Álfhólsvegar og Ný-
býlavegar. Þar var Volks-
wagenbifreið P 384 á leið suður,
en R 587, sem er leigubifreið að
koma að sunnan og á leið til
Reykjavikur.
Erfitt er að gera sér grein
fyrir tildrögum slyssins, en svo
virðist þó sem leigubifreiðin
hafi haldið sig réttu megin á
veginum, en Volkswagenbif-
reiðin hinsvegar ekið skyndi-
lega inn á veginn rétt áður en
bílarnir mættust.
Bifreiðarstjórinn í leigubif-
reiðinni kvaðst hafa séð til ferð-
ar bílsins sem á móti kom, en
hann hafði tekið beygjuna inn
á veginn svo seint að árekstur
hafi verið óumflýjanlegur.
Áreksturinn varð mjög harð-
ur, enda munu báðir bílarnir
hafi verið á nokkuð mikilli ferð.
Við höggið brotnaði allur fram-
hluti Volkswagenbifreiðarinn-
ar, auk þess sem framrúðan
brotnaði við það að ökumaður-
inn og farþegi við hlið hans
skullu á hana, stýrishjólið
beyglaðist allt og sætin köstuð-
ust til. Virðist bíllinn í fljótu
bragði vera nær eyðilagður, en
leigubifreiðin skemmdist lika
mikið og voru þær báðar óöku-
hæfar á eftir.
Framh. á 11. síðu.