Vísir - 23.02.1962, Side 4

Vísir - 23.02.1962, Side 4
4 V í S I R Fpstudagur, 23. febmar lfljSg' Hið óbærilega ástand í Austur-Þýzkalandi Rætt vlð Peter Mudra, forseta stúderrta- samtakanna í Vestur - Berlín — Ég flúði frá Austur- Þýzkalandi, eftir uppreisn- ina 1953. Foreldrar mínir flúðu ári síðar. Mér var ekki óhætt eftir þátttöku í upp- reisninni. Faðir minn var prófessor í erfðafræði. Hon- um var óhætt meðan hann sagði ekki álit sitt á fals- kenningum Lysenkos. En þegar hann stóðst ekki mátið og sagði álit sitt á kenning- um hans umbúðalaust í fyrirlestri í háskólanum þar sem hann kenndi, þá var kominn tími fyrir hann að forða sér líka. Vinur hans í innanríkisráðuneytinu aðr varaði hann. Eitthvað á þessa leið komst ungur lögfræðistúdent Peter Mudra, forseti stúd- entasamtakanna í Vestur- Berlín, að orði þegar ég ræddi við hann, fyrst yfir kaffibolla á Hótel Borg og síðar á herbergi hans á City- hóteli í fyrradag. Mudra, sem er forseti stúdentasam- takanna í Vestur-Berlín átti leið um ísland á leið til Bandaríkjanna, en þangað er honum og félaga hans Franz- Josef Kossendy boðið í fyr- irlestraferðalag á vegum bandarísku stúdentasamtak- anna. Mudra verður farinn af landi brott, þegar þetta birtist, eftir þriggja daga dvöl á vegum Stúdentaráðs Háskóla íslands. Hér hélt hann stuttan fyrirlestur í háskólanum um Berlínar- málið. Vonirnar brugðust. Hann átti heima þar í landi frá stríðslokum, er annars fæddur í Ungverja- landi, en varð að hrökklast þaðan, eins og fleiri Þjóð- verjar, þegar Rússar tóku landið í heimsstyrjöldinni. Foreldrar hans hugðust skapa sér nýtt líf í Austur- Þýzkalandi. En vonir þeirra brugðust og enduðu í flótta. Mudra er ómyrkur í máli, þegar hann leysir úr spurn- ingum mínum um ástandið í Austur-Þýzkalandi. — Matvælaskorturinn í Austur-Þýzkalandi er orðinn óbærilegur síðan kreppan í landbúnaðinum byrjaði með innlimun bændanna í sam- yrkjuskipulagið. Og stjórnin ræður ekki við kreppuna. Verkamennirnir mögla, gera skyndiverkföll og senda mót- mælabréf til ríkisstjórnar- innar, Það ber þann árangur að foringjar þeirra eru hand- teknir og varpað í fangelsi. Stúdentarnir eru þrúgaðir af skipulagðri skoðanakúgun og hleraðir, og þeir óánægðu reknir úr háskólunum, send- ir í kolanámur eða dregnir fyrir dómstólana. Prófessox-- arnir flýja í hrönnum. Við af þeim taka menn, sem hafa ekki annað til að bera en undirgefni við ríkisvaldið. Þá skortir nauðsynlega menntun og virðingu fyrir vísindunum, sem þeir eiga að þjóna. Læknaskorturinn er nú orðinn svo mikill að borgir með allt að 100 þús- und íbúum eru læknislausar. Fólkið kvelst í þeirri andlegu og líkamlegu þolraun, sem lífið undir harðstjórn komm- únistanna raunverulega er. Tortryggnin. Við skortinn og ófrelsið bætist tortryggnin gagnvart náunganum, jafnvel nánustu svona lýsingum og sagt að þær væru komnar frá of- stækisfullum andstæðingum kommúnista. En ef við spyrj- um menn eins og Peter Mudra nánar út í sakirnar þá verður okkur betur ljóst inum í landinu. Það var nokki'um dögum áður en byrjað var að reisa múrinn fræga, 13. ágúst. Orðum sín- um til áherzlu efndu þeir til skyndiverkfalla í verksmiðj- unni. Ulbricht heimsótti Peter Mudra og félagi Hans Franz-Josef Kossendy (Ljósm. Vísis I.M.) að þarna er um blákaldan, hryllilegan raúnveruleika að ræða. Einstök dæmi sanna okkur hvernig minnihlutinn kúgar meirihlutann. Mudra sagði frá óánægju verka- mannanna í einu mikilvæg- asta stáliðjuvei’inu í Austur- Þýzkalandi, stálverksmiðj- vinum, ættingjum og ná- grönnum. Enginn veit annars hug með fullri vissu. Um gagnkvæman, óttalausan trúnað er ekki að ræða. Það hörmulega við þessar stað- reyndir er að þær eru af völdum hins litla og eitil- harða hóps manna, sem trúa blint á kommúnismann. Meirihlutinn má sín einskis, meðan réttaröryggið er ekki til. Óánægðir verkamenn. Við höfum oft brosað að unum í Henningsdorf. Þær eru í námunda við Berlín. Árið 1953, þegar uppreisnin 17. júní, það ár, var í upp- siglingu fjölmenntu þessir verkamenn til Austur-Ber- línar til að mótmæla stefnu ríkisstjórnarinnar. Á síðasta ári tóku þeir aftur á si'g rögg, þrátt fyrir áhættuna og óttann við ofbeldislegt svar stjórnarinnar. Þeir sendu forsætisráðherra lands ins, Ulbricht, bréf persónu- lega þar þeir mótmæltu meðal annars matvælaskort- verksmiðjuna og í'æddi við verkamennina á óformlegum fundum. Orð hans fengu eng- an hljómgrunn og verka- mennirnir æptu að honum. Það sýnir með öðru hvað á- standið var talið alvarlegt að yfirmaður rússneska hersins í Austur-Þýzkalandi sendi sjálfur menn til að rannsaka hverjir það voru, sem stóðu fyrir mótmælaað- gerðunum. Austur-þýzku lög- reglunni var ekki treyst fyr- ir verkinu. Árangurinn var sá að nokkrir af beztu for- ingjum verkamannanna voru handteknir og dregnir fyrir dómstólana. Það var nóttina fyrir 13. ágúst, nokkrum klukkustundum áður en byrj- að vgr að reisa múrinn kring- um A.-Berlín. Það var ekki að vita, nema verkamennirn- ir í Henningsdorf yrðu jafn skeleggir og 17. ijúní 1953. Samtímis voru 200 skrið- drekar sendir á vettvang. Mótmælaraddirnar þögnuðu. Hervaldið er öflugt vopn ein- ræðisstjórnarinnar. Önnur mynd skoðanakúgunarinnar birtist í háskólunum. Um eitt skeið voru kenn- ingar rússneka vísinda- mannsins Lysenko um ýmis- legt í erfðafræðinni viður- kenndur sannleikur í komm- únistaríkjunum þótt heiðar- legir vísindamenn hefðu alla tíð talið þær byggðar á fölskum forsendum. Þær hentuðu kommúnistum í bar- áttu þeirra og það nægði til að réttlæta þessar villukenn- ingar. En þegar Stalin dó breyttust viðhorfin. Lysenko var yfirlýstur svikari, en slapp þó með skinnið. Aðrir visindamenn urðu meðan skoðanir hans voru enn þá viðurkenndar að prédika þær eins og hverja aðra vísinda- lega staðreynd. Meðal þeirra var faðir Peter Mudra sem var prófessor í erfðafræði við einn háskólann í Austur- Þýzkalandi. En þegar hann gafst upp á ósannindunum og sagði skoðanir sínar á kenningum Lysenko um- búðalaust og fordæmdi þær, var hann í lífshættu. Honum var það þó ekki fullkomlega ljóst, vegna þess að hann var í miklum metum meðal starfsbræðra sinna. Það var svo vinur hans í innan- ríkisráðuneytinu austur- þýzka, sem aðvaraði hann gegn yfirvofandi handtöku og benti honum á að flýja. — Fyrir hvað hefðu þeir getað dæmt hann? spurði ég. — Þeir finna ýmislegt til. Verkamennirnir í Hennings- dorf voru sakaðir um njósnir og sitthvað fleira. Ákæru- atriðin eru oft algjörlega upplogin og ekki í neinu samhengi við það sem ,,sak- borningar" hafa raunveru- lega gert. Kannske hefði hann verið dæmdur fyrir landráð. Upp úr þessu snerust sam- pæðurnar um stúdenta í Austur-Þýzkalandi. Mudra sagði að þeim hefði ekkert fjölgað síðustu 3—4 árin. Fjöldi þeirra hefði staðið í sta?5. Stjórnin hefur reynt mjög á þolrif þeirra með því að draga þá í herinn. Til skamms tíma var ekki her- Frh. á 10 síðu. SI-SLETT POPLIN k(NO-IRON) MINERVAc/£**«fe>* STRAUNING ÓÞÖRF

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.