Tölvumál - 01.02.1987, Qupperneq 15
Missi stjórnarmaður seturétt í félaginu á kjörtimabilinu skjal
varainaður taka sæti hans til næsta aðalfundar, en þá skal kjósa
i embættið til loka kjörtimabils.
Nú er stjórnarmaður kosinn í annað starf i stjórninni en hann
áður hafði, og skal þá kjósa nýjan mann í hans stað, út kjör-
tímabilið.
Tillögur um stjórnarmenn skulu sendar stjórninni eigi siðar en
þrem dögum fyrir aðalfund.
6. gr ■
Stjórnin skipar starfsnefndir eftir þvi sem hún telur ástæðu til
7 . gr.
Stjórnin kemur fram fyrir hönd félagsins, jafnt á innlendum sem
erlendum vettvangi, gagnvart stjórnarvöldum og öðrum félags-
samtökum, og sker úr um þau atriði varðandi störf eða málefni
félagsins, sem ekki eru ákveðin i félagssamþykkt eða með at-
kvæðagreiðslu á fundum. Ef atkvæði falla jöfn á stjórnarfundum,
ræður atkvæði formanns úrslitum.
Stjórnin velur, innan sinna vébanda, þann eða þá, er hafa leyfi
til að skuldbinda félagið og ávisa greiðslum úr sjóði þess.
Stjórnin skal færa og gefa út félagaskrá, og annast innheimtu
félagsgj alda.
8- qr.
Stjórnin skal boða til funda, þegar hún telur þess þörf, eða ef
1/5 hluti félagsmanna óskar þess.
Aðalfund skal halda fyrir lok janúarmánaðar ár hvert, og skal
boða hann með 14 daga fyrirvara.
9. gr.
Tillögur um breytingar á félagssamþykkt skal senda stjórninni
fyrir 1. nóvember, og verða þær þá lagðar fyrir næsta aðalfund.
Breyting á félagssamþykkt öðlast ekki gildi, nema hún sé
samþykkt með minnst 2/3 hlutum atkvæða fundarmanna, á löglega
boðuðum aðalfundi.
(Félagssamþykkt þessi var upphaflega samþykkt á stofnfundi
félagsins, sem haldinn var 6. april 1968. Smávægilegar
breyt.ingar voru bornar upp og samþykktar á aðalfundi 1985. Þær
breytingar fólu i sér að aðalfundur var færður fram i janúar en
hafði verið i marsmánuði áður.)
15