Tölvumál - 01.02.1988, Blaðsíða 9
Á L I T A M Á L
Stefán Ingólfsson:
METNAÐARLAUS HÁSKÓLI
Einu sinni átti Háskóli íslands öflugustu tölvu á landinu. Hún
nefndist IBM 1620. Um miðjan sjöunda áratuginn skipaði hún Reikni-
stofnun Háskólans í fremstu röð hér á landi. Aðilar sem þurftu að
leysa erfið reikniverkefni leituðu til Háskólans með vandamál sín. Þó
að gamla IBM tölvan væri ekki stórfengleg á okkar mælikvarða
skapaði hún engu að síður Háskólanum leiðandi stöðu á sviði erfiðra
reikniverkefna. Mönnum þótti á þessum tíma eðlilegt að Háskólinn
væri í fararbroddi á þessu sviði.
Reiknistofnun Háskólans rekur nú fjórar litlar "deildartölvur" og
slatta af "heimilistölvum". Þessar tölvur eru notaðar til að kenna
öllum tölvufræðinemum í Háskólanum, verkfræðingum, viðskiptafræð-
ingum og öðrum sem ljúka námi frá Háskólanum. Þar að auki á
tölvubúnaðurinn að nýtast stofnunum Háskólans og notast við
sjálfstæðar rannsóknir Reiknistofnunar sjálfrar. Háskóli íslands er
búinn að glata því forystuhlutverki sem hann hafði fyrir tveimur
áratugum. Forystumenn skólans virðast þó ekki hafa miklar áhyggjur
af þessari þróun. Ekki eru uppi áform um að snúa henni við.
Það ætti að vera sjálfsagður metnaður Háskólans og helstu rannsókna-
stofnana í landinu að hafa yfir að ráða einni öflugri tölvusamstæðu til
að nota við flókna og tímafreka útreikninga. Eðlilegt væri að Reikni-
stofnun Háskólans annaðist þessa tölvu, skipuleggði verkefni fyrir
hana, annaðist fræðslu, rannsóknir og kerfishönnun. Á undanförnum
árum hefur verð á hraðvirkum "reiknitölvum" lækkað og framboð hefur
aukist. Reiknistofnun Háskólans ætti með stuðningi annarra aðila að
geta keypt minnstu gerð af þessum öflugu tölvum eða notaða tölvu ef
ekki vill betur. Til þess að endar nái saman ætti að nægja að
ríkiskerfið, Seðlabankinn, efnahagsstofnanir og helstu rannsóknar-
stofnanir landsins færi erfiðustu reikniverkefni sín til Reiknistofn-
unar Háskólans.
Margir áhugamenn um upplýsingatækni eiga sér þann draum að
íslendingar hasli sér völl á svið upplýsingatækni á alþjóðavettvangi.
Þjóð sem ekki hefur metnað til að kaupa sæmilega hraðvirka tölvu
fyrir æðstu menntastofnun landsins getur ekki gert sér vonir um að
útskrifa tölvufræðinga sem jafnast á við fagmenn þeirra þjóða sem
- 9 -