Tölvumál - 01.02.1989, Blaðsíða 10
NORDDATA 89
HÓPFERÐ TIL KAUPMANNAHAFNAR
l<0benhavn 19-22juni 1989
Eins og fram kom í TÖLVU-
MÁLUM í október s.l., verður
ráðstefnan NordDATA 89 haldin
í danska Tækniháskólanum,
dagana 19. - 22. júní.
Ferðaskrifstofan ÚRVAL hefur,
í samráði við Skýrslutæknifélagið,
skipulagt hópferð til Kaupmanna-
hafnar í tilefni ráðstefnunnar.
Brottfarardagur er laugardagurinn
17. júní.
Verð (m.v. gengi 16. jan. s.l.):
Kr. 44.700 pr. mann miðað við gistingu í 2ja manna herbergi
kr. 52.760 pr. mann miðað við gistingu í eins manns herbergi
Innifalið er flug báðar leiðir og gisting með morgunverði í 6 nætur
(17. - 23. júní) á Hótel Palace, við Ráðhústorg.
Þar sem mikil aðsókn er að hótelum
í miðborg Kaupmannahafnar á þessum
tíma, er væntanlegum þátttakendum
bent á að panta sem allra fyrst.
Ef óskað er eftir að leigja bíl eða
sumarhús er starfsfólk ÚRVALS reiðu-
búið að aðstoða.
Mögulegt er að framlengja dvöl í allt
að 30 daga, en heimferð verður að
ákveða fyrir brottför.
Allar nánari upplýsingar gefur Pálína
Kristinsdóttir hjá Ferðaskrifstofunni
ÚRVALI í síma 28522.
10 / TÖLVUMÁL
PALACE
HOTEL
NordDATA