Tölvumál - 01.06.1989, Blaðsíða 15
Tölvumál júní 1989
Hé r á eftir verður fjallað í stuttu
máli um gagnasamskipti milli tölva,
"EDI", og síðan verður því stuttlega
lýst, hvemig gagnasamskipti era
framkvæmd. Skoðuð er þróun
þessara mála hér og erlendis og
kostum og göllum þessarar tækni
lýst.
Skilgreining
EDI er sending á ákveðnum
(stöðluðum) viðskiptaupplýsingum
á milli tölva viðskiptaaðila. Úttak
frá tölvu eins aðila fer rakleiðis inn í
tölvu hins, þ.e. notendaforrit talar
við annað notendaforrit. Viðskipta-
aðilar geta t.d. verið flutningsaðilar,
bankar og opinberir aðilar. Þessi
samskipti geta verið ígildi skriflegs
samnings á pappír.
Með EDI geta fyrirtæki fengið upp-
lýsingar úr tölvum viðskiptaaðila
síns eða opinberra aðila og sent
þangað skilaboð og upplýsingar.
Þessar upplýsingar gætu t.d. verið
skylduskil á skýrslum til hins opin-
bera, s.s. skil á söluskatti eða
upplýsingar til h'feyrissjóða.
Saga
Uppruna EDI má rekja að nokkra
leyti til vinnu sem framkvæmd var á
árunum 1950-1960 við samræmingu
á skjölum.
Þegar tölvunet komu til sögunnar
fóra menn að sjá möguleika á því að
senda viðskiptaupplýsingar á milli
tölva. Upp úr 1970 fóra fyrstu EDI
verkefnin í gang. í dag era stærstu
EDI kerfin innanhússkerfi stórra
alþjóðafyrirtækja. Hér á landi eru
Flugleiðir þátttakendur í EDI
samstarfi erlendra flugfélaga (SITA)
og bankamir áforma að taka upp
SWIFT kerfíð, sem er alþjóðlegt net
yfir 2000 bankastofnana.
Hvernig er EDI notað?
Þau fyrirtæki sem ætla að taka upp
EDI samskipti þurfa að huga að
eftirfarandi:
• Gera þarf samning um lagaleg
atriði framkvæmdarinnar
• Fyrirtækið þarf að útvega sér
viðeigandi hug- og vélbúnað
• Gera þarf ráðstafanir til þess að
EDI komist í vinnugang fyrir-
tækisins.
Hagræðing innanhúss á vinnugangi
og öllum boðleiðum sem snerta
þessi mál er mikilvæg. Hafa þarf
samráð við alla starfsmenn og
deildir í fyrirtækinu sem þessi mál
snerta. Einnig er nauðsynlegt að
utanhússaðilar, s.s. skatta- og toll-
yfirvöld, endurskoðandi og lögfræð-
ingur fyrirtækisins, séu hafðir með í
ráðum, til þess að fá fulla nýtingu á
þessari tækni og komast hjá hugsan-
legum vandamálum.
Vlnnugangur
Mikilvægasta atriðið varðandi hag-
nýtingu á EDI er kallað "að loka
hringnum". Þar er átt við eftir-
leikinn, þegar fyrirtæki hefur tekið
upp EDI tækni og búið er að þjálfa
starfsfólk, koma upp búnaði og
ganga frá tengingum.
Þá er nauðsynlegt að samið sé við
sem flesta af þeim aðilum sem
fyrirtækið hefur viðskipti við og að
þeir taki einnig upp EDI. Með því
móti gæti megnið af pappírsmeð-
höndlun fyrirtækisins útávið verið
afgreitt milli tölvukerfa, það er
skjalalaus viðskipti við önnur
fyrirtæki.
Hægt væri t.d. að fá fyrirspumir inn
til fyrirtækisins og svara þeim,
senda út pantanir, fá reikninga
vegna pantana, fá farmskjöl frá
flutningsaðilum, senda farmupp-
lýsingar til tolls ásamt tollskýrslum,
fá tollskýrslur afgreiddar, greiða
tollskýrslur og greiða reikninga.
Hvað er
EDI ?
Holberg Másson,
framkvæmdastjóri
ísnets hf.
Grein byggð á erindi sem flutt var á
ráðstefnu Skýrslutæknifélags islands,
Hótel Sögu 17.maí 1989.
Viðskiptaaðilar geta t.d.
verið flutningsaðilar,
bankar og opinberir aðilar.
Þessi samskipti geta verið
ígildi skriflegs samnings á
pappír.
15