Tölvumál - 01.06.1989, Blaðsíða 19

Tölvumál - 01.06.1989, Blaðsíða 19
Tölvumál júní 1989 (domairi) menntastofnana í Banda- ríkjunum. Vilji viðtakandinn í Stanford svara, sendir hann einfald- lega póst til nnafn@rhi.hi.is, þar sem nnafn er nú neteinkenni send- andans hjá RHÍ, is er íslenska net- svæðið, hi er Háskóli íslands og rhi er Reiknistofnun. Sami búnaður er að sjálfsögðu notaður við póstsend- ingar til notenda innan stofnana og fyrirtækja (og má þá einfaldlega sleppa svæðisnetfangi stofnunar, og nota eingöngu neteinkenni við- takanda). Almennt er notkun póstkerfisins mjög einföld og tölvupóstur er kom- inn á áfangastað innan nokkurra klukkustunda. Tölvuráöstefnur Usenet er alþjóðlegt ráðstefnukerfi þar sem menn skiptast á skoðunum um margvísleg málefni, koma á framfæri fféttnæmu efni og dreifa hugbúnaði. Þar sem umfang upp- lýsinga á Usenet á hverjum tíma er mikið (gróflega áætlaður lesenda- fjöldi er um 200.000) velja lesendur þær ráðstefnur sem þeir vilja fylgjast með og sjá ekki annað. Usenet er skipulagt þannig að ráðstefnum er gróflega skipt í nokkur áhugasvið og síðan er fínni skipting í undirráðstefnur innan hvers sviðs. Til fslands koma um 350 ráðstefnur, en á netinu í heild eru mun fleiri. Innan hverrar stofnunar eða fyrir- tækis eru einnig venjulega settar upp ráðstefnur með takmarkaðri dreifingu (fara ekki út af vélum viðkomandi aðila). Einnig eru settar upp ráðstefnur með annars konar takmörkunum á dreifingu (aðallega landfræðilegri). Af aðilum tengdum íslenska Unix-netinu eru átta áskrifendur að Usenet (þar á meðal RHÍ, Raunvísindastofnun, Haf- rannsóknarstofnun og Orkustofnun og aðrir eru í takmarkaðri áskrift). Ráðstefnum er almennt skipt í tvo flokka, opnar og lokaðar ráðstefnur. í opnar ráðstefnur má hver sem er skrifa greinar og taka þátt í umræð- um. Greinar og svör sem beint er inn í lokaðar ráðstefnur fara hins vegar í gegnum nokkurs konar rit- skoðun. Einn aðili tekur þá að sér að sía það sem inn í slíkar ráðstefnur er sent og sér hugbúnaðurinn á hverjum stað um að senda þessum aðila greinamar í pósti. Hver sem er getur aftur á móti lesið slxkar lokað- ar ráðstefnur. Useneí er alþjóðlegt ráðslefnukerfi þar sem menn skiptast á skoðunum um margvísleg málefni, koma á framfœri fréttnœmu efni og dreifa hugbúnaði. Helstu ráðstefnuflokkamir á Usenet era EUNET ráðstefnur sem er ein- ungis dreift innan Evrópu og ein- skorðast umræðumar við málefni er snerta fólk og atburði í Evrópu. Nokkur fjöldi undirráðstefna era í þessum flokki, um ýmis mál, allt frá dreifingu hugbúnaðar til umræðna um evrópsk stjómmál. COMP ráðstefnur era meginhluti Usenet. Þær fjalla um efni sem teng- ist tölvum og tölvunotkun og er dreift um allan heim. Á sumum þessara ráðstefna er dreift miklu magni hugbúnaðar fyrir hinar ýmsu tegundir véla. SCI ráðstefnur fjalla um ýmsar greinar raunvísinda og læknisfræða. Undirráðstefnur fjalla um stjömu- fræði, eðlisfræði, efnafræði, ýmsar greinar stærðfræða, geimvísindi og margt fleira. Á SOC ráðstefnum era rædd menningar- og félagsmál ýmissa landa, landsvæða og þjóðarbrota. Dæmi um undirflokka era ráðstefn- ur um málefni Afríku og Kína. Þessar ráðstefnur koma ekki til íslands. REC ráðstefnur era ýmsar afþreyingarráðstefnur. Skiptast í flokka um alls konar spil og leiki, um bókmenntir og tónlist. Flestar þessara ráðstefna koma ekki til Evrópu og þar með ekki til íslands. Til íslands koma um 350 ráðstefnur og innan hverrar stofnunar eða fyrirtækis eru einnig venjulega settar upp ráðstefnur með takmarkaðri dreifingu. USENET verða ekki gerð tæmandi skil í stuttu máli, en handbækur um notkun kerfísins og nánari upplýs- ingar má fá hjá Reiknistofnun. ■ 19

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.