Vísir - 16.06.1962, Síða 6
VISIR
Laugardagur 16. júní 1962.
stólgrindarhúsa
ryður sér til rúms
Þær fréttir berast frá Seyðisfirði
að mikil hætta stafi nú af skriðu-
föllum vegna mikillar úrkomu.
Þessar fréttir beina athyglinni
að hinni nýju síldarverksmiðju
eyítra, því hún er í mestri hættu
Verksmiðjuhús þetta er fyrsta
stálgrindarhúsið sem reist er hér
á Iandi, og hefur bygging þess tek-
ið ótrúlegan stuttan tima, eða um
einn og hálfan mánuð.
Samkvæmt upplýsingum frá
Gísla Halldórssyni verkfræðingi
ryður byggingarform þetta sér
mjög til rúms í Evrópu. Vinnan
við uppsetningu stálgrindarhúsa
gengur hratt fyrir sig og bygg-
ingarefnið allt er mjög auðvelt í
meðförum. Er það fyrst og fremst
því að þakka hversu fljótt bygging
síldarverksmiðjunnar á Seyðisfirði
hefur gengið fyrir sig.
Einnig má þakka þeirri skjótu
afgreiðslu sem verið hefur á öllu
byggingarefni frá því fyrirtæki
sem skipt er við. Heitir það Cose-
ley Building Ltd., og er stærsta
firma sinnar tegundar í Evrópu.
Hefur það á 12 árum byggt yfir
40 millj. ferfet. Er þar aðallega um
að ræða geymslur, verksmiðjur og
önnur þau hús sem stórir salir
eru I.
Síldarverksmiðjan á Seyðisfirði
er 9240 metrar að rúmmáli, og
sþennivídd hússins 36 metrar.
Hefur það vakið athygli eystra
hversu vel byggingin hefur gengið,
og almenn ánægja er með hana.
Mun verksmiðjan að mestu vera
tilbúin til notkunar.
Gísli Halldórsson tjáði okkur að
auk -ess, sem framkvæmdir allar
væru hagkvæmari en gengur, væri
kostnaður vel samkeppnishæfur.
Eru miklar fyrirspurnir um stál-
grindarhús þessi og áhugi mikill.
Brezkum fyrirlesara, Albert
Lodge, hefur verið vísað úr Iandi
í Portúgal. Hann hafði verið nær-
staddur, er stúdentar mótmæltu
frelsisskerðingu þeirri, sem þeir
eiga við að búa af völdum ein-
ræðisstjórnar dr. Salazars
£ Starfsmaður við sendiráð Frakka
í Prag hefir verið tekin fastur
fyrir að njósna — fyrir Tékka.
Náðu þeir þannig tangarhaldi á
manni þessum, að þeir buðust
til að greiða sjúkrahúsreikninga
hans vegna konu hans, ef hann
afhenti tiltekin skjöl. — Maður
þessi situr nú i fangelsi í Paris.
Brottfararstoðir S.V.R.
17. júaí eftir kl. 13.
í Tryggvagötu gengt Esso-portinu fyrir leiðirnar:
1 og 2.
Á Hverfisgötu austan Ingólfsstrætis fyrir leiðimar:
3, 4, 6, 7, 8, 9 og 12.
Á Kalkofnsvegi fyrir leiðirnar: 13, 14, 15, 16, 17, 18,
21 og 23.
Við Fríkirkjuna fyrir leiðirnar: 5, 10, 11, 19, 20 og 24.
17. júoí
17. júní
TIVOLI
Kl. 5 skemmtiatriði 1. Þáttur úr Manni og y
konu. Valur Gíslason Baldvin Halldórsson
Bessi Bjarnason og Klemens Jónsson.
2. Gamanþáttur Árni Tryggvason og Bessi
Bjamason.
TfiVOLf
TÍVOLÍ
FISKVINNSLUSTÖÐVAR
Nýjung UNIWELD Nýjung
Efni sem bindur nýja steinsteypu örugglega við gamla
og myndar jafnframt sterka vatnsþétta himnu á milli
laganna.
UNIWELD er nauðsynlegt til viðhalds og viðgerðar
á gólfum i fiskvinnslustöðvum, jafnt hoium og ójöfn-
um, sem heilum gólfum.
Með UNIWELD þarf aðeins örþunnt steypulag til að
gera gömul, slitin gólf sem ný.
Nánari Upplýsingar
PC^ikulósson
Vesturgötu 39 — Sími 20110.
DAGSKRÁ káfiðuhaldanna 17.júní 1962
l. DAGSKRÁIN HEFST:
Kl. 10.00 Samhljómur kirkjuklukkna í Reykjavík.
Kl. 10.15 Forseti borgarstjórnar leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði
Jóns Sigurðssonar. Karlakórinn Fóstbræður syngur: „Sjá roðann á
hnjúkunum háu“. Stjórnandi Hallur Þorleifsson.
II SKRÚÐGÖNGUR:
Kl. 13.00 Skrúðgöngur að Austurvelli hefjast frá þremur stöðum í borginni.
Frá Melaskólanum verður gengið um Furumel, Hringbraut, Skothús-
veg, Tjarnargötu og Kirkjustræti. Lúðrasveit Reykjavíkur og lúðra-
sveit barnaskóla Reykjavíkur leika. Stjórnandi Paul Pampichler.
Frá Skólavörðutorgi verður gengið um Njarðargötu, Laufásveg, Skot-
húsveg, Fríkirkjuveg, Lækjargötu og Skólabrú. Lúðrasveitin Svanur
cg lúðrasveit barnaskóla Reykjavíkur leika. Stjórnendur: Jón G. Þór-
arinsson og Karl Ó Runólfsson.
Frá Hlemmi verður gengið um Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti
og Pósthússtræti. Lúðrasveit verkalýðsins leikur. Stjórnandi: Björn
Guðjónsson.
III. HÁTIÐAHÖLDIN VIÐ AUSTURVÖLL:
Kl. 13.40 Hátíðin sett af formanni Þjóðhátíðamefndar, Eiriki Ásgeirssyni. —
Gengið í kirkju.
Ki. 13.45 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Prédikun: Séra Garðar Svavarsson.
Einsöngur: Frú Hanna Bjarnadóttir. Organleikari Dr. Páll ísólfsson,
tónskáld. Dómkórinn syngur. Þessir sálmar verða sungnir: 664 Upp
þúsund ára þjóð (vers 1, 3, 4, 5 og 6)... 671 Beyg kné þín, fólk vors
föðurlands ... 413 Vor Guð er borg á bjargi traust...
Kl. 14.15 Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, leggur blómsveig frá ís-
lenzku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. Allir viðstaddir
syngja þjóðsönginn með undirleik lúðrasveitanna. Stjórnandi: Karl
O. Runólfsson.
Kl. 11.25 Forsætisráðherra, Ólafur Thors, flytur ræðu af svölum Alþingishúss-
ins. „ísland ögrum skorið" sungið og leikið. Stjórnandi Paul Pamp-
ichler.
Kl. 14.40 Ávarp fjallkonunnar af svölum Alþingishússins. „Yfir voru ættar-
landi“ sungið og leikið. Stjórnandi Karl O. Runólfsson.
IV. BARNASKEMMTUN Á ARNARHÓLI:
Stjómandi: Klemenz Jónsson.
Kl. 15.00 Jón Pálsson, tómstundaráðunautur, ávarpar bömin. Lúðrasveit drengja
leikur undir stjórn Karls O. Runólfssonar. Bamakór úr Hlíðarskóla.
Stjórnandi: Guðrún Þorsteinsdóttir. Leikþáttur. Leikendur: Árni
Tryggvason og Bessi Bjamason. Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Harm-
onikuleikur (5 drengir). Stjórnandi Karl Jónatansson. Hljóðfæraleik-
ur barna úr Breiðagerðisskóla. Stjórnándi: Hannes Flosason. —
Þáttur úr Manni og konu. Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Leikendur:
Baldvin Halldórsson, Bessi Bjarnason, Valur Gíslason og Klemenz
Jónsson. Lúðrasveit drengja leikur undir stjórn Paul Pampichler.
Leiksýning drengja úr Melaskóla. Stjórnandi: Hannes Ingibergsson.
V. HLJÓMLEIKAR A AUSTURVELLI:
Kl. 15.30 l úðrasveit Reykjavíkur leikur. Stjórnandi Paul Pampichler.
VI. A IAUGARDALSVELLINUM:
Kl. 16.30 Lúðrasveitin Svanur leikur. Stjórnandi Jón G. Þórarinsson.
Kl. 17.00 Ávarp: Gísli Halldórsson, form. I.B.R. Skrúðganga íþróttamanna og
skáta. — Glímusýning undir stjórn Kjartans J. Bergmanns. — Kvenna-
flokkur úr Ármanni sýnir fimleika undir stjórn Þóreyjar Guðmunds-
dóttur. — Drengjaflokkur úr Í.R. ‘sýnii fimleika undir stjórn Birgis
Guðjónssonar. — Karlaflokkur úr Ármanni sýnir undir stjórn Vig-
fúsar Guðbrandssonar. — Karlaflokkur úr K.R. sýnir undir stjórn
Benedikts Jakobssonar. — Keppni i frjálsum íþróttum: 100 m hlaup
— 400 m hlaup — 1500 m hlaup — 1000 m boðhlaup — 100 m hlaup
sveina — þrístökk — stangarstökk — kúluvarp — kringlukast -
langstökk.
í frjálsum íþróttum er keppt um Forsetabikarinn, sem forseti Islands,
' hr. Ásgeir Ásgeirsson, gaf 17. júní 1954.
Leikstjóri: Jens Guðbjörnsson. Þulir: Atli Steinarson og Örn Eiðsson.
VII. KVÖLDVAKA Á ARNARHÓLI:
Kl. 20.00 Lúðrasveit Reykjavíkur. Stjórnandi: Paul Pampichler.
Kl. 20.20 Kvöldvakan sett: Olafur Jónsson, ritari Þjóðhátíðarnefndar. Lúðra-
sveitin Ieikur: „Hvað er svo glatt".
Kl, 20.25 Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, flytur ræðu. — Lúðrasveit Reykja-
víkur leikuj Reykjavíkurmars eftn Karl O. Runólfsson. Höf. stjórnar.
Kl. 20.40 Karlakórinn Fóstbræður syngur. Stjórnandi: Ragnar Björnsson Und-
irleikari. Carl Billich.
Kl. 20.55 „Við Breiðafjörð", atriði úr íslandsklukkunni, eftir Halldór Kiljan
Laxness. Flytjendui Helga Valtýsdóttir og Rúrik Haraldsson.
Kl. 21.10 Einsöngur: Erlingur Vigfússon. Undirleikari: Skúli Halldórsson, tónsk.
Kl. ?1 25 .Glöggt er gests augað“. (Þáttur um daginn og veginn) Róbert Arn-
finnsson 'e.ikan. flytur
Kl. 21.40 , Hugað að horfnum dyggðum", leikþáttur eftir Guðmund Sigurðsson.
Leikendur- Flosi Ólafsson og Ævai Kvaran.
VIII. DANSAÐ TIL KL. 2 EFTIR MIÐNÆTTÍ:
Kynnir: Guðmundur Jónsson óperusöngvari.
Að kvöldvökunni lokinni verðui aansað á eftirtöldum stöðum: Á
Lækjartorgi: Hljomsveit Svavars Gests. Einsöngvarar: Helena Eyj-
ólfsdóttir og Ragnar Bjarnason. A Aðalstræti: Lúdó-sextettinn. Ein-
söngvari: Stefán Jónsson. Á l.ækjargötu: Hljómsveit Guðmundar
Finnbjörnssonar Einsöngvan: Hulda Fmilsdóttir. Hljómsveit Bjöms
R. Einarssonar leikur til skiptis á öllum dansstöðunum.
Kl. 02.00 Dagskrárlok Hátíðahöldunum slitið frá Lækjartorgi.