Vísir - 21.06.1962, Page 1
| FORN
BRUNNUR
Um þessar mundir stendur
yfir jarðvegs rannsóknir á bíla-
stæðinu við Aðalstræti 14, undir
stjórn þeirra Porkels Grímsson
ar og Þórleifs Einarssonar. Við
rannsóknir þessar nota þeir
kjarnabor og um kaffileytið f
gærdag þegar þeir ætluðu að
fara að bora á bílastæðinu rák-
ust þeir á fornan brunn og
lágu fúnar fjalir yfir brunnop-
inu. Brunnur þessi er metri í
Iþvermál og um tveggja metra
djúpur. Hleðslan er forneskjuleg
og orðin hrjúf. Telja þeir félag-
ar að hann muni örugglega vera
eldri en 70 ára, en engar heim-
ildir hafa fundist um hann, eru
uppi getgátur að hér muni vera
um að ræða hið forna vatnsból
Víkurbæjar.
Samningar milli verzlunar-
fólks í Reykjavík og aívinnu-
rekenda niunu væntanlega verða
undirritaðir í dag. Fullt sam-
komulag um þessi 9% kaup-
hækkun eins og annars staðar.
Reyndar var samkomulag uin
| þessi 9% strax í upphafi við-
ræðna deiluaðila, en samningar
strönduðu á ákvæði um lífeyris-
sjóð.
í lífeyrissjóð VR sem í eru
um 40 millj. króna, var sett
| við síðustu samninga ákvæði
' sem gerði vinnuveitendum kleift
að kljúfa sjóðinn og skipta hon-
|um niður í aðra smærri. VR
gerði það að kröfu sinni að
breyta þessari málgrein í lögum
lífreyrissjóðsins, og ■ hefur nú
| eins og fyrr segir náðst sam-
komulag milli deiluaðila.
Samningurinn gildir frá og
með 1. júní s. 1.
Hafa þá samningar tekizt milli
atvinnuveitenda og verzlunar-
fólks hvarvetna á landinu, nema
á Akureyri. Þar hefur ekki enn
náðst samkomulag um lokunar-
tíma, en hann hefur verið kl.
6 e. h.
í Verzlunarmannafélagi Reykja-
víkur eru um 2600 félagar.
Ákveðið hefur verið að fjölga
prestum í Reykjavík á þessu ári
um fimm og munu þeir þá verða
fjórtán. Kom það fram í yfir-
litsræðu biskups á prestastefn-
unni, að ráðuneytið muni skipa
nýja presta frá næstu áramót-
um og þýðir það væntanlega,
II 1—111 HIWIIIII I niTiTTTIII
| Jónsmessu-
kvöldvoko
að Árbæ
að prestskosningar muni fara
fram í haust.
Biskup gat þess í ræðu sinni,
að nú væri svo komið í fimm
prestaköllum í Reykjavík, að
íbúatala á prest væri orðin í
kringum ellefu þúsund, en þau
eru þessi
Nesprestakall, Laugarnespresta-
kall, Háteigsprestakall, Lang-
holtsprestakall og Bústaðasókn.
Enn virðist það óráðið hvort
prestaköllunum verður skipt í
tvö einmenningsprestaköll eða
tveir prestar starfi í hverju. Er
það margan hátt talið heppi-
legra að hafa einmenningspresta
köll, en erfiðleikarnir á því
stafa af smíði kirkjubygginga,
en nú er langt komið að reisa
kirkju í sumum þeirra presta-
kalla sem nú eru við lýði.
FyrstasíUin veiddist í nótt
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í morgun.
í morgun barst sú frétt hing-
að til Akureyrar að fyrsta ís-
lenzka skipið hafi fengið síld á
norðurmiðum i nótt. Það var
m.b. Seley frá Eskifirði, sem
fékk um 300 tunnur síldar fyr-
ir norðan Kolbeinsey.
Seley mun hafa lagt á miðin
upp úr síðustu helgi.
Klukkan 12 á miðnætti í nótt
lagði síldveiðibátur á miðin úr
Akureyrarhöfn. Það var
Hrefna, minnsta skipið í síld-
veiðiflota Akureyringa, aðeins
51 y2 lest að stærð. Steinþór
Helgason á Akureyri gerir skip-
ið út. Á því er ellefu manna á>
höfn og mun það í sumar leggja
upp á Siglufirði, Raufarhöfn og
Seyðisfirði.
Alls verða 9 skip gerð út á
síld frá Akureyri £ sumar, þar
af eru 5 sem Valtýr Þorsteins-
son útgerðarmaður frá Rauðu-
vík gerir út, en þau eru Gylfi,
Gylfi II, Akraborgin, Ólafur
Magnússon og Garðar. Þau
verða öll með kraftblokkir
Framh. á 5. síðu.
Áburðarverksmiðjan
stöðvast lengi
Framleiðsla Áburðarverksmiðj-
unnar hefur stöðvazt og eru eng-
ar líkur fyrir að hún geti hafizt
fyrr en eftir allmarga daga. —
Áburðarframleiðslan er um 70
tonn á dag, en hvert tonn kostar
frá verksmiðjunni 2600 krónur. Er
framleiðslutapið eitt því tæpar
200.000 krónur á dag.
Orsök stöðvunarinnar er sú að
ein af áðalspennum verksmiðjunn-
Framh. á bls. 5.
Ef veður leyfir verður haldið
upp á Jónsmessuna að gömlum
sið, að Árbæ með Jónsmessu-
kvöldvöku n.k. laugardagskvöld
þannig, að söfnin verða opin
frá kl. 8 til 11.30.
Lúðrasveitin Svanur, undir
stjórn Jóns G. Þórarinssonar,
mun leika frá kl. 9 til 10, en
síðan munu gömlu dansarnir
verða dansaðir á palli í klukku-
stund, harmonikku-hljómsveit
Garðars Jóhannessonar mun
leika undir. Ef veður verður
hagstætt verður kynt Jóns-
messubál um ellefu leytið.
í framtíðinni mun Ártcer
eiga að verða þjóðlegur
skemmtistaður og kvað Lárus
Sigurbjörnsson hér vera um til-
raun að ræða og treystir safn-
stjórnin Reykvíkingum að sýna
þeim þann velvilja að halda
uppi fullkomri reglusemi.
Ef vel viðrar verða þeir án
efa margir Reykvíkingarnir sem
leggja leið sína upp að Árbæ
til að njóta þeirra gífurlegu
kvöldfegurðar sem þar er, auk
þess sem gestum er gefinn kost
Framh. á bls. 5.
VISIR
52. árg. — Fimmtudagur 21. júní 1962. 139. — tbl.
Prestkosningar /
Reykjavík íhaust