Vísir - 21.06.1962, Blaðsíða 10
10
ViSIR
Fimmtudagur 21. júní 1962.
70 ára 21.6/62
Guðriin Jóhannsdóftir
Skáldkona frá Brautarholti
Hún skrifar sig sjálf „frá Braut-
arholti", þar sem foreldrar hennar
bjuggu í 8 ár, þau Jóhann Eyjólfs-
son þingmaður Mýramanna 1914
— 16 og Ingibjörg Sigurðardóttir,
en mér er tamara að kenna hana
við Sveinatungu. Að vísu man ég
lítið eftir litlu heimasætunni, en þvi
betur eftir foreldrunum, er bjuggu
góðu búi (1889—1915) í Sveina-
tungu. Þau reistu þar fyrsta stein-
steypuhús í sveit á Islandi árið
1895, og eftir það þótti svo norð-
lenzku skólafólki þar gott að koma,
enda hjónin bæði frábær að gest-
risni og heimilið allt með mesta
myndarbrag. Það er nokkuð seint
að þakka þeim nú, þegar bæði eru
löngu látin, en mér finnst ég verða
að nefna 2 dæmi gestrisni þeirra,
bæði mér enn í fersku minni. Vér
gistum þar einu sinni 18 i hópi,
námsfólk að norðan, fengum hátíð-
armat og sitt rúmið hvert í mörg-
um herbergjum, og fengum ekki að
greiða nema eina krónu hvert fyr- ■
ir það allt. í annað sinn komum
vér þar eitthvað 12 um miðjan dag
á suðurleið, vorum vel nestaðir frá
Fornahvammi og ætluðum ekki að
gjöra neinn átroðning í Sveina-
tungu, en þjóðvegurinn var um
hlaðið, og Jóhann stóð úti og
Stórbóndar
Framh af 4. síðu.
meiningin er að efna til annars
mjög fljótlega.
Ég stóð enn á bakkanum, þegar
tímanum var lokið og krakkarnir
renndu sér upp úr lauginni. Þar var
agi á hlutunum til síðustu stundar,
og þau gengu í einfaldri röð inn í
búningsherbergin.
Ekki voru þeir þó fyrr komnir
inn en næsti hópur skauzt fram og
þrír stæðilegir „stórbóndar" svifu
fagurlega fram af bakkanum og
stungust á bólakaf — það í djúpu
laugina.
spurði tafarlaust, hvort vér ætl-
uðum ekki af baki. Ég var þá orð-
inn honum vel kurinugur og sagði,
að þessi gestrisni væri um skör
fram. En Jóhann var á öðru máli
. I
Fangahiálp
Framh ii 9 siðu
ar í mánuði, fyrstu mánuðina,
sem þeii eru undir eftirliti.
Margir piltanna hafa látið
orð falla að því, að þeim sé
mikil uppörfun og stoð í því
að hafa getað snúið sér til eft-
irlitsmannsins og sótt til hans
ráð og styrk þegar örðugleik-
arnir hafa steðjað að þeim, því
að margir þessara pilta eiga fáa
aðstandendur og eru háðir erf-
iðum heimilisástæðum.
Ákærufresturinn hefur þegar
eftir fárra ára reynslu orðið
mörgum unglingi mikilvægt at-
riði í lífi hans.
Á þessum fyrstu þrettán
starfsárum Fangahjálparinnar
(1949-1962) hefi ég haft af-
skipti af málum 923 manna og
afgreitt 2618 mál.
og eftir stutta stund vorum vér
seztir við ágætt kaffiborð. Lang-
ferðamenn gleyma ekki þess háttar
gestrisni.
— x —
Þegar Guðrún var alflutt til
Reykjavíkur, varð hún brátt heim-
ilisvinur í Ási. Konunni minni þótti
mjög vænt um hana, og sama get
ég sagt um Láru dóttur 'mína og
æðimarga aðra, því að Guðrún Jó-
hannsdóttir er vel kristin kona, og
fer ekki dult með trú sína, eins og
bækurnar hennar 6 sýna. Þær eru
2 þulubækur, — Tvær þulur, og
Tíu þulur, endurpr. 1943, — 2
barnabækur, — Börnin um jólin
og Hitt og þetta, — 2 Ijóðabækur.
Urðu þær bækur allar vinsælar og
munu fyrir löngu flestar horfnar
hjá bóksölum.
Guðrún giftist árið 1919 Berg-
sveini Jónssyni umsjónarmanni við
Sundhöllina. Þrjár dætur þeirra:
Guðrún, Guðbjörg og Ingibjörg eru
allar giftar fyrir löngu, sú elzta dó
frá manni og tveggja ára dóttur
fyrir 16 árum. í?ór litla stúlkan þá
til ömmu og afa, og hefir verið sól-
argeisli á heimili þeirra síðan.
-x- I
Hefði konan mín lifað, hefði hún !
skrifað lengri og betri grein um I
nöfnu sína við þessi tímamót en I
þessi grein mín er. En vinkona okk-
ar í Ási fyrr og síðar mun skilja
það, að ég segi í fullri alvöru:
Drottinn blessi þig og alla þlna
hvert ár sem eftir er, — og um
alla eilífð.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
Söltunarstöð varnar
bíða eftir síldinni
► Fimm forsprakkar andstæðinga
einræðisstjórnar Francos á Spáni,
hafa gerst útlagar, þrír á Kanar-
isku eyjunum, tveir í París. Þeir
sátu nýlega fund 100 stjórnarand- j
stæðinga sem saman kom í Miinch ,
en. Tólf þeirra sem eru búsettir á
Spáni, fengu að fara til heimkynna
sinna á ný. Flestir binna eru nú
búsettir erlendis.
Tilboo
os:a
Tilboð óskast í bifreiðaboddy og grai .ur er
verða til sýnis í Rauðarárporti föstudaginn1
22. þ. m. kl. 1—3. Tilboðin verða opnuð kl. 5
síðdegis.
, Sölunefnd varnarliðseigna.
Þessa dagana er hvarvetna unn-
ið að undirbúningi síldveiðanna,
sem voriandi geta hafizt innan
skamms.
Á Raufarhöfn verða sex síldar-
söltunarstöðvar í sumar. Þrjú skip
kömu þangað nýlega og lestuðu
salt og tunnur. Verksmiðjan verð-
ur tilbúin að taka á móti síld til
bræðslu um miðja næstu viku. Að
undanförnu hefur verið unnið að
því að bæta aðstöðu til löndunar,
einnig hefur húsrými verið aukið
til mjölgeymslu.
Á Dalvík verða 3 söltunarstöðvar
í sumar. Og þaðan gerðir út 7 bát-
ar á síldveiðar. Þeirra á meðal tvö
togskip, Björgvin og Björgúlfur.
Sumir bátarnir eru þegar tilbúnir
og verið er að undirbúa aðra, enn-
fremur er verið að vinna að undir-
búningi við síldarsöluna. /
Á Húsavík er síldarbræðslan
langt frá því að vera tilbúin til
síldarmóttöku, en unnið er við
hana af fullum krafti. Starfræktar
verða þrjár söltunarstöðvar og sjö
bátar munu fara þaðan á síld.
Á Þórshöfn verður síldarsöltun
eins og í fyrra, en þaðan verða
engir bátar gerðir út á slld.
Á Hjalteyri er bæði síldar-
bræðolan og síldarsöltunarstöðin
tilbúnar til slldarmóttöku.
I’ Hrísey verður starfrækt ein
síldarsöltunarstöð eins og í fyrra,
en engir bátar verða gerðir þaðan
út á síldveiðar.
í Grímsey verur ein síldarsöltun-
arstöð.
Krossnes-verksmiðja er Jilbúin
til slldarmójttöku. Þar hefur verið
unnið að bryggjugerð og verður
slldarsöltun starfrækt þar í sumar.
Á Vopnafirði verða fjórar söltun
arstöðvar, er það einni fleira en I
fyrra. Verið er að vinna við að
gera síldarbræsluna • tilbúna, en
Kveðja irá 65
ára stúdent
Þess var getið við skólauppsögn
Menntaskóíans 15. þ. m., að við Jó-
hannes Jóhannesson, læknir I Se-
attle vestur við Kyrrahaf, værum
einir eftir af þeim 20. sem fengum
stúdentahúfu árið 1897.
Ég skrifaði honum með góðum
fyrirvara og bað hann að senda
skeyti til skólans. í dag kom bréf
frá honum, dagsett 16. þ. m Þar
segir hann, að hann hafi ekki ver-
ið heima, er bréf mitt kom vestur,
hafði hann farið með skemmtibát
sínum úr bænum og verið við sund-
æfingar nokkra daga fjarri Seattle,
„eins og oft áður“. Hann biður
innilega að heilsa „gamla skólan-
um okkar“, og þeim fáu, sem muna
hann enn á „gamla landinu“.
Hann minnist komu sinnar til
íslands árið 1955 með gleði og
þakklæti. Svo segir hann meðal
annars: „Eitt er þó líkt með okk-
ur báðum: Við höfum aldrei þurft
að vinna önnur störf en þau, sem
voru okkur kær. Ég hætti öllum
störfum 1957, en hefi nóg af öllu
og, held mér liðugum og hraustum
með leikfimi og sundi, — er hraust
ur og lífsglaður og hefi breytzt
smám saman með ildrinum, hætti
að reykja 1945, og hætti við allt
áfengi árið 1954" 1 — Ég býst við
að mér sé óhætt að skrifa honum
að vér, sem eftir eru af gömlu
skólabræðrum nans, samgleðjurpst
honum og óskum honum alls góðs.
20/6 1962,
Sigurbjörn Á. Gíslason.
skortur á iðnaðarmönnum hefur
tafið það verk mjög.
Á Siglufirði eru verksmiðjurnar
að verða tilbúnar til móttöku. Að
undanförnu hefur veri unnið að
viðhaldi á síldarbryggjum, Og I
því sambandi reynt að spara tré-
pallana og í stað þess fylla upp
með grjóti og möl og steypa síðan.
í sumar verða 22 söltunarstöðvar,
er það einni fleiri en í fyrra. Stöð-
in sem bætist í hópinn nefnist
Jakobssenstöð er eitt sinn starfaði
þar, og hafa nú farið fram miklar
og stórfeldar endurbætur á stöð-
inni. Mikil eftirspurn er eftir sölt-
unarstúlkum, þær stærstu munu
hafa um 50 — 60 stúlkur.
Reyðarfjörður. Þar verða tvær
söltunarstöðvar starfræktar. Önn-
ur kallast Gunnar h.f. og standa
um hana tveir bátar Gunnar og
Snæfugl. Hin kallast Katrín h.f. Er
það ný stöð og standa um hana
þrír menn. Löndunarskilyrði eru
ekki góð á Reyðarfirði á meðan
síldarverksmiðjan er ekki komin
upp, því' að flytja verður úrgang
til Eskifjarðar.
Fáskrúðsfjörður. Þar var ein
söltunarstöð rekin I fyrra á vegum
kaupfélagsins og Egils Guðlaugs-
sonar og verður svo enn í sumar.
Stöðvarfjörður. Þar rekur kaup-
félagið söltunarstöð eins og það
gerði í fyrra.
Dormóbíllinn
Framh: af 7. stðu.
gerð, enda áttum við eftir að
sannprófa það, þegar vagninum
var ekið eftir Suðurlandsbraut-
inni, og lítil skvísa I litlum Volks
wagen stakk sér inn á aðal-
brautina fyrirvaralaust, og
Dormobíllinn snarhemlaði, svo
að báðum aðilum var borgið.
Bíllinn er hitaður upp þannig,
að loftið leikur jafnt um allan
bílinn. Þá er hægt að kæla og
hita bílinn á víxl eftir veður-
fari. Dormobile Caravan er til-
valinn bíll fyrir fólk, sem kann
að ferðast, fyrir veiðimerin, fyr-
ir fólk, sem vill ekki vera háð
dvalarstað á ferðalögum.
íjegar við höfum komizt að
“ raun um, að þessi bíll er
heppilegur fyrir fólk, sem vill
njóta frelsis og sjálfstæðis á
ferðalagi — og 'þæginda engu
að slður, hentugur fyrir Island
og íslendinga, lögðum við nokkr
ar spurningar fyrir þau hjón.
Frú Tunnard sagði eitthvað á
þá leið, að eftir að hafa búið
tuttugu ár I Englandi, ætti hún
nú líka heimili á íslandi — —
„á fjórum hjólum", bætti hún
við.
Mr. Tunnard kveðst hlakka
til að veiða I Laxá vegna fyrri
reynslu sinnar af henni fyrir 14
árum, en þá veiddi hann 4 væna
laxa í henni. „Laxá er ef til vill
fegursta á í Evrópu,“ sagði
hann, „og sú laxveiðiá, sem all-
ir laxveiðimenn óska að kom-
ast í.“
— Segið mér eitt, Mr. Tunn-
ard, að lokum, hvernig lízt yð-
ur á allt hér fljótt á litið?
— Þegar ég kem hingað til
Reykjavíkur eftir 14 ár, er ég
agndofa yfir framförum og þró-
un, sem hefur gerzt alls staðar,
m. a. í byggingu nýrra húsa,
gatna, íþróttasvæða, skóla,
kirkna og annarra mannvirkja.
Það sýnir Iífsþrótt nútfma Is-
lendinga, hvernig þeir virðast
færa sér I nyt og efla auðlindir
lands síns.
stgr.